Húsnæðisleit ásamt vinnu er efst á forgangslistanum þessa dagana, þar sem ég get ekki án þess verið. Maður leyfir sér ekki alveg að vera túristast, það er skrítin tilfinning. Skoðuðum tvær íbúðir í dag, sú fyrri var þess eðlis að ekkert eldhús var innbyggt, sem mér skilst að sé einhver lenska hérna í landi karrýpylsunnar. Og konan sem var að sýna var nú ekkert allt of jákvæð, hún byrjaði á að segja okkur að það yrði efrfitt að fá fá íbúð þar sem tekjurnar mínar eru ekki frá þýskalandi og þarafleiðandi ekki hægt að aðhafast neitt ef ég borga ekki, þar sem ég á ekki neitt :) Og svo sagði hún að almennt væri ekki hægt að leigja í stuttan tíma, þ.e undir einu ári, það væri bara lágmark 2 ár. Maður var á þessum tímapunkti dottinn í hálfgert þunglyndi, þar sem þetta má alls ekki taka langan tíma. Við erum jú að fara úr íbúðinni á mánudaginn kemur.
Næsta íbúð sem við skoðuðum er að flestuleiti frábær, allt nýtt, við yrðum í raun fyrstu íbúarnir í nýuppgerðri íbúð, en.....hún er ekki með svalir, sem okkur þykir algjört möst. 3 risastórum herbergjum, fallegu baðherbergi en litlu eldhúsi sem þó dugar. Sölumaðurinn þar sagði ekkert skipta máli, við bara leigjum helvítið, og það var vissulega gott að heyra það. Núna erum við að byrja að skoða soldið frá upprunalegu plani, þar sem það gæti verið hentugra á heildina litið. Og maður er í raun alveg kolruglaður af þessu öllusaman.
Ég keypti mér GPS tæki í gær til að hjálpa til og það hefur þegar sýnt mátt sinn í verki með einstaklega góðri þjónustu.
Í matinn í gær var einstaklega gott Knorr pasta, brauð og salat með melónu, og í kvöld eru það kjúklingabringur með brokkolí, sveppum og kirsjuberjatómötum.......í Knorr sósu :)
Á morgun er svo stefnan að reyna að skoða 1-2 íbúðir en ekki er búið að hringja, þannig að ekki veit ég hvað gerist í því, mér finnst líklegt að við förum á hótel í næstu viku, en vonandi reddast þetta bara.
Hvenær er hægt að bóka sig í heimsókn?
SvaraEyðaGangi þér klikk vel.
Ciao helen
Það er hægt fljótlega eftir að komin er íbúð :) Og vonandi fer það bara að detta í gírinn.
SvaraEyða