Fólk hefur áhyggjur af neikvæðni þeirri sem birtist hérna á þessu bloggi, en þetta er að einhverju leiti ýkt, þó vissulega séu vandamálin fyrir hendi. Ég tel að ég sé núna kominn á þann stað í geðinu að ég geti loksins farið að slaka aðeins á. Ég bíð þá bara eftir internetinu, það er ekki svo slæmt, svona er þetta bara :)
Nú helginni er lokið með tilheyrandi kulda, og hægt er að segja með sanni að ekki hefur verið svona kalt síðan við komum hingað þaðnn 7.janúar. En þetta er væntanlega bara svona eitthvað skammtíma rugl, sem leiðréttist fljótlega. Við hjónaleysin á Kurfürstenstrasse hentumst í Brunch hjá herra Hilmari Erni á laugardagsmorgun, en þetta er um 50 mín ferð með lestum frá heimili okkar. Fengum þar dýrindis brauð, egg, álegg og safa, bara svona hefðbundinn morgunverður og mjög góður. Nú að því loknu opnaði kallinn freyðivín með þeim orðum að svona lyki alltaf fínum morgunmatarboðum hér í Þýskalandi, ég veit svosem ekki með það, en mig rámar nú samt að ég hafi einhverstaðar heyrt það áður. Að loknum morgunverði var haldið í göngutúr um Penzlauer Berg, og í skransölu sem var líka með hjól, þar sem laugardagurinn átti jú að fara í það að versla hjól, svo maður geti nú farið að hreyfa sig eitthvað. Hjólin þar voru vægast sagt ljót og ekki heilbrigðu fólki bjóðandi, en það þykir víst fínt að vera á svona "antique" hjólum. Það var semsagt mjög fljótlegt að afgreiða þá búð, síðan var haldið að sjónvarpsturninum þar sem Hilmar var með einhver sambönd, en það er þýskur kínverji sem er með hjólaleigu, og hann er að selja hluta af hjólunum sínum á 100EUR, sem er svosem ekki mikið. En þetta eru 3 gíra viðbjóðir, sem eru mér ekki sæmandi og því var það fljótafgreitt líka. Við skelltum okkur svo bara á Starbucks, þar sem, í frostkuldanum, var pantaður karamellu frappuccino. Hilmar fékk aðsvif sökum kulda en þótti frappinn góður engu að síður. Síðast lá svo leiðin á "Big Johns Bikes" sem er bara rétt við Berliner Dom, þeir eru með notu hjól og ný, og allt á 20% afslætti þessa dagana, þvimiður var lokað hjá þeim þannig að við ætlum að reyna að fara í dag og gera einhver góð kaup.
Sunnudagurinn fór svo í göngutúr um svæðið umhverfis okkur, og það er ekki laust við að maður hlakki til að það fari að vora og sumra, þar sem umhverfið er gífurlega fallegt.
Ég er sjálfur greinilega að fara uppskera heilsubrest eftir allt ruglið hérna, þar sem maður er loksins farinn að slaka vel á, og líkaminn er að byrja að vinna úr því núna, með tilheyrandi veikindum, ég er sárþjáður í hálsinum með einhverskonar þurrkdæmi, og eins er ég með höfuðverk sem er þó ekki óþolandi eins og er. Ég vona bara að þetta taki fljótt af, þar sem styttist óðum í Frakkland. Líklegast þarf ég að aflýsa tímunum mínum í þessari viku, þar sem ég bara get ekki sungið í þessu ástandi, slím á raddböndum og þurr háls, er bara ekki málið þvímiður. En ég er duglegur að taka vítamínin mín og er hættur í áfenginu í bili, til að flýta fyrir bata. :)
Geturðu ekki fengið þér norska brjóstdropa t.a. samaeina remedíuna við heilsubrestinum og áfengisneysluna ?
SvaraEyðaég vona að ykkur gangi vel að finna þóknanleg hjól!
SvaraEyðaSem og að netið fari nú að komast til skila á réttan stað!
Vona að þú farir nú að rífa þig uppúr þessari vitleysu (veikindum)
bráðum bara 8 dagar!