18.2.09

Að dunda sér í ásnum

Hér höfum við haft það verulega gott þó stutt sé, Reykjavíkurferð er áætluð á morgun, reyndar ekki fyrr en undir miðnætti eða þar um bil.  Veður hefur nú kannski ekki verið með besta móti, en það hafa skapast skilyrði fyrir ákveðinni tegund myndatöku sem kallast HDR myndataka eða eitthvað svoleiðis.  Ég hef að sjálfsögðu reynt að nýta mér þessa nýfengnu þekkingu til að grípa náttúrufegurð Laugarássins og nágrennis.  Hér að neðan fara nokkrar myndir sem spruttu úr þessari vettvangsferð minni og EOSins.

Júlía litla er búin að vera mjög dugleg og heimsótti afa og ömmu í vinnuna í dag, þvímiður hitti hún ekki á "Guðrúnu á bókasafninu", en það koma líklega tímar.   Hún hefur vissulega skánað og það er ennþá þakkarvert, en það er byrjað að örla á smávægilegri tilætlunarsemi hjá henni, sem seinnameir verður frekja, og í skjóli magakrampa getur hún enn komist upp með það að maður tekur ekkert á þessu eins og agavandamáli :)  

2 ummæli:

  1. Flottar myndir :) Hef nú aldrei tekið eftir þessar fegurð í Laugarási- enda hlýtur þetta að vera einsdæmi. Ættir að prófa í Reykholtinu þar er nú fallegt ;)
    Smá þorpsrígur
    kv. Ósk

    SvaraEyða
  2. Já það er illt að vita að Júlía Freydís skuli hafa tekið (sennilega) stefnuna á TILÆTLUNARSEMI. Ég á ekki orð yfir þennan vanþroska telpunnar! Þessu verður að ná úr henni eigi síðar en í gær, með þýzku aðferðinni.

    Leggja hana í rúmið, slökkva ljósið, hlusta ekki á neinn grát, fara út að borða og síðan ekki söguna meir!
    Koma heim og barnið sefur!
    Ganz einfach, nicht wahr?

    Hef séð þessa aðferð í praxis á hótelum erlendis. Hún virðist virka. Börnin eru steinsofandi( og útkeyrð), þegar foreldrarnir hafa lokið sínum dinner.
    Ritað af ljúfmennsku og hjartagæsku minni

    Ættarfylgjan
    (ógurlega núna)

    SvaraEyða