12.7.08

General, og ýmislegt...

Í dag er generalprufa á Fledermaus, og ég bara arfaslakur, þar sem þetta á ekki eftir að verða neitt mál. EN það sem er ölluverra er að mér hefur tekist að bráka rifbein í æsingnum á sviðinu. Það verður því ekki mjög þægilegt að hlaupa um í dag, og syngja meðan maður stendur upp! EN svona er það nú bara, blóð sviti og tár, allt fyrir listina.

Við Soffía hentumst í littla bæjarferð á miðvikudaginn, fórum m.a í H&M og frúin verslaði einhverskonar óléttufatnað, sem er ansi fyndin í sniðinu verð ég að segja, en hann virkar, og það er kannski það sem skiptir mestu máli. Við fórum svo á steikarstaðinn Maredo, og fengum okkur að borða áður en heim var haldið. Nú gær var svo heimagerð Pizza a la Soffia, og var hún ljúffeng sem áður, ef ekki bara betri. Það fór nú smá vinna í þá pizzu þar sem ekki var keypt rétt sósa á hana og fór ég þá í leiðangur að finna nýja sósu, í þeirri ferð minni komst ég að því að Kaiser's (annað af Hagkaupunum nálægt okkur), var bara hætt. Þá fór ég í Lidl, sem er einskonar "Bónus"-búð, og þar var ekki til sósan góða, þvínæst var haldið í Plus, sem er eiginlega ódýrari en Lidl, eða svipuð, og þar var heldur ekkert til. Þá fór ég að lokum í Reichelt, sem átti til 2 tegundir af umræddri sósu, sem ég keypti bara báðar.

Óléttuhornið:
20 vikna sónar er yfirstaðinn og allt lítur vel út, nema einhverjir áhættuþættir á "pre-eclampsia" (meðgöngueitrun), sem á að doubletékka eftir 4 vikur, þannig að það er ekki eitthvað sem þarf að fara hafa áhyggjur af strax. Þetta er auðvitað mjög alvarlegt mál en svosem ekkert annað að gera en bíða, en læknirinn veit allavega af þessu. Í sónar tel ég mig hafa greint hvers kyns barnið er, en það er ekki rétt að upplýsa það hér :) Gaman verður að sjá hversu klár ég er að lesa sónarmyndir. Við erum aðsjálfsögðu byrjuð að reyna að hugsa upp einhver nöfn á hvort kynið sem er, en líklegast er það þannig hjá öllum að ekki erum við nú sammála. Það verður því gaman að sjá hvað kemur útúr þessu á endanum

Annars er bara allt gott að frétta, virðist vera hætt að rigna........allavega í einn dag, og það er bara gott mál, þar sem maður verður hálf þunglyndur á svona skammdegisveðri. Frumsýning á morgun, og svo skilst mér að flestir ætli á eitthvað fáránlegt fyllerí eftir á........sem er ekki líklegt að ég taki þátt í að svo miklu leiti, þar sem ég þarf að mæta í vinnuna daginn eftir, en hjá flestum þarna þá er skólinn bara búinn eftir þetta, þannig að maður skilur það svosem vel.

1 ummæli:

  1. "....þar sem ekki var keypt rétt sósa á hana..." - var þetta skot á Soffíu?????

    mig minnir nú skv draumnum sem mig dreymdi fyrir löngu síðan að þetta sé stelpa, og talandi um nöfn, er Geirþrúður þá ekki fyrirtaks nafn; ég meina Gertrud.. þýskararnir ættu nú að geta sagt það :D

    nei annars, er ekki miklu skemmtilegra að bíða bara spennt í nokkra mánuði og láta kynið koma sér á óvart, þannig verður spenningurinn enn meiri ;)

    SvaraEyða