20.11.08

40 vikur

Þetta er dagurinn sem allir eru búnir að vera bíða eftir :)   EN ekkert er að gerast, og lítur ekki út fyrir að vera gerast í bráð.  Við erum þó á leið til læknis eftir nokkrar mínútur.  Laugardagur eða síðar til lukku, þar sem þá fæðist bogamaður :)

Ég sendi í rælni fyrirspurn í dag til Staatsoper varðandi Young Artists Program sem þeir byrjuðu á í fyrra.  Komst svo að því að umsóknarfrestur rann út 30.september sl!   jæja hvað með það, ég fékk allavega svar frá þeim og mér var boðið að sækja um þrátt fyrir það.... sem er bara frábært. Forhlustun hjá þeim er 5-6 des og svo aftur 13.des, en þá er allt ákveðið held ég.  Verður allavega gaman að sjá hvað kemur útúr því öllu saman.

5 ummæli:

  1. Ertu þá að meina Óperustúdíóið þeirra?
    Ég sótti líka um, ásamt víst um 240 öðrum sópransöngkonum! Skilst að það séu samt þó nokkuð færri umsóknir frá öðrum raddfögum...

    Ég fylgist spennt með á síðunni hvort eitthvað gerist næstu daga. Fer til Íslands í kvöld, kem á mánudagskvöld og verður gaman ef maður fær að koma í heimsókn í næstu viku og kíkja á nýjan fjölskyldumeðlim! :) Segi bara toi toi toi!!

    SvaraEyða
  2. Ég vil líka gjarnan koma med tillögu: strákur: Dralli - Dröfn og Palli og stelpa: Padrö (augljóslega) he he

    SvaraEyða
  3. Heyrðu afhverju má barnið ekki vera sporðdreki? Sporðdrekar eru yndisleg börn :) eldast líka vel :p

    SvaraEyða
  4. Já sporðdrekar eru fínasta og fegursta fólk, EN það er nú ekki fyrir alla að vera sporðdreki; þvílíkt tilfinninga- og næmisbúnt, sem þeir eru flestir.
    Bogmaður? Já, þeir eru býsna merkilegir líka. Reyndi að ala upp einn slíkan (kvenkyns). Ólíkindatól en ,mjög klók skv. minni reynslu.
    Annars mun barnið sennilega fæðast innan þess merkis sem það er búið að kjósa sér "á meðan ég var uppi að bíða hjá honum Guði" eins og bogmaðurinn minn sagði við mig þriggja ára.
    H.Ág. hirðkveðill PMS,
    í nautsmerki, með Venus sem aðaláhrifavald, tungl (þ.e.tilfinningar) í sporðdreka, 170 á hæð;jafnlynd,... - og vona að fæðingin blessist sem best verður á kosið.

    SvaraEyða
  5. Guðný: hef ekkert á móti sporðdrekum, en samskipti Vatnsbera foreldris og sporðdrekabarns þykja erfið :) Ef ég kemst hjá því, þá er það bara fínt :)

    SvaraEyða