Þetta er ekki allt að ganga eftir áætlun eins og gaman hefði verið. Við erum enn ekki búin að finna íbúð, en þó erum við að fara skoða nokkrar, eina í dag og 2 á sun að mig minnir. Þetta er gífurlegt álag að þurfa að standa í þessu, skil ekki alveg hvað ég var að hugsa. Það sem gerir þetta margfallt erfiðara alltsaman er að við eigum svo von á stórri búslóð, hún lagði af stað í gær ef ég skildi þetta rétt, og þá höfum við c.a 1-2 vikur að finna einhvern stað. Þannig að eins og maður reynir nú að halda jákvæða skapinu sem mest uppi, þá kraumar alltaf undir niðri eitthvað sem er mjög raunverulegt og erfitt.
En allavega erum að fara skoða nokkrar, og við getum líka í raun farið aðeins útfyrir og verið í ótrúlega fallegum nýjum íbúðum á sama verði og við erum búin að vera skoða, en þá er farið að verða vandamál að nýta sér lestasamgöngur. En auðvitað á maður þá bara að byrja að hjóla :) Ég brosi því gegnum tárin þessa dagna, en verð að treysta því að þetta gangi allt vel. Erum að skoða nokkur hótel sem við þurfum að skella okkur á á mánudag. Þá er helst verið að leita að hóteli með þráðlausri tengingu þar sem ég get unnið. Það er auðvitað dýrara en við verðum bara að láta okkur hafa það til að það verði sem minnst truflun.
Ég er ekki einusinni farinn að hugsa um það að fara í söngtíma á mánudag, en þá hefst ævintýrið sem ég kom hérna til að fara í, og áheyrnarprufa 8.febrúar, það styttist og styttist.
Við þurfum góða strauma þessa dagana og ég vona að fólk sendi okkur smá jákvæðni hingað í land súrkálsins.
Bis Später,
Egill
Egill minn. Þetta reddast allt saman - ég sendi voða góða strauma til ykkar
SvaraEyðaKnús frá mér
B-
Og ég líka!
SvaraEyða