Veðrið hér í höfuðborg evrópu er ekki það besta sem maður hefur upplifað. 19°c og vindasamt. Það er í raun mjög kalt, og maður fer kannski ekki alveg út á bolnum. Það er því eins og hér sé að koma vetur, mikið af laufum út um allt og hvassviðri, svona þetta klassíska íslenska haustveður.
Það er komin mikið tilhlökkun eftir 14.júlí, en þá er þessu skrítna og pirrandi æfingaferli lokið, og við tekur daglegur lærdómur fyrir Lofer námskeiðið. Það verður voðalega gaman, er búinn að vera syngja yfir melodrama hlutann af Pagliacci sem er mitt stærsta framlag til þessa námskeiðs, og það er bara ótrúlega flott og skemmtilegt að læra. Mikið drama á ferðinni.
Af óléttu og barna málum er það að frétta, að ljósmæðra dótið er búið að segja að íslenska sjúkratryggingaskírteinið dekki ekki kostnað við þjónustu ljósmæðra.........samt segir TR að við eigum rétt á allri þeirri þjónustu sem íbúar þessa lands eiga rétt á! Þetta er eins óskiljanlegt og framast getur verið. Við erum með íslenska sendiráðið í málinu, og erum að vona að ekki þurfi að koma til þess að við þurfum að fara að leita að nýjum stað til að ganga í gegnum þetta alltsaman. Líklegast þurfum við þá að punga út einhverjum fjárhæðum til að geta gert þetta svo sómi sé að, og ekki eitthvað andskotans rugl. Ég átta mig bara ekki alveg á því hvernig þetta getur verið svona flókið. Annaðhvort virkar þetta sjúkratryggingaskírteini eða ekki.......!! Helvítis rugl sem er svosem týpískt fyrir bæði Ísland og þýskaland.
Jæja, nenni ekki að hugsa um þetta meira bili.
Hér hafið þið svo plakatið vegna sýnngarinnar á sunnudag.

oo hvað ég væri til í að sjá þessa sýningu !
SvaraEyðaHeyrðu væni - ég er sko ekki að fara koma og heimsækja ykkur í eitthvað haustveður.
SvaraEyðaReyndu endilega að redda veðrinum áður en ég kem - gerir það bara um leið og þú tæklar TR, ljósmæðurnar og sendiráðið.
Smá pressa.
:-)
Iss piss á þessar æfingar. Þú ert massa góður ;)
SvaraEyðaMá ég annars ráða þig sem heimiliskokk hingað á Torstrasse? Fæ alltaf vatn í munninn við að lesa bloggið þitt, slurp!
Nú fer veðrið að lagast hjá ykkur því lægðirnar munu stefna yfir sólarlandið á næstunni. Nú er bara að halda upp á það með því að afgreiða þessa ágætu óperu með stæl.
SvaraEyðaÞetta hlýtur að vera einhver misskilningur með tryggingamál á Íslandi - í það minnsta.
Vei Herdís Anna!
SvaraEyða