11.4.08

Gristow, 9.maí kl.18

Fyrirsögnin uppfræðir fólk um fyrstu tónleika mína á erlendri grund. En búið er að staðfesta við okkur Hilmar, og núna hana Dísu sópranskvísu, að við erum ráðin til að halda tónleika í gamalli krikju í bænum Gristow, sem er rétt utan við bæinn Greifswald hérna í norður Þýskalandi, þetta er um 257 km ferðalag á bíl, sem er líklegt að við leigjum bara, þar sem það kostar svipað og að taka lestina. Þetta er, eins og áður sagði, hluti af listahátíðinni Nordischer Klang sem er gífurlega vinsæl norræn listahátið og hefur verið haldin reglulega allavega síðan 1999, þó hef ég heyrt raddir sem segja 17 ár, en ég veit ekki um það.

Þetta er allavega mjög virt hátíð, og hana sækja mjög margir. Ég er því stóránægður með þetta, vandinn sem snýr að okkur listafólkinu er að við erum í kirkju og þar er bara gamalt orgel, þannig að það er ekki hægt að fara alvega með hvað sem er, t.d eins og Hamraborgina og Sprett. En það er samt sem áður um auðugan garð að gresja. Við hittumst semsagt í dag, þrenningin, og æfðum saman nokkur lög, sem gekk bara stórvel, enda vant og prófessional fólk á ferðinni. Ég settist svo með Himma á kaffihús eftir á og við settum upp prógrammið undir einum kaffibolla (í mínu tilfelli "caramel macchiato")

Hér heldur veðrið áfram að leika við hvern sinn fingur í leiðindum, og lítið gaman að tala við hann Ásgeir Pál stórvin minn í Salzburg, sem segist vera með 20 stiga hita nánast allan sólarhringinn. En ég vona að þetta fari nú að skána hjá okku. Hún Dísa sem er með okkur á þessum tónleikum sagði mér áðan að fimmta hvert sumar er bara rigning og leiðindi hérna í Berlín, og það var í fyrra, þannig að þetta fer að batna.

Hérna fer svo að styttast í innflutningspartý sem verður haldið 26.apríl, og þá verður vonandi hægt að taka einhverjar myndir og henda inn á netið. Það hefur ekki verið mikið af myndatökum síðustu daga, og því ekki mikið að setja inn. Svo eru hugsanlegar aðrar stórfréttir af mér, en þær verða að bíða því forvitin skita fær ekki að vita. Maður má ekki eyða öllu púðrinu í einu bloggi, þá nennir engin að lesa næstu blogg :)

Núna í kvöld og um helgina er ég að fara henda saman og skanna inn allar nótur sem við þurfum að nota á tónleikunum þann 9.maí, ásamt því að byrja að æfa mig. Loksins fær maður eitthvað að gera. Það birtir aðeins yfir manni við það. Þó hefur geðið aðeins lést eftir að ég fór að hreyfa mig, en ég hef þó þyngst, þrátt fyrir að vera búinn að taka allt í gegn, en það þýðir ekki að ég hafi ekki grennst. Ég er nú bara búinn að vera að í 2 vikur......það er ekkert að marka, en vöðvamassinn hefur aukist, og það er fyrsta skrefið í góðri brennslu á fitu.....það og að borða endalaust. Þetta gengur allavega nokkuð vel, þó maður sé þjakaður af harðsperrum og vöðvatitringi eftir átökin. Jæja, það er nóg komið í dag, og ég punda hérna inn einhverju í næstu viku. Góða helgi.

4 ummæli:

  1. ooo bannað að gera mann svona forvitinn! ég veiði þetta uppúr þér :D

    en gaman að heyra að hlutirnir eru að detta í gír og þú finnir þér eitthvað sniðugt og skemmtilegt að gera :)

    SvaraEyða
  2. Ég er nú bara mjög pirruð yfir þessu ... þoli ekki þegar fólk byrjar og hættir svo ...ohh

    En annars, góða helgi þið þarna!!

    :-)

    SvaraEyða
  3. Þó Gristow, sé nú ekki fallegasta nafn sém ég hef séð á þýsku, þá markar það upphaf á einhverju sem gaman verður að fylgjast með. En það er með þetta hitt..... Við BKBen erum nokkuð sammála þar, en gerum okkur samt einnig grein fyrir því allt gott gerist hægt.

    SvaraEyða
  4. ÉG hef aldrei sagt að hér sé 20°c hiti allan sólarhringinn. Það er 25°c hiti sem ég minntist á.

    SvaraEyða