22.1.09

Nazi Germany

Tónleikar í Villa Wannsee gengu bara nokkuð vel.   Þetta tók reyndar allan daginn, þar sem það var verið að taka vídeó, heimildarmynd.  Maður var því mættur þarna kl 14 og svo var maður ekki kominn  heim fyrr en um 23 um kvöldið.  Ekki get ég sagt að þetta sé það skemmtilegasta sem ég geri en þetta er hluti af þessu.   Nú það var fullt hús á tónleikunum og við máttum vel við una held ég, tónlistinn ekki alltaf það skemmtilegasta sem ég hef  heyrt, en eins og ég hef áður sagt þá var ágætt að syngja þetta.

Maður fékk alveg hrikalega tilfinningu fyrir sögunni þegar maður var þarna, ég er nú ekki mikill sögukall og þykir nú yfirleitt leiðinlegt að vera eitthvað  að velta mér uppúr henni, en þegar maður kemur á svona stað og áttar sig á því hvað gerðist þarna, þá verður upplifunin önnur.  Þegar ég kom svo heim, þá horfði ég á heimildarmynd um Nasista og hvernig þetta gat allt gerst, auk þess sem fjallað var um Valkyrjuna, í kjölfarið horfði ég svo á Der Untergang. 
  Það var mjög áhugavert að  horfa á þessar myndir fyrir það eitt að allt gerðist þetta hérna í Berlín, og það er gaman að þekkja alla staðina sem þar koma fyrir.  Svo var ég að fá símtal frá framleiðanda myndarinnar og hann vill endilega fá mig í viðtal eftir helgi, held að allir söngvararnir hafi farið í slíkt viðtal, þannig að það er spennandi.

Nú í gær hentist ég svo í kvikmyndahús, á svokallaða óvissusýningu, þar sem maður kaupir sér miða og svo kemur bara í ljós hvaða mynd verður sýnd.  Þetta eru alltaf myndir sem ekki eru komnar í bíó.  Í þetta skiptið var það myndin "The Curious Case of Benjamin Button".  Þetta er ein sú almesta tímasóun og leiðinda mynd sem ég hef látið mig hafa það að horfa á.  Þetta eru tveir og hálfur tími sem ég sakna úr lífi mínu en ég mun aldrei fá aftur.   Myndin fær 16 hauskúpur af 3 mögulegum.

Villa Wannsee í bakgrunni.

Í þessu herbergi fór fundurinn fram.
Veröndin þar sem Hitler og fleiri fóru í reykpásu.  Í baksýn má sjá í átt að fundarherberginu

6 ummæli:

  1. Gaman að þessu.
    Ertu ekki farinn að finna fyrir samsvaranir í nútímanum við það sem gerðist þarna á 4ða áratugnum?

    SvaraEyða
  2. já það er örugglega soldið merkilegt að fara á svona staði þar sem gríðarlega stórar ákvarðanir voru teknar...


    ok, ég á ss ekki að ná í The Curious Case Of Benjamin Button, ég var búin að heyra að hún væri góð...

    SvaraEyða
  3. Guðný ef þú ert búinn að senda email á geðdeild landspítalans og fá þann úrskurð að sá sem sagði þér að þetta væri góð mynd sé heill heilsu þá skaltu efast um það. Svo er "góð" líka afstætt. Góð eins og í hugljúf og falleg þá passar það, en skemmtileg.... nei aldeilis ekki. Hvorki skemmtileg né sérlega áhugaverð.

    SvaraEyða
  4. haha ok... !

    hvað er annars að frétta af ungfrú Júlíu??? ekkert að lagast?

    SvaraEyða
  5. Eitthvað aðeins skilst mér, en ekki komið lag samt sem áður. En hún fer að rúlla yfir 2 mánaða markið, þá ætti þetta að fara skána...... er manni sagt.

    SvaraEyða
  6. Hahahaha ég sem er næstum búinn að leggja það á mig á ná í þessa mynd... Held ég bíða þá frekar í áratug eða tvo þar til hún verður sýnd á Rúv :)

    SvaraEyða