Þá er mjög annasamri og skemmtilegri viku að ljúka.
Fyrst ber kannski að taka fram að, sem fyrr, er David Jones algjörlega búinn að ná að bjarga mér, og í þetta skipti held ég að honum hafi tekist að láta mig fá síðasta púslið í spilið. Nú líður mér allavega eins og ég geti nánast gert það sem mig langar með röddinni. EN það vantar náttúrulega ennþá upp á á ýmsum öðrum sviðum, það er nefnilega ekki alltaf nóg að vera með góða rödd, eða svo er manni sagt :)
Ég er búinn að kíkja 2svar á veitinga stað með David, ásamt, fleirum, og það var mikil skemmtun sem fyrr. Kallinn er í fullu fjöri þrátt fyrir að kenna 8 tíma á dag, og fljúga fram og til baka um alla Evrópu, og hann á bara ár í 60. Vona að maður verði svona hress á þeim aldri.
Ég er allavega búinn að vera mjög duglegur í ræktinni og í mataræðinu, þó það sé einhverrahlutavegna ekki að skila sér af vigtinni. En ég gefst ekki upp.
Veðrið hérna er nú bara búið að vera með ólíkindum, m.v það sem maður er vanur allavega. 15-22 stiga hiti á hverjum degi. Mér líður bara eins og ég sé loksins komin heim :)
Við tekur svo að læra læra læra texta fyrir næstu viku, því þá eru tónleikarnir í Gristow sem ég hef áður sagt frá. Og svo á sunnudeginum eru enn aðrir tónleikar, þar sem nemendur Janet stíga á stokk og syngja nokkur vel valin lög. Mikið að gera og ekkert nema stórgott um það að segja. Svo styttist óðum í Rhodosferð nokkra sem var tekin ákvörðun um að fara í þegar Evran var aðeins 95.kr. Sú ferð hefur heldurbetur bætt á sig síðan þá og í raun lítið hægt að gera í því núna. Ég tók nefnilega eftir því að þeir eru búnir að rukka alla ferðina á VISA kortið mitt, og því er of seint að hætta við :) Íslandsferð er í pípunum, en verðlagið á fluginu er slíkt og þvílíkt að það hálfa væri nóg. En meira um það síðar.
Ég læt þetta gott að sinni. Bis bald
Hæ hæ,
SvaraEyðaÉg hef verið að fylgjast með þér en hef ekki kvittað fyrir. Langaði einnig að forvitnast hvort þú þekktir eitthvað af íslendingum í Berlín sem vantar meðleigjanda? Er að spá í að flytja út í haust og nenni ekki alveg að búa ein. Þætti vænt um ef þú gætir spurst fyrir.
Kveðja Bentína
bentinamezzo@gmail.com