6.12.08

Fyrsti dagurinn búinn

Fyrst langar mig nú að þakka öllum sem sendu okkur hamingjuóskir í kommentakerfinu, slíkt er alveg stórkostlegt og reyndar alveg ótrúlegt að sjá  hvað margir eru búnir að vera fylgjast með þessu!!

Hér er nú ekkert upplausnarástand, og við öll frekar róleg, sem er gott.  En það er einhver óværð í litlu, vegna þess að hún er bara nýbyrjuð að borða, það tekur smá tíma fyrir meltingarkerfið að taka við sér almennilega.  En það ætti að líða hjá á morgun skilst okkur.   Svo eru nú einhverjir þurrkublettir á höndum og fótum sem valda því að lítil sár hafa myndast, en við erum nú að bera á þetta hina hrikalega góðu calendula olíu, sem svínvirkar.  Þegar ég var að læra til nuddara, var þetta töfraolían sem var notuð á fólk með slæma húð osfrv, an allavega hún er allavega súperdugleg að borða og vera róleg, þar með er helstu áhyggjum dagsins lokið.

Við erum búin að opna nýja myndasíðu sem verður sérstaklega notuð til þess að halda utan um myndir af ungfrúnni, svo að þeir sem ekki komast í heimsókn, geti allavega verið aðeins með okkur í þessu :)

Nú svo var ég að misreikna aðeins áheyrnarprufuna hjá Staats oper :)  Hún er víst á morgun, en ekki í dag.... sem er eiginlega bara fínt, þar sem ég er ekki alveg tilbúinn í dag :)

NÝJA MYNDASÍÐAN er á slóðinni: 
http://picasaweb.google.com/egilsdaughter

7 ummæli:

  1. Ji minn hvað hún er yndisleg - greinilegt hvaðan hún hefur varirnar ;)

    Bið að heilsa ykkur - sakna ykkar mikið.

    Kv. Begga frænka

    SvaraEyða
  2. ... og augun virðast sjá allt... engin vandræði með beitingu...

    SvaraEyða
  3. Rosalega er þetta falleg mynd! Lítur út fyrir að vera ótrúlega skýr - ef maður getur ákveðið það svona á fyrsta degi ;)
    Kv. Kristín Ósk

    SvaraEyða
  4. gaman ad sja myndirnar af litlu fraenku. Hver er slodin hja ykkur a barnalandi?

    SvaraEyða
  5. hún er alveg guðdómleg dóttirin!

    og toi toi toi í dag.
    Langar líka að vara þig við, heyrði í tenórskum vini sem var að syngja þarna í gær og sagði að þetta hefði verið mesta kaós ever. Hvergi hægt að hita sig upp, lélegur píanisti og aðeins fimm mín með honum fyrir prufuna og alls staðar söngvarar að bíða. Þá veistu það. En gangi þér vel, hlakka til að heyra frá þér svo !

    SvaraEyða
  6. Þorvaldur: það verður staðið við fyrri yfirlýsingar varðandi barnaland.

    SvaraEyða
  7. Jösses, hvað þetta er fallegt barn. Gott að vita af þessu með Barnalandið ;-)

    SvaraEyða