Jæja, það hefur marg gerst á síðustu tveimur dögum, eiginlega allt...þannig séð.
Nú þar er kannski best að byrja á byrjuninni, en á mánudags eftirmiðdag fórum við frúin að versla okkur hjól. Leiðin lá sem áður sagði í verslun við Berliner Dom sem heitir "Big Johns Bikes", það voru fín hjól þarna en engin sem var stór og engin sem hét John...sem er svosem aukaatriði :) En það var 20% afsláttur á þeim hjólum sem ekki voru þegar með afslætti, og það var bara fínn díll. Ég keypti mér svakalega fínt Kalkhoff Voyager Fitness hjól, og er súper ánægður með það þó það sé einni stærð of stórt, þá líður það áfram eins og silkiþráður í mildri hafgolu. Fyrsta alvöru hjólið sem ég eignast um ævina og ég er bara nokkuð ánægður með að fara fitness leiðina í staðin fyrir sightseeing leiðina sem Frau Jonsdottir fór. Reyni að henda inn myndum af gæðingnum við fyrsta tækifæri.
Nú annað stóra málið sem leystist í vikunni er internettengingin. Routerinn kom á þriðjudaginn, og við komin í samband 10 mín síðar. Mikill hraði er hérna og ég er ekki frá því að það sé hraðvirkara að vinna héðan í fjarvinnu en heima á íslenska vinnustaðnum!! Alveg hreint ótrúlegt! Það litla sem ég er búinn að nota torrent hérna segir mér að ég sé að dl þar á bilinu 250-450 kB/s, sem er bara fínt. Routerinn virðist reyndar eiga eitthvað erfitt með það og gefst upp af og til, en líklega þarf ég bara að stilla þetta eitthvað aðeins til að fá þetta í balance.
Heilsufarið er ekki mjög gott til söngs þessa dagana, mér líður bara nokkuð vel, en röddin er frekar hás og viðkvæm. Janet sagði að ég ætti bara að hvíla mig og mæta frekar alveg heill heilsu, þýðir ekkert að vera ana af stað í eitthvað rugl. Ég er að gera það og er byrjaður aftur að reyna að hugleiða eins og ég gerði alltaf í gamladaga, þar sem ég nú alla daga heimavið. Eins ætla ég að fara í góða hjólatúra í hádeginu, og létt Yoga hérna í stofunni. Mataræðið er tekið nokkuð vel í gegn en þó ætla ég ekki að neita mér um allt, aðeins draga verulega úr því, og hef byrjað á bjórnum, hann verður ekki drukkin hérna daglega eins og áður, heldur hugsanlega aðeins til hátiðarbrigða, ef ég þarf að verðlauna mig með einhverju og eins ef gesti ber að garði, þá drekkur maður til samlætis eins og góðum gestgjafa sæmir.
Nú er ég að skoða flug til Parísar, til að komast í audition þar 15-16 mars nk, fann eitthvað um daginn á 89 Evrur fram og til baka, en það er nú komið í 120EUR, þannig að þetta fer hækkandi. Ég þarf helst að hafa hraðar hendur til að klára að útbúa umsóknina, og bóka flug. Ætla að reyna að klára þetta fyrir helgina og vonandi að senda þetta allt út líka.
Annars er ég að fara út í kvöld með Janet og fleirum, í KaDeWe þar sem á að fá sér kampavínsglas, og svo verður haldið út að borða, hvert? jahh, það veit ég ekki. Hendi því inn næst.
Bis Später
Til hamingju. Meiri háttar hvað allir Íslendingar gerast miklir heimsborgarar og kaupa sér flott hjól þegar þeir eru komnir burt frá Klakanum.
SvaraEyðaKauptu bara nóg af lásum og keðjum til að tryggja áframhaldandi eignaraðild að gripnum. ;)
Nei vá en gaman að sjá hvað allt gerist svona allt í einu.. er það ekki annars svoleiðis með lífið bara yfir höfuð, hlutirnir ekki alveg að ganga eins og maður helst vildi og svo bara Búmm! gerist allt í einu sem maður vildi... væri ekki hægt að flokka það svolítið undir The Secret? ;)
SvaraEyðaÉg samgleðst með hjólið. Passið ykkur bara á krókódílamönnunum, sem leynast í dökkum skotum í hvítum hönskum að borða lakkrís(catch my drift)
SvaraEyða