10.3.09

Þegar maður gúgglar sjálfan sig

Við venjubundna gúgglun á sjálfum mér sá ég mér til mikillar ánægjur (kannski ætti það að vera skelfing), að mín er getið í Tyrknesku dagblaði.  Veit ekki alveg hvort þetta sé jákvætt eða neikvætt, en mér sýnist af google translate að þetta sé nú ekkert alvarlegt :)

Af öðru má nefna að ég hentist í bíó í kvöld að sjá kvikmyndina "The Watchmen", trailerinn lofaði svo sannarlega góðu, en þvímður stóðst myndin enganvegin væntingar, það sem var skemmtilegt og flott, var enganvegin nógu stór hluti af myndinni.  Þetta var svipað og ein leiðinlegasta kvikmynd sem ég hef séð á síðari árum, nema öllu áhugaverðari á margan hátt.  Ég veit því ekki alveg hvort ég get mælt með henni en ég mun ekki eignast hana á DVD og ekki dl henni, svo mikið er víst.

Ég velti því fyrir mér í kvöld hvort þetta ætli engan endi að taka með hana Júlíu.  Hún bara fer ekki að sofa öðruvísi en en að genja sig til örmögnunar ásamt því að hossa hennig og hoppa með hana um öll gólf.  Ég held að síðan hún fæddist hafi ekki verið farið að sofa á þessu heimili fyrr en í fyrsta lagi 00:30 á hverju kvöldi.  Reyndar hef ég notið þess að sofna aðeins fyrr þegar þær mæðgur fóru til Íslands í janúar sl.  Við erum bæði orðin verulega þreytt á þessu endalausa veseni í henni Júlíu,  að einhverju leiti er þetta magavesen enn að hrjá hana og veldur því að hún sefur illa.  En það er eitthvað annað sem er að koma í veg fyrir að hún sofni á kvöldin.   Svo þegar maður verður "reiður" við hana, þá bara brosir hún og hlær og slær vopnin úr höndunum á manni :)  Nema reyndar þegar hún á að fara sofa, þá er öskrað og grenjað.   

Jæja fleira var það nú ekki að sinni.

Guð blessi Ísland. 


2 ummæli:

  1. Gaman af þessu ! ekkert jafn gaman að googla mig, þar getur þú hinsvegar fundið allt út um hvernig skólaganga mín hefur verið, hvenær ég útskrifaðist osfrv... svo fann ég reyndar að ég tók þátt í þriggjafélagamóti 1993 :)

    Vonandi að ungfrúin fari nú að þreytast á þessu og fari að sofa á tilsettum síma :)

    SvaraEyða
  2. hehehe, gaman að tyrkneskunni ha.
    Annars var ég nú aldrei búin að óska þér til hammara með hlutverkið í Rheinsberg - rosalega flott Egill! Gaman að þessu :D Ég reyni að koma og sjá þig. Nú bara byrja að læra!

    SvaraEyða