16.1.08

Kemst þótt hægt fari....segir einhversstaðar.

Ég er kominn á fullt í að vinna og það gengur bara svakalega vel, ég er jafnvel meira "efficient" hérna en heima.....sem ég hélt bara að væri ekki hægt.

Allavega í dag ákváðum við heilsuparið á Schönhauser, að fara hjólandi í næstu íbúðaskoðun (auðvitað með aðstoð frábæra GPS tækisins sem kom okkur þangað hratt og örugglega), þær íbúðir voru ekki langt frá Potsdammer platz, sem er flottur staður. Staðsetningin var frábær, en þvímiður var ekki hægt að segja það sama um íbúðirnar. Fyrri íbúðin var á 6.hæð, sem er 7.hæð heima á ÍSL, lyftan og stigagangurinn hefði getað tilheyrt einhverju fátækrahverfi í Ghana. Íbúðin sjálf var svosem í lagi að flestu leiti, nema hún var með "Wintergarten", sem er óþolandi fyrirbrigði (yfirbyggðar svalir, fyrir þá sem ekki vita). Ég var fljótur að ákveða að þetta væri ekki málið. Næsta íbúð var án efa sú ljótasta og viðbjóðslegasta hingaðtil. Ljótt teppi í svefnherbergi, sem var allt skítugt, viðbjóðslegt og rifið, íbúðin var ekki nýmáluð eins mér skilst að til sé ætlast af leigjendum þegar þeir skila af sér íbúðum hér í Þýskumælandi löndum. En stigagangurinn gaf tilefni til að þarna væri stórkostleg íbúð á ferðinni.

Nú svo fórum við bara heim og ég hentist í tíma hjá Janet, þar sem við fórum lauslega yfir það hvað ég ættlaði að fara með í áheyrnarprufu eftir c.a mánuð, eða 8.febrúar. Við Soffía erum búin að bjóða Janet og Davíð í mat á föstudagskvöldið, það verðu nú ljúft. Ég hendi inn myndum af því um helgina. En á meðan eru komnar nýjar myndir hérna við hliðina, fyrir þá sem skoða slíkt.

Schön Tag

1 ummæli:

  1. Ja hérna hér, kæru vinir. Það á ekki af ykkur að ganga. Ég verð að viðurkenna að ég dáist að óbilgirninni í ykkur. Ég væri orðinn geðveikur. Er ekki sagt að það sem ekki drepur mann styrki mann bara. Það hlýtur að eiga við í þessu. En nú kemur þetta. Einn tveir og skora svo.... :) Heyrumst og sjáumst innan tíðar.

    Kv. frá Salzburg.
    Ásgeir Páll

    SvaraEyða