9.10.08

Bjartsýni og bölsýni og geburtsvorbereitungskurz

Þetta eru orð sem auðvelt er að nota núna og hjá okkur er það engin undantekning.  Hér er vissulega búið að frysta allt sem heitir peningur, engin sem hér býr getur því millifært peninga frá Íslandi og út, og það hefur ekki verið hægt alla vikuna.  Við eigum þó líklega nóg til að bjarga okkur fram yfir næstu mánaðarmót, ef við förum mjög varlega með alltsaman.

Mitt í svartnættinu hugsar maður til þess gleðitíma(vonandi), þegar barnið mætir á staðinn, því hér eru menn jú orðnir leiðir á að bíða eftir þessu, eins og áður hefur komið fram.  Engin löngun er þó að bjóða barni upp á þær aðstæður sem virðast vera að skapast í heiminum, en maður verður bara að taka því eins og það er.  Þetta er leiðinlegt en vonandi ekki óyfirstíganlegt.  Einhvernvegin fara öryrkjarnir að þessu með 4-5 börn, maður hlítur að ráða við eitt.

Hér er í ofanálag byrjað að hausta, þó það sé nú talsvert hlýrra í veðri en búið er að vera í September, lauf fjúka hér um allt og tré verða fáklæddari með hverjum deginum sem líður.  Ég hef lítið sungið annað en tónleikana síðustu helgi.  En ég fékk hringingu frá konunni sem skipulagði þetta og söng líka, þar sem hún er að skipuleggja aðra tónleika þann 13.des nk.  Ég er að hugsa málið, og líklega verður maður nú með, þetta er jú allt reynsla sem nýtist.  Hún sagði mér meðal annars að fólk hefði mikið talað um mig og ég mætti bara vera mjög ánægður með það sem fólk var að segja, sem ég og er.   Nú á Laugardag er annar tími hjá Wolfgang Millgramm, og sama dag er svo hóptími hjá Janet, eftir það er Janet að fara bjóða í partý, sem er gott mál, og verður eflaust gaman að hitta hópinn og sötra rautt.

Í kvöld er það svo bara schnitzel á borðum hérna hjá okkur, með grænum baunum, sósu sem við finnum inni í skáp og sultu.  Voða gamaldags, en maður er farinn að þrá eitthvað annað bragð.   Ætli maður verði einhverntíma leiður á að borða?   úff ég vona ekki, það er bara svo himneskt að prufa mismunandi brögð og rétti, hvernig getur einhver ekki fílað það? 

Óléttuhornið:
Síðasti geburtsvorbereitungskurs með Ellu var svo í gær, og ég keypti mér tvo bjóra á heimleið til að fagna því.   Hún var sem fyrr blaðrandi um sömu hlutina aftur og aftur, þetta var 4 kvöldið og við höfum lítið séð og heyrt annað en það sama.  Þó fór nú háltími í það að skoða fæðingaraðstöðuna og mismunandi möguleika fyrir konur að fæða, það var mjög athyglisvert, og það sem kom út úr því fyrir mitt leiti er að vatnsfæðing er málið.  EN þar sem ég er ekki að fara fæða barnið, verður frúin að sjálfsögðu að ráða því :)  Nú eru bara 3 skipti eftir og mín bíður kampavínsflaska inni í ísskap til að fagna því þegar þetta er allt búið.

7 ummæli:

  1. Er ekki hægt að spila Gerði G. undir kvöldmatnum. Ég bíð bara eftir að það verði buff í matinn með heimagerðum steiktum lauk ´on the side´. Er sjálfsagt ekkert betra eða verra en Foreman-grillaðar kjúklingabringur.
    Óheppilegt nafn á söngkennaranum. Er ekki búið að gera einhverja brandara í sambandi við það?

    SvaraEyða
  2. Nafn söngkennarans, Millgramm, ertu á að meina Milligramm :)? Ég var ekki svo snöggur að átta mig á því :)

    Hér í landi þýskarans er bara ekki svo mikið bragð í boði í hefðbundnum verslunum. Maður þarf að leita á náðir sérverslanna, sem eru nú ekki á hverju strái.

    SvaraEyða
  3. Þetta er rétti andinn - það má lesa heilmikið æðruleysi og yfirvegun út úr þessari færslu.

    SvaraEyða
  4. Hahhh, Milligramm :-) Við búum okkur allteins undir það hér heima að það verði þrjúhundruðþúsund prósent verðbólga, svo að þegar maður fái útborgað hlaupi maður strax út í ríkisverzlunina til að kaupa dósamat fyrir allan peninginn. Ef maður myndi ganga í stað þess að hlaupa myndi maður tapa af því verðbólgan hefði verið svo mikið þær 5 mínútur sem munaði...

    Þessi geburtsvorbereitungskúrs er náttúrulega algjör snilld! Þú getur fengið alla helztu punktana á undir 15 mínútum hjá moi ;-)

    SvaraEyða
  5. ..eða á netinu á undir 5. Sem ég er þegar búinn að gera :)

    SvaraEyða
  6. Teoríurnar um barnsfæðingar á hreinu. Fínt!
    Þá er bara praktikin eftir.
    Og svo... STORU,LITLU VERÐLAUNIN!

    Lán og lukka fylgi öllu ferlinu.
    H.Ág.

    SvaraEyða
  7. Hurru - ég er ekki alveg viss um að öryrkjarnir séu yfirhöfuð að "ráða við" þessi 4-5 börn þó þeir eigi þau! En ég hef engar áhyggjur af ykkur - enda framúrskarandi bæði tvö :)

    SvaraEyða