Annars er nú lífið að ganga sinn vana gang hér, alltaf verður kaldara og kaldara, og á sumum trjám eru aðeins örfá lauf eftir. Peningmálin eru svosem ekki alveg farin að setja strik í reikninginn hér, þar sem maður tekur bara útaf VISA það sem maður þarf hverju sinni, þannig er maður að halda sér gangandi frá degi til dags. Ég er þó búinn að fá fréttir frá Landsbankanum að þeir séu búnir að senda millifærslu til mín, og ef þetta skilar sér fyrir mánaðarmót þá er ég sáttur.
Ég hitti Wolfgang aftur í gær, það er hrikalega pirrandi að þessu fíni kennari sé ekki nær, að fara til hans kostar 3 tíma í lest í hvert skipti, en það er svosem þess virði miðað við það sem ég er búinn að vera fá frá honum. Hann bauð mér að senda agentinum sínum demo CD/DVD ef ég á svoleiðis, og ég er að fara reyna að henda í einn slíkan á föstudaginn, ef allt gengur upp, þannig að maður þarf sannarlega að vinna fyrir hlutunum hérna :) Sem er svosem gott.
Óléttuhornið:
Síðasta námskeið var alveg eins og þau sem á undan komu, það var verið að tala um sömu hlutina aftur og aftur, annaðhvort erum við svona rosalega gáfað fólk, eða þjóðverjar eru bara svona heimskir! Ekki bætir úr skák að fólk þarf að sitja á gólfinu allan tímann, og það er bara ekki auðvelt, hvað þá fyrir óléttar konur! Jæja hvað með það. Við erum komin með barnarúm og vagn núna, ásamt einhverjum aragrúa af fatnaði sem ég er ekki alveg með á hreinu hvað er :) Þarna er t.d eitthvað sem kallast "heimferðarföt", ég held ég nenni nú bara ekkert að pæla í því, ef það er eitthvað sem þarf, þá er það bara þannig :) Kúlan stækkar hratt, og er að stækka meira á þverveginn en áður, því hefur maður tekið eftir ákv minnkun á framstæðunni. Barnið er byrjað að skorða sig núna skv fræðunum, og ætti ekki að breyta mikið meira um stellingar fram að fæðingu, sem er gott þar sem það snýr ákkúrat eins og best þykir. Það tekur því við hérna bið hjá mér og andvökunætur hjá Soffíu........ það er gaman að þessu.
Jæja væni. 3 tíma segirðu? Hvar býr hann eiginlega kallinn??
SvaraEyðaHeyrðu, ég missti alveg af þessu ljósasjói, fór á freekar skrítna tónleika á skrítnum bar í Prenzl berg og var lengi. Bjór og læti ha.
Í dag er maður bara að jafna sig, svo kannski æfa sig aðeins í kvöld...
Annars þurfum við endilega að fara að hittast eitthvað, þetta gengur ekki. Bið að heilsa Soffíu í bili.
Já, heimferðarfötin...hahahahaha.
SvaraEyðaEgill að fóta sig í nýjum veruleika. Greinilega allt að koma.
EOSinn er ekki að klikka.