28.9.08

Veður var með besta móti

Þá er ég nýbúinn að skutla Unu og Þresti á völlinn, ferðin var hin ánægjulegasta og gaman að hitta hann Þröst gamla aftur eftir þennan langa tíma. Farið var á alla túrista staðina og kannski aðeins meira, þar sem ekki allir hafa gaman af þvi að sjá aðsetur íslenska sendiráðsins, en við keyrðum aðeins þar framhjá :) Veðrið lék við hvern sinn fingur, og var það auðvitða rosalega gaman, að fá loksins þægilegt veður.

Við fórum svo að sjálfsögðu að borða á "gulastaðnum" og var ekki að sjá á fólki en að það væri almenn ánægja með það. Við ætluðum líka að hendast í Sony Center að kvöldi til, til þess að sjá ljósin sem þeir varpa á kúpulinn, en viti menn, ljósakerfið var bilað!! :) Jahérna :)

Nú svo á laugardag var haldið niður á Kurfürstendamm og á meðan Una var á ráðstefnu, vorum við 3-4 að rölta í búðir og skoða, reyndar fórum við Þröstur bara í KaDeWe og Saturn sem er bara heill dagur útaf fyrir sig :) Nú á leið heim kom upp sú hugmynd að hendast að sjónvarpsturninum og reyna að fara upp. Við keyrðum af stað......en..... allt var lokað! Eða nánast, það var ekki lengur hægt að treysta á GPS tækið fína. Lokunin stafaði af línuskauta maraþoni, við keyrðum og keyrðum og keyrðum um götur Berlínar í þeirri von að komast á réttan stað, sem við gerðum á endanum. Ss leið sem á að taka um 10 mín í bíl tók rúmar 40 mínútur! Þegar við komum svo að turninum var einhver biðröð og ég fór og spurði aðeins um þetta og þá var biðröðin amk 10 mín bið, svo þegar maður er búinn að fá miða tekur við bið upp á lágmark 30 mín, sem var ekki alveg inni í myndinni á þeim tímapunkti. Við tókum því á það ráð að hendast heim á leið og út að borða í staðinn.

Veðrið er ennþá gott og ég er að hugsa um að láta söng og einhverja hugsun lönd og leið það sem eftir lifir dags, ég er mjög þreyttur og ætla að hendast í rúmmið að horfa á einhverja góða þætti sem hafa verið að safnast hérna upp eins og versti ruslahaugur, svo setur maður kannski Hin Ótrúlega Hulk á flatskjáinn í kvöld sé maður í stuði :)
Óléttuhornið:
Fórum í skoðun á sl föstudag til að heyra það enn og aftur að allt er nákvæmlega eins og það á að vera. Barnið er orðið 1.9kg, og vex skv normalkúrfu í þeim efnum. Við fengum fína andlistmynd af barninu sem ég birti hér fyrir þá sem telja sig hafa áhuga á því. Soffí hafði á orði að það virðist fá nef pabba síns og mér sýnist á prófílmyndum að það sé með varir móður sinnar. Þetta verður bara eitthvað viðundur :o) Dökka stuffið sem er fyrir andlitinu að hluta er naflastrengurinn :) en ekki "horrible deformity" eins og læknirinn okkar komst svo skemmtilega að orði.

Annars var það nú ekki fleira í bili, verið þið sæl.

NÝJAR MYNDIR HÉR

5 ummæli:

  1. Þarf varla að nefna það, en þetta virðist vera myndarbarn, eins og það á kyn til :)

    SvaraEyða
  2. Vil byrja á því að þakka fyrir mynd tileinkaða mér...

    Annars sýnist mér þetta myndarbarn minna bara ótrúlega á myndir af ungbarna-Agli sem til eru á heimili foreldraeininganna.. en það á svosem margt eftir að breytast enn..

    SvaraEyða
  3. well barnið verður allavega með ljóst hár, krullur og blá augu.

    Ji minn hvað ég er orðin spennt.

    ;-)

    SvaraEyða
  4. Myndarbarn! Ég get ekki annad en verid sammála henni Gudnýju - mér sýnist thetta verda annad eintak af "Ella-babl", eins og thú, Egill, varst kalladur á okkar heimili thegar vid vorum lítil ;o)

    SvaraEyða
  5. gaman að rekast á þig á vellinum :) Gekk allt fínt hjá okkur, geeeðveikt að fá að spila í Philharmonie :D Tojtoj með krílið og allt, lítur vel út.

    SvaraEyða