Það styttist nú óðum í tónleikana hérna í Berlín, ekki laust við að komin sé tilhlökkun í mann, ég bókaði tvo tíma hjá Wolfgang núna um helgina til að reyna að koma mér í besta form sem ég get komist í á svo stuttum tíma. Á mánudaginn er svo píanóæfing með stjórnandanum í Deutsche Oper og svo er hljómsveitaræfing á þriðjudeginum í Frankfurt!! Ég átta mig ekki alveg á hvernig þeir ætla að gera þetta, en það er líklega auðveldara að selflytja 5 söngvara heldur en heila hljómsveit :) Þetta verður allavega annasöm vika hjá mér og vonandi arðbær tengslalega séð.
Það er nú samt ekki víst að agentar mæti á svæðið nema þeim sé sérstaklega boðið þar sem það kostar 38 EUR inn á herlegheitin. Það er ekki ónýtt að vera í þessum hópi og þetta verður frábært kvöld, án efa.
Nú hér í kvöld er búin að vera grenjandi rigning með tilheyrandi þrumuveðri... alltaf jafn gaman að upplifa það, hér má sjá mynd sem er ný komin úr EOSnum frá atburðum kvöldsins.


--Þú ert þá maðurinn sem ert búinn að skuldsetja mig!!!!--
°Maður spyr sig: Hvort á maður að hlæja eða gráta að ásakandi baksvipnum?
SvaraEyðaÉg hlæ.