29.3.09

Nördlingen gegn Berlín

Jæja þá erum við komin 2 tímum á undan Íslandi og verð ég að segja að það er ansi sniðugt að flýta klukkunni svona, þar sem núna er klukkan að verða hálfátta og það er ennþá bjart og fínt úti. Skrítið að þetta skuli ekki vera gert á Íslandi þar sem þetta myndi líklega gagnast ansi mörgum og gera margt skemmtilegra og auðveldara.

Nú annars er það að frétta að ég fór á námskeið í dag í einhverju sem kallast Gyrokinesis, og má eiginlega segja að þessu svipið mikið til Alexandertækni. Ég fékk það útúr þessu að ákv vandamál sem ég hef allatíð verið með í bakinu er hugsanlega leyst, en ég á nú eftir að prufa nokkrar góðar æfingar í nækkra daga/vikur til að sjá hvað gerist. Eins sá ég þarna sérstaka skó sem eru ansi merkilegir að því leiti að þeir styrkja rétta stöðu baksins og eiga að laga bara nánast öll stoðkerfisvandamál :) Nei kannski ekki alveg svo gróft en þetta er allavega helvíti sniðugt og aldrei að vita nema maður prufi þetta. Það verður líklega seint sagt að þetta séu skór klipptir úr tískutímariti, en það eina sem ég fann er þessi mynd.

Hér er annars allt gott að frétta og hitinn hækkar dag frá degi. Við erum búin að bóka flug til DK í Apríl og erum að fara til Malmö að heimsækja frænku Soffíu og Júlíu, það verður nú gaman, það sem gerir þetta svo senn skemmtilegra er að M&P plús G&B verða þarna líka á sama tíma þannig að maður hittir fólkið sitt í leiðinni sem er aldrei slæmt. Júlía er að fara í annan tímann sinn á morgun í Cranio og það er vonandi að það skili góðum árangri.

Annars langar mig í lokin að minnast á eitt sem hefur verið að angra mig, en það er Sjálfstætt fólk þáttur sem ég sá um daginn, þar var Auður Haralds gesturinn, og það sem gerði mig eiginlega smá reiðan var að hún reykir eins og strompur á dekkjabrennsluverkstæði og svo var alveg á kafi í því að lýsa því yfir að hún lætur nú ekki ofan í sig aukaefni og sneiðir algerlega framhjá slíku í mat og var nánast að hneykslast á því hvað væri mikið af aukaefnum í mat!!! Hversu mikil er sjálfsblekkingin hjá svona fólki. Reyndar má svosem taka punktinn um það að hún er allavega ekki að gera illt verra með því að borða aukaefni ofan á það sem hún reykir þau!

Ekki meira í dag EN......

NÝJAR MYNDIR

4 ummæli:

  1. Segir setningin "....að þetta eigi að laga öll stoðkerfisvandamál" ekki einmitt hvað þetta er mikið svindl.

    SvaraEyða
  2. He he, nei það er nú kannski meira frá mér komið, en setningin er í raun "hjálpar til að við að styrkja bak og miðju", Held að það sé nú megin málið.

    SvaraEyða
  3. ætli sé eitthvað varið í þá?

    SvaraEyða
  4. Já það held ég nú, þetta meikar smá sensa allavega. Fann út hvað þetta heitir:
    Kallast MBT skór
    http://www.swissmasaius.com/Default.aspx?lang=en-US

    SvaraEyða