Við bíðum hin rólegustu en ekki laust við að maður sé orðin svolítið pirraður á þessu öllu saman. Þetta skilar sér að sjálfsögðu út í geðslagið og maður hefur ekki verið allt of kátur síðustu daga, en það gætu svosem átt sér aðrar skýringar líka, svosem eins og kvíða fyrir auditionum og því sem framundan er.
Á laugardaginn eru tónleikar með nemendum Janet Williams, þar hafa verið einhver forföll og því spurði hún mig hvort ég myndi vilja koma og prófa audition prógramið mitt á fólkinu, sem ég þáði auðvitað. Ég er því að fara hendast á generalprufu á morgun og svo auðvitað verða tónleikar kl 17 á laugardaginn. Þetta eru bara 2 aríur, en 2 svínerfiðar sem ég er að vona að ég nái að gera góð skil á, því ef ég get það, þá ætti í raun að vera fátt sem stoppar mig :)
Nú svo rétt í þessu var ég að fá boð frá Staatsoper um að mæta í áheyrnarprufu 7.des, sem er frábært, það er svona 2ára prógram sem er verið að bjóða upp á þar, á launum og allt, og það væru nú aldeilis gaman að komast í það, en sjáum hvað setur.
Jæja, meira síðar, vonandi við talsvert breyttar aðstæður.
Hér er um nokkuð spennandi tíma að ræða. Ekkert að því.
SvaraEyðafullt að gerast... en jafnframt ekkert að gerast.. skemmtilegt :)
SvaraEyðaOkkur Skúla finnst bara verst að við erum að missa af sporðdrekanum.
SvaraEyðaÞvermóðskufullur tortyggnistrítill hefði verið ansi verðugt verkefni fyrir ykkur hjónin eins og foreldra okkar hjónanna. Fyrstu börn eru oft sögð reyna mest á hvað svo sem til er í því.
Annars óskum við ykkur alls hins besta og gangi ykkur vel.
Bkv. Aðalheiður