17.3.09

Svona átti þetta nú ekki að vera!!

Þá er hafin þriðja vikan í atvinnuleysi og ég sem var búinn að setja saman ansi mikil plön um það hversu mikið ég ætlaði nú að fara læra og reyna að koma mér af stað í hreyfingu aftur.   Lítið hefur gerst síðan ég planaði þetta allt, ég er reyndar búinn að skanna inn þær 130 blaðsíður sem ég þarf að syngja af í sumar og vinna með það efni þannig að ég geti nú farið að læra af fullri alvöru.  Ég henti mér í ræktina í fyrsta skipti í gær og það var mjög gott mér leið strax betur.  EN í morgun bara komst ég ekki upp úr rúminu.....,!! Það er svolítið langt síðan mér leið svona.....síðast var það svona í kringum tvítugt.  Ég veit ekki alveg hvað þetta er en þreytan á Júlíu og hennar ástandi er nú ekki til að bæta það, þó vissulega sé hún, eins og margoft hefur komið fram, MIKIÐ betri en áður.   Hún sefur lítið sem ekkert og er þessvegna mjög mikið pirruð og stanslaust að væla, svo er grenjað ef hún er sett að sofa.  Þetta er ótrúlega skemmtilegt eða hitt þó heldur og hefur verið svona á hverjum einasta degi frá því hún fæddist, munurinn á deginum í dag og áður er að það er ekki sár grátur.  Annars er andlegt álag vegna þessa mjög svipað. 

Við erum búin að panta hingað sérfræðing í brjóstagjöf, svefni og næringu ungabarna.  Hún er væntanleg á morgun.  Ég á ekki von á að neitt komi útúr því nema að vera 90 evrum fátækari, en maður er þá allavega búinn að reyna.  Nú svo er búið að bóka ungfrúnna í ungbarnasund og frúin að fara í "endurhæfingar leikfimi". 

Sönglega er ég í lægð þessa dagana, og það er aldrei góð líðan sem fylgir því.  En ljósið í myrkrinu er að Wolfgang er komin heim úr fríi og ég er að fara hendast í tíma til hans á föstudag, það kemur aðeins til með að brjóta upp daginn og vonandi að lífga við röddina aðeins.   

Hræðilegir svona dagar, en maður hefur komist í gegnum þetta áður og mun líklega gera það aftur.

3 ummæli:

  1. líklega verkkvíði í gangi - velþekkt fyrirbæri :)

    SvaraEyða
  2. Jamm, það er ekki gott að finna kolapokann síga í þegar fram úr skal farið. Sængin verður freistandi sem aldrei fyrr.
    - Tek undir að það er erfitt að hlusta á barnið sitt gráta... lengi.
    Ég þekki kolapokann; samanstendur af andlegri, tilfinningalegri og líkamlegri þreytu...orsakast af öllum heimsins ósköpum: þ.e. "sögninni að vera fullorðinn og ábyrgur á ýmsum vígstöðvum".
    Gangi þér gæfan á hönd - og þá ekki síður fröken Júlíu og þinni heittelskuðu eiginkonu.
    Ættarfylgjan

    SvaraEyða
  3. Hang in there ... ég fer bráðum að koma í visiteringu og þá lagast allt :)

    Kv, BKBen

    SvaraEyða