Að loknum tíma hjá Wolfgang fórum við Gunnar á Sushistaðinn TaiSu, sem er mjög góður og ég hef farið þangað nokkrum sinnum. Þar var ég líka búinn að mæla mér mót við hana Ósk, sem kom færandi hendi, fullan poka af sælgæti og séð og heyrt.
Ótrúlega gaman að fá svona, og ég þakka þér Ósk vel fyrir pakkann. Þú ert svo hér með boðin í einhvern flottan mat hérna hjá okkur á Kurfürsten næst þegar þú átt leið um höfuðborg Evrópu.
Ég hef ekki enn komið mér í það að fara í EOS ferð um ljósnóttina hér í Berlín, og hún er búin núna þannig að það þýðir ekkert að vera væla yfir því.
Hérna var svo boðið í vöfflukaffi í gær, og þar mætti afmælisbarn dagsins hún Dísa, klukkutíma of seint reyndar!! (líklega hefur hún stillt klukkuna fram um eina klst í stað aftur, þar sem við fórum á vetrartíma í gær) :) Guðný fiðla var með í för, eins voru að sjálfsögðu íslensku strákarnir og áttum við mjög góða kvöldstund saman hérna. Svona lagað þyrfti nú að gerast oftar að mínu mati. Það er alltaf gaman að vera með svona hitting, því það verður soldið furðulegt að hitta ekki mikið af fólki á hverjum degi sökum vinnu.
Óléttuhornið:
Það er stutt að sinni, allt líturvel út, og við búin í síðustu skoðun hjá lækni.... þ.e þangað til 20.nóv, þá vill hann sjá okkur aftur ef ekkert verður farið að gerast. Ljósmóðirin kom í dag með lista yfir það sem við þurfum að eiga heimavið þegar við förum heim eftir fæðingu. Það er svosem ekki margt sem kemur á óvart á þeim lista. Og þetta er allt til að mestu hvort sem er. Soffíu líður bara vel og lítið nema gott um það að segja. Síðasti geburtsvorbereitungskurs er svo á miðvikudag og það verður mikill léttir..... trúi reyndar ekki að liðnar séu 7 vikur síðan þetta byrjaði, tíminn líður með ógnarhraða þessa dagana og maður veitt ekkert hvað er að gerast :)

Hérna eru svo nokkrar léttar myndir úr vöffluboðinu.

Gaman að heyra að hljóðið er gott í ykkur, miðað við þær fréttir sem berast af námsmönum erlendis.
SvaraEyðaen þar sem matur er mitt aðalmál, þá ætla ég bara að segja að Nóatún hefur undanfarin ár (vonum að það fari ekki að rúlla yfir) sérhæft sig í að senda mat erlendis, bæði fyrir jól og þorra. Það er ekki sniðugt að senda það með venjulegum pósti. Landamæra verðir hina ýmsu landa hafa eitt og annað við það að athuga.
með kveðju
Dóra Svavars Drumbur :)
Það er með þennan indverska söngvara......
SvaraEyðaHann hefur greinilega ekki sungið hátt.
Jamm, svona Janet dilemmur geta verið snúnar.
Takk fyrir það Dóra, ég hef það í bakhöndinni ef foreldrar klikka :)
SvaraEyða