Ég talað í dag við menn sem sjá um tryggingamiðlun á Íslandi, og hef ég tekið þá ákvörðun að koma þeim peningum og verðmætum sem ég á á íslandi undan eitthvað annað. Það á vist að vera voða sniðugt að fjárfesta núna, þar sem flestir sjóðir eru að jafna sig og á uppleið eftir langa niðurlegu. Ég hugsa sem svo að það getur varla verið verri að láta peningana rotna á Íslandi en einhversstaðar annarsstaðar. Einhverjir myndu eflaust segja við þessu að ástandið sé ekkert skárra annarsstaðar, því allt er á niðurleið allsstaðar, það er kannski rétt, en maður verður svosem að hofa á það að sumstaðar eru sterkari bakhjarlar en heima á Íslandi.
Hér lagast veðrið ekki mikið og útlit er fyrir að hvert sem við förum í páskafrí verði leiðinda rigning og kuldi...... Það er alveg ótrúlegt hvernig hlutirnir haldast í hendur við við að gera manni lífið leitt, en við látum það bara vera gaman, og erum jafnvel að hugsa um að keyra til Parísar í staðinn, þar sem þar virðist ætla að vera skynsamlegra veður, ekki veit ég hversu skemmtilegt er að keyra þar, en maður þarf ekki alltaf að hugsa um það :)
Ný uppskrift er væntanlega í Matarhornið, en það er Hunangssinnepsgljáður hnetu....æ þar er ekki til neitt á íslensku sem er "peanutcrusted"allavega þannig er það nú, með salati. Einföld uppskrift ef uppskrift má kalla. Meira síðar.
En það styttist óðum í sumarið sem kemur með allri sinni gleði og ég hlakka mikið til að
Það má velta því fyrir sér hvort það væri rétt ákvörun á þessum tímapunkti, þegar hver evra kostar ISK125 í stað ISK85 fyrir ekki svo mjög löngu síðan, að flytja krónur yfir í evrópumyntina.
SvaraEyðaHér keppat pólitíkusar, seðlabankamenn og hagfræðingar í háskólum við að hvetja fólk til að rasa ekki um ráð fram við þær aðstæður sem nú eru uppi.
Það þykir fremur jákvætt að hlutabréfaverð er farið að þokast upp á við í hinum stóra heimi, ekki síst vegna góðrar afkomu nokkurra banka í "the US og A" sem tilkynnt var um í gær.
Fjármála- og efnahagzspáhornið er í boði miðaldra bindislauss manns í rauðri skyrtu, þessu sinni, þar sem þessir ungu í hvítu skyrtunum með bindi virðast hafa horfið af einhverjum ástæðum.