Já það styttist nú óðum í fyrstu opinberu tónleika tenórsins á erlendri grundu. Ekki ætlar það þó að ganga alveg þrautarlaust fyrir sig :) Dísa sópran, sem ætlaði að syngja þetta með okkur, og við vorum búin að skipta prógramminum bróðurlega á milli okkar, hefur tekið upp á því að verða bara alvega fárveik og varla talandi í kjölfarið, hvað þá syngjandi. Þannig að það er útlit fyrir að tenórinn syngj þessa tónleika einn, og Hilmar framkvæmir þá eflaust einhvern gjörning á orgelið í staðinn. Auk þess þarf ég nú líklegast að bæta við mig nokkrum lögum líka. Þó er Hilmar að ræða við aðra sópran söngkonu um hugsanlega þáttöku, það væri bara flott er hægt væri, en ég geri mér ekki vonir, þar sem tónleikarnir eru jú á föstudag.
Nú í gær hringdi Hilmar í mig um kl 13, og sagði mér að við værum að fara syngja í heimahúsi hérna í bæ kl 20. Þetta kom nokkuð flatt upp á mig, en ég henti mér af stað kl 17:30 og var komin frekar snemma og þá náðist ekki í Hilmar. Þannig að ég settist bara í sólina, og fékk mér að borða á meðan ég lærði texta fyrir tónleikana sem ég er að syngja á á sunnudag. Það var mjög fín og nauðsynleg stund. Svo heyrði ég frá Hilmari, þá var hann að ljósrita einhversstaðar úti í bæ, með Hrólfi Sæmundssyni, baritónsöngvara, sem ætlaði víst að syngja með okkur á þessum heimahústónleikum. Allt gekk stórvel fyrir sig og við komumst stóráfallalaust frá þessu. Hrólf þekki ég lítillega frá samvinnu okkar síðasta sumar, alveg ótrúlega falleg og heilsteypt rödd.
Í kvöld er svo "generalinn" á tónleikunum okkar í Hans Eisler, Hrólfur ætlar að mæta á svæðið og syngja með mér, það verður nú bara gaman. Ég er svo búinn að vera í sambandi við þá Nordischer Klan menn, og hér á bæ er ekki enn búið að taka ákvarðanir um ferðamáta, þó mér finnist nú lestin koma mjög sterklega til greina, þar sem bílaleigubíll yrði allt of dýr, fyrir mig, þ.e, þar sem ég þyrfti líklega að borga hann og get ekki treyst á að fá bæði bensín og leigu greidda að fullu. EN þetta kemur í ljós.
"..and worst of all, like the crowning turd in the water pipe"[Lord Melchett, Blackadder], þá er ég kominn með eitthvað tak í bakið......hef svosem fengið þetta áður og er mjög óþægilegt, en það kemur ekki í veg fyrir að ég geti sungið, sem betur fer.
Hitinn hækkar og hækkar, og ekki annað hægt að segja en að maður sé hægt og rólega að fá smá lit í kinnarnar :)
Þú fagnar bara uaðvitað skorti á sóprönum - hefur sviðið einn :)
SvaraEyðaVarðandi allar dásemdir hitans - ég sé ekki betur - svona ef ég les milli línanna - að brátt verði ekki notuð jafn fögur orð um hitann og hingað til. Meðal annarra orða, eruð þið með loftkælingu?
Ég get nú alveg fullvissaði þig um að millilínulestur er greinilega ekki þitt fag :) Þar sem það er ekkert sem heitir of mikill hiti í mínum huga.....ég fagna honum gífurlega :)
SvaraEyða