29.10.08

Af bleyjukaupum og námskeiðslokum

Mikil þreyta hefur verið að gera sér viðvart hjá undirrituðum.   Að hluta hlítur það að helgast af því að sofa í sama rúmmi og ólétt kona, og að hluta vegna þess að maður hreyfir sig allt of lítið, og er ég farinn að finna fyrir áhrifum af því.   Þessi þreyta er víst eðlileg hjá verðandi feðrum þar sem fólk er jú djúpt tengt eftir 9 ára samband sem við konan fögnuðum á dögunum.   Ekki er hægt að pirrast yfir því, eins má kannski segja að undirbúningur sé hafin fyrir skrautlega næstu daga.

Við konan hentumst í Kaufland í dag, þar sem ætlunin var að byrgja sig upp af allskyns matvælum, þá aðallega þurrkuðum Knorr matvælum, sem maður borðaði mikið af fyrir c.a 6 árum eða svo.  Þetta er allt orðið mun hollara en það var og ekki skemmir bragðið fyrir.   Að auki þurftum við að fara versla inn ýmislegt sem tilheyrir því að taka á móti barni á heimilið, þar á meðal bleyjur... sem er soldið fyndið að vera gera, þar sem ég sá sjálfan mig eiginlega aldrei í þeim sporum.  En svona er það bara, þetta verður lítið mál.   Ég tel mig búa ansi vel að því að eiga 3 yngir systkini, en skiptingar og meðhöndlun ungbarna er mér ekki ókunn, þó ég hafi nú ekki þurft að sinna því mikið í þá gömlu daga, en ég óttast það ekki því ég hef séð þetta gert, og ef ég man rétt, hef ég allavega einusinni til tvisvar á honum Binna okkar :)   En það heyrast eflaust mótmæli úr horni við þessari yfirlýsingu og því leyfi ég því bara að koma ef kemur.

Nú við erum byrjuð að undirbúa "fæðingartöskuna",tónlist, lök, sængurföt "heimferðarföt" og annað mikilvægt þarf að fara þangað og vera tilbúið ef til þess kæmi að allt færi af stað.  Þetta er sturlun að mínu mati, en svona er þetta bara.  Eins verður barnarúminu hent upp á morgun.  Ég set inn myndir ef ég nenni því.

Við erum áfram hress og ég opnaði mér freyðivín í kvöld í tilefni þess að síðasti geburtsvorbereitungskurs er búinn, ég leyfi mér að segja að ég hafi nú gert skemmtilegri hluti hérna í Berlín en það.

Ég lýk þessu á skál og við heyrumst síðar.

5 ummæli:

  1. Já, hér eru sannarlega vanir menn á ferð. Ekki spillir hin frumlega blanda af bleyjum og freyðivíni.
    Hvað skyldi Þorvaldur segja af sinni reynslu frá því forðum, þegar kom að því að ákveða hvor skyldi framkvæma aðgerðina?

    SvaraEyða
  2. Ef mig misminnir ekki þá skipti ég alltaf á Binna en þú aldrei. Ég er nokkuð viss um það

    SvaraEyða
  3. Mönnum er frjálst að misminna eftir hentugleikum og hér er það svosem engin undantekning.

    SvaraEyða
  4. ´

    Hjarta mitt er fullt hluttekningar yfir að tenórinn skuli þurfa að sofa í sama rúmi og ófrísk kona.

    Getur hún ekki fært sig manneskjan? Er ekki bekkur eða sófi á heimilinu? Ha? Ég bara spyr.

    H.Ág.

    SvaraEyða
  5. Áfram Egill og skál!

    :)

    SvaraEyða