Jahá, þá er langri helgi lokið, á miðvikudaginn komu foreldrarnir ásamt yngstu systkinum í heimsókn. Dagurinn hófst á því að fara út á Tempelhof Flugvöll að ná í bílinn, sem var hvorki meira né minna en Renault Espace, fínasti bíll og nokkuð kraftmikill. Ég keyrði Soffíu í skólann og fór svo beint á Tegel til að sækja fólkið, einhver seinkun var á flugi, þannig að ég keypti mér hálfan líter af vatni á 300 kall og m&m poka á 200 meðan ég var að bíða. Merkilegt hvað það er sem veldur því að verðlagið sé svona á flugvöllum!!!! það er allavega ekki skortur á viðskiptum sem skapar hátt vöruverð. Þetta er bara einhverskonar rugl efnahagssvæði, sem er svosem ekki nýtt, fyrir mér allavega.
Nú við byrjuðum helgina á að fara í Kurfürstenstr og borða smávegis góðgæti sem Soffía mín var búinn að útbúa fyrir þreytta gesti. Famílían átti góða stund saman hérna í 2-3 tíma, áður en ákveðið var að fara í smá bíltúr á Potsdammer Platz að skoða sig um. Eftir túrinn var farið að borða á Cancún, og það var sem fyrr nokkuð fínn matur. Daginn eftir var sofið út, eða alveg til kl 9:30, ég vaknaði þó rétt fyrir kl 8 til að vinna. Svo var haldið áleiðis niður að Beliner Dom, þar sem hún var skoðuð í bak og fyrir, eftir að tókst að finna bílastæði á skikkanlegu verði. Gengið var upp "Unter den Linden" sem er líklegast ein þekktasta gatan hérna um þessar mundir, stoppað var stuttlega í mat á "Cafe Via Nova" á Universitäts Strasse, þangað kíkti Hilmar Örn að hitta okkur. Við gengum svo öll saman upp að Brandenborgarhliðinu, þar sem Hilmar sýndi okkur "Raum der Stille" herbergið sem er einmitt í hliðinu sjálfu, mjög magnað að koma þangað.
Nú svo yfirgaf Hilmar okkur og við skelltum okkur í parísarhjólið sem búið er að setja upp nálægt Potsdammer Platz, sjá má skemmtilegt vídeó af þeirri för hérna :). Þvínæst var haldið í Alexa, verslunarmiðstöðina, þar sem fólk missti sig í innkaupum :) Eftir það var svo farið á frábæran steikarstað, sem er mjög þekktur og virtur hér í Berlín, "Block House". Daginn eftir var svo haldið á Kurfürstendamm, sem er ein aðal verslunargatan hérna, og er rétt við dýragarðinn. Þar fór kvenfólkið í fatabúðir og við strákarnir skelltum okkur í 6 hæða raftækjabúðina sem er svosem ekki í frásögu færandi. En þetta var stórskemmtilegt allt saman. Við hittum svo Hilmar og Andra son hans þegar við vorum að klára og keyrðum saman heim í kurfürsten, þar sem fólk fékk smá fordrykk áðurn en haldið var á "Buffalo steikhús", þar var borðað og rætt lífisins vandamál. Svo skildu leiðir og Hilmar og Andri héldu heim á leið á meðan við familían röltum okkur heim á Kurfürstenstr, þar sem fólk datt í svosem eins og eina rauða fyrir svefninn. Veðrið var bara held ég eins og best verður á kosið fyrir svona árstíma, og voru þau heppin að lenda ekki í roki og rigningu sem var komin í gang þegar ég skutlaði þeim á flugvöllin. Allt í allt frábær helgi og skemmtilegar stundir.
Nýjar myndir komnar hér til vinstri og meira síðar héðan frá Berlín.
Þakka bara kærlega fyrir mig, og okkur :)
SvaraEyðaMaður verður bara að kíkja aftur og þá kannski aðeins lengur!
Parísarhjólið var nú snilldin ein og ég held ég hafi ekki hlegið svona mikið lengi! "Heyrðu, Halló!" haha
Langði bara að þakka ykkur fyrir móttökurnar. það var mjög gaman að koma til ykkar, og ótrúlegt hvað við gátum skoðað mikið á stuttum tíma. Það er síðan spurning um myndbandið sem þú settir inn um upplifun sumra á parísarhjólinu,en það er gott að stór hluti skemmti sér ágætlega þar.
SvaraEyðaÉg er búin að hlæja mig máttlausa yfir myndabandinu í parísarhjólinu "eru þeir búnir að stoppa okkur, halló" ....aðeins of fyndið
SvaraEyða