24.12.08

Hátíðarblogg

Hér er búið að leggja mikla vinnu í jólamat og sú litla hefur verið að mestu til friðs, en ekki öðruvísi en að vera bundin framan á pabba sinn í allan dag.  Þetta er svosem í lagi svo lengi sem hún hættir að grenja.  Það var því ekki tími fyrir neitt jólabað hjá heimilisföðurnum að þessu sinni.  

Jólamatur heppnaðist með miklum ágætum og er varla hægt að segja annað en maður sé eilítið stoltur af árangrinum.  Nú er reyndar upphafið vælustig sem mun þarfnast vöku í nótt, ekki það að maður hafi ekki verið undir það búinn, en þetta eru ekki draumajólin, það er alveg öruggt!!  

EN allavega, takk fyrir lesturinn á árinu, og vonandi hefur maður eitthvað meira og merkilegt að segja á nýju ári.

Bestu kveðjur frá okkur fjölskyldunni á Kurfürstenstrasse 75

1 ummæli:

  1. Elsku litla fjölkylda í Berlín!

    Okkar bestu óski um

    Gleðileg jól og gott nýtt ár.

    Vonandi gengur ykkur allt í
    haginn á nýju ári.
    Bestu jólakveðjur.
    Fjölsk. Birkivöllum

    SvaraEyða