22.3.08

Nice og Monaco. Franska Rívíeran.

Þá erum við komin til Nice í Frakklandi. Lögðum af stað í heljarinnar snjókomu frá Lichtenstein, því skal ekki neitað að tilhlökkunin var búin að vera mikil að vakna á þeim stað og drekka í sig fjallasýn sem við sáum aðeins lítillega í myrkrinu þegar við komum til Vaduz. En í staðin fengum við þó mjög fallegt veður, en það var bara ekkert skyggni. Við tók svo löng keyrsla um Alpana, þar sem við vorum í mokandi snjó og slabbi, þangaðtil allt í einu við fórum í gegnum 1.km löng göng, og komum út hinumegin á þurran og auðan veg, og ekki snjókorn í augsýn neinstaðar. Þetta var án efa eitt það skrýtnasta sem ég hef upplifað lengi. Eftir a hafa ekið á ofsaferð í gegnum hundruði ganga(sem var voða gaman fyrstu 3-4 skiptin), komum við loks að landamærum Ítalíu, þar sem við þurftum ekkert að sýna eitt eða neitt, bara keyrðum í gegn. Í ölpunum var hitastig um frostmark. Eftir að við vorum búin að keyra í Ítalíu um klukkustund var hitinn orðinn 10-12°C oeg eftir annan klukkutíma vorum við komin í 15,5. Sem var mikið tilhlökkunarefni, því það bara á að vera einhversstaðar gott veður. Þegar nær dró sjónum fór svo að kólna aftur og við tóku göng eftir göng eftir göng, og allt eins, þetta var svipað eins og keyra Húnavatnssýslurnar.

Þegar við komum til Monaco var klukkan orðin rúmlega fjögur, og við keyrðum sem leið lág niður að höfninni, þar sem við sáum alveg svakalegar snekkjur. Ein var meira að segja það svakalega að þar var þyrla!!! Veðrið var þvímiður ekkert spes, mjög hvasst og sólarlaust og 12 stiga hiti. Við gengum aðeins um, en vegna þess að það var föstudagurinn langi, var flesta allt lokað. Fengum okkur svo helvíti góða pizzu og héldum upp á hótelið okkar sem er í bænum "Beaulieu sur Mer" mitt á milli Nice og Monaco (c.a 8 km frá Monaco.)

Næst er ferðinni heitið til Cannes (um 30 mín akstur), þar sem við munum gista eina nótt, eftir að hafa skoðað okkur um. Veðrið í dag lítur vel út og er spáð skýlausum himni, 15 stiga hita og þvímiður talsverðum vindi í dag. En við látum það ekki á okkur fá. Svo er planið að byrja að keyra heim á leið á sunnudag, en þá í gegnum Frakkland, sem leið liggur gegnum Lyon, Dijon og Nancy, þaðan svo beint yfir til Þýskalands.

....meira síðar.

1 ummæli:

  1. Vildi bara óska ykkur gledilegra páska. Alltaf gaman ad fylgjast med :o)

    Kvedja úr Ishøj
    Ása og fam.

    SvaraEyða