30.1.09

Everybody knows about the The Bird.....

Fyrirsögnin er ekki alveg að vísa í það sem allir kannast við :)  Heldur það að hér hefur stefnan verið tekin á veitingastaðinn "The Bird", sem á að bjóða upp á bestu hamborgara Berlínar... ef ekki bara þýskalands.   Hér er almennt ekki hægt að fá svona góða alvöruborgara, reyndar BK og MD, en það eru ekki alvöru í mínum huga.  Hamborgarar hérna eru yfirleitt kjötfars.   Ég hlakka því til á morgun að sjá hvort það reynist rétt sem sagt er að þarna fáist bestu borgara í bænum.  Það er alltaf gaman að takast á við fullyrðingar, og veit ég fátt skemmtilegra en að kasta fram fullyrðingum af og til.
Hérna kom í gær filmcrew að taka viðtal við mig vegna komandi heimildamyndar um Wannsee fundinn.  Þeir eru að tala við alla sem komu að tónleikunum þann 20.jan sl.  Þetta var mjög afslappað og þægilegt.  Engar erfiðar spurningar :)   Mér skilst að þetta verði 3 diska sett, á víst að vera eitthvað vandað.  Og það ætti að koma út eftir svona ár, það er nú langur tími, hver veit hvar maður verður þá?

Júlíuhornið er á sínum stað að þessu sinni:
Stúlkan sú er enn við sama heygarðshornið þvímiður, og veit ég að hún er að ganga langt á orku mömmu sinnar og ömmu og afa fyrir norðan.  Ég vona að ég geti eitthvað létt undir þegar ég kem til Íslands.  Vona bara að hún verði búin með þetta leiðinda tímabil þegar ég kem heim :)
Hérna eru svo nokkrar myndir af ungfrúnni.  Það má sjá að hún er að verða ljóshærð, eins má sjá afar fagran sveip sem hún mun ekki verða þakklát fyrir eftir nokkur ár :)

3 ummæli:

  1. Það er ansi erfitt að ímynda sér að hún frænka mín sé alltaf svona erfið þar sem allar myndir eru af henni brosandi. Þar til ég sé þetta af eigin raun vill ég því bara meina að þarna sé verið að ýkja

    SvaraEyða
  2. Elsku barnið - algert augnayndi. Ekki fer á milli mála að þar fer skýrleikskona, sterkur persónuleiki --- og mikil tilfinningavera. (svona er að kunna mín fræði!!!)

    Þriðja myndin, þykir mér,eiginlega fallegust - á sinn sérstaka hátt; segir margt um þessa gömlu sál sem er enn og aftur komin; enn og aftur með bleyju.... og ætlar að læra alls konar lexíur en LÍKA KENNA, datt mér í hug.
    Og ekki oroð um það meir'

    Ættarfylgjan

    SvaraEyða
  3. Skólaritaranokkrum (og fulltrúa), sem þykir mikið til koma um fegurð og hraustleika barnsins, varð að orði að það liti út eins og einhver tiltekin dúkkutegund, sem var vinsæl fyrir nokkrum árum. :)

    Já, myndirnar styðja ekki beinlínis við frásagnir af því tagi sem skráðar hafa verið.

    SvaraEyða