Fyrst langar mig nú að þakka öllum sem sendu okkur hamingjuóskir í kommentakerfinu, slíkt er alveg stórkostlegt og reyndar alveg ótrúlegt að sjá hvað margir eru búnir að vera fylgjast með þessu!!
Við erum búin að opna nýja myndasíðu sem verður sérstaklega notuð til þess að halda utan um myndir af ungfrúnni, svo að þeir sem ekki komast í heimsókn, geti allavega verið aðeins með okkur í þessu :)
Nú svo var ég að misreikna aðeins áheyrnarprufuna hjá Staats oper :) Hún er víst á morgun, en ekki í dag.... sem er eiginlega bara fínt, þar sem ég er ekki alveg tilbúinn í dag :)
NÝJA MYNDASÍÐAN er á slóðinni:
http://picasaweb.google.com/egilsdaughter

Ji minn hvað hún er yndisleg - greinilegt hvaðan hún hefur varirnar ;)
SvaraEyðaBið að heilsa ykkur - sakna ykkar mikið.
Kv. Begga frænka
... og augun virðast sjá allt... engin vandræði með beitingu...
SvaraEyðaRosalega er þetta falleg mynd! Lítur út fyrir að vera ótrúlega skýr - ef maður getur ákveðið það svona á fyrsta degi ;)
SvaraEyðaKv. Kristín Ósk
gaman ad sja myndirnar af litlu fraenku. Hver er slodin hja ykkur a barnalandi?
SvaraEyðahún er alveg guðdómleg dóttirin!
SvaraEyðaog toi toi toi í dag.
Langar líka að vara þig við, heyrði í tenórskum vini sem var að syngja þarna í gær og sagði að þetta hefði verið mesta kaós ever. Hvergi hægt að hita sig upp, lélegur píanisti og aðeins fimm mín með honum fyrir prufuna og alls staðar söngvarar að bíða. Þá veistu það. En gangi þér vel, hlakka til að heyra frá þér svo !
Þorvaldur: það verður staðið við fyrri yfirlýsingar varðandi barnaland.
SvaraEyðaJösses, hvað þetta er fallegt barn. Gott að vita af þessu með Barnalandið ;-)
SvaraEyða