27.2.11

Er ég kominn heim? Íslandsferð og annað í þeim dúr.

Görlitz heilsaði mér með ískulda, úti var um -4°C og innandyra voru þær +6°C.  Þannig að það var bara beint í hlý föt og að ofninn í svefnherberginu settur í gang.  Núna hefur hitin náð 10°C innandyra og er orðið nokkuð bærilegra. Ég hóf reyndar þýskalandsferðina á að heimsækja Ásgeir Pál í Halle, svo brunaði ég á Mercedes E-Klassanum, sem ég var uppfærður í, heim til Görlitz.

ekkert smá ánægð með voffann
Íslandsferðin var mjög góð og ég náði að gera allt það sem ég ætlaði mér að gera:
  • Borða rækjusamloku
  • Borða roastbeefsamloku
  • Borða Nonnabita
  • Rækju smörrebröd (heimagert)
  • Akureyring á Skalla
  • Íslenskur bjór
  • Humarsúpa
Að fá sér súkkulaðirúsinur
Ungrúin naut sín vel hjá ömmu og afa í Kvistholti, og fékk súkkulaðirúsínur hjá lang-afa í Hveratúni, hoppaði í pollum, lék sér í snjónum og hitti ýmis dýr sem fór afar vel í hana.

Við Soffía ákváðum að gera vel við okkur og skrá okkur inn á hótel í eina nótt og amma og afi pössuðu á meðan.  Við fórum í nudd og spa og svo út að borða, þannig að það var stórkostlega fínn dagur og kvöld. Ég kom líka fram sem gestur á hádegistónleikum í Íslensku Óperunni, þar sem ég söng með góðu fólki skemmtilega dagskrá :)

HOPPA!
Tíminn leið í raun allt of hratt, en ég naut hans, þannig að varla er hægt að kalla það tap :)  Núna eru þær mæðgur farnar norður í land og dvelja þar í einhvern óákveðin tíma.  Það er strax kominn upp söknuður hjá mér, og það er alveg merkilegt hvað maður verður háður því að hafa fólkið hjá sér.  En í staðin hef ég meiri tíma til að undirbúa og vinna að framtíðarverkefnum sem er líka mjög gott. 

Ég átti samtal við óperustjórann hérna áður en ég fór til Íslands til þess að láta í ljós óánægju mína með vinnubrögðin hérna, sérstaklega því sem snýr að loforði sem mér var gefið við undirritun samnings, sem snérist um að mér yrði boðið stærra hlutverk seinna árið mitt hérna.  Það hefur ekki gengið eftir og stóð ekki til síðast þegar ég vissi.  Ég vona bara að ég hafi náð að koma að góðum rökum á framfæri, því það er mikilvægt fyrir mig að fá einhver stærri hlutverk á efnisskránna mína.


Rétt áður en við lögðum af stað til landsins, birtist flennistór mynd af mér í Sächsische Zeitung, þar sem var verið að fjalla um óperuballið, þar sem ég fór með eitt aðalhlutverkanna.  Hér fyrir neðan má sjá þá mynd.

Að auki eru komnar inn fullt af nýjum myndum í Albúmið hennar Júlíu
Fyrir hugasama eru líka komnar skemmtilegar HDR myndir í Albúmið mitt

Caramello syngur Komm in die Gondel

11.2.11

Að heimta, stress og kvíði

Sem Caramello í Nótt í Feneyjum
GLEYMDIST
Nýjar myndir af ungfrúnni má finna hér


Á morgun er Óperuballið haldið hér í Görlitz, mikið hefur verið æft og smá þreyta að gera vart við sig, en langt í frá að þetta sé að buga mann. Ég stíg á svið sem Caramello út Nótt í Feneyjum og fæ að syngja það flottasta úr óperettunni, sem ég held að sé bara fínt mál. Ég hef allavegana verið að fá mikið hrós frá kollegum og sumum af stjórnendunum, sem er gott mál, ég hef þó ekki fengið nein viðbrögð frá aðalstjórnanda hússins, sem þó hefur horft tvisvarsinnum á mig syngja þetta aðalhlutverk. Það kom loks að því að ég fékk fund með honum, og einn kollegi minn hér í húsinu sem hefur verið hérna í 30 ár, kom með mér til að gæta að því fyrir mig að ég komi mínu á framfæri á réttan hátt og að það verði engin misskilningur. Stressið var að drepa mig fyrir þennan fund, því maður vill ekki vera sá sem er að tuða og væla, en ég held samt að þetta hafi allt farið vel, þó held ég að afar litlu verði breytt, það kann þó að gerast að ég fái allavega að læra einhver aðalhlutverk, þó ég syngi þau ekki á sviðinu. En það er strax betra en að vera bara fastur í því að syngja buffo tenór rullur sem gera nákvæmlega ekkert fyrir mig. Ég fékk þær skýringar að ég væri ráðin hér sem buffo tenór og ég myndi í raun bara fá að syngja þau hlutverk, sem er ótrúlega hallærislegt og þrönghugsað af húsinu, en ég get svosem vel skilið það að vissu leiti.

Á Mánudag er svo fyrirhuguð heimferð og allt lítur vel út hvað veður varðar, þannig að það ætti ekki að stoppa þetta af. Ég verð svo með í hádegistónleikum Íslensku Óperunnar 22.Febrúar og flýg svo aftur út 25. Kona og dóttir verða eftir á landinu í einhverja mánuði, þar sem að hér er afar lítið að gera.fyrir þær, eins og áður hefur komið fram.

Við sjáums væntanlega bráðum, og þangað til þá, góðar stundir.

4.2.11

Stormasamt í helvíti

Ýmislegt hefur gerst hérna síðustu daga, samt ekki neitt sérlega áhrifaríkt fyrir framtíðina, en áhugavert engu að síður. Það fór svo að hinn tenórinn hérna í húsinu þurfti að taka sér 13 daga veikindaleyfi vegna of mikils álags og mikillar hættu á að eyðileggja á sér röddina. Hann hafði margtalað við stjórnendur hér um að gefa sér frí, þó ekki væri nema í einn dag! Það var ekki einusinni hlustað á það. Þannig að nú er hann veikur fram að vetrarfríi. Sem þýðir að húsið hefur þurft að aflýsa einni stórri sýningu og þurfa að finna staðgengil fyrir hann í tvær sýningar í viðbót. Ótrúlega gáfuleg vinnubrögð hjá stjórnendum hér. Að sama skapi er það svo að ég óska mér afar heitt að fá meira að gera, en það virðist bara ekki ætla að gerast. Og þegar ég meina meira að gera, þá meina ég ekki að það sé komið til mín og spurt hvort ég vilji ekki læra heilt hlutverk á 5 dögum með fullt af töluðum texta, 2 arúm og 3 dúettum. Ég sagði einfaldlega bara þvert nei. Ég er búinn að leggja mikið á mig að læra mitt hlutverk, sem er í raun aðalhlutverkið, allavega syngur þekktustu melódíurnar. Ég hef samt á tilfinningunni að ég verði látin taka hitt yfir sem er ekki til að draga úr stressinu. Ég hef komið mér upp ágætis kerfi, en það er einfaldlega að kunna mitt 100% og kunna það í tæka tíð, þannig er maður búinn að koma í veg fyrir stress, það er fátt eins leiðinlegt og truflandi og breytingar á síðustu stundu. Svo ég tali nú ekki um vanvirðinguna við þá sem eru að gera sitt besta.

Allavega ég er á leiðinni, vonandi fyrir vetrarfrí, að tala við framkvæmdarstjóran hérna um að ég sé ósáttur við að fá ekki meira að gera. Ég vil einfaldlega fá tækifæri til að sýna mig, eins og var búið að lofa mér. Ég er mjög stressaður fyrir því að gera þetta, því ég þoli ekki að þurfa að vera með einhver leiðindi, ég hef verið að standa mig vel, allavega held ég það, og ég skil ekki að þeim detti ekki í hug að gefa mér einn séns. Ég kvíði allavega þessu viðtali og er þessvegna ekki búinn að panta tíma ennþá!! Umboðsmaðurinn vill ekkert gera og segir að ég verði bara að græja þetta sjálfur, sem er ansi skítt, miðað við það sem ég er að borga honum í hverjum mánuði. Ákvörðun um heimferð stendur því enn að svo stöddu.

Allavega sýningin sem átti að vera á morgun, fellur niður vegna veikinda og við familían ætlum að reyna að skella okkur í stutta borgarferð til Dresden í fyrramálið.

Það er frá litlu að segja í Júlíumálum, hún bara þroskast hratt og lærir enn hraðar. Það verður áhugavert að skilja hana eftir hjá ömmu og afa í sveitinni. Hún hefur ekki verið í pössun neinstaðar mjög lengi áður, það verður líklegast einhver mömmusýki, en það hlítur að reddast. Þegar maður skammar hana núna þá hlíðir hún, og labbar ótrúlega pirruð inn í herbergið sitt. Skellir nú samt ekki alltaf hurðum :)

Margt er stundum líkt með skyldum, þó ekki alltsaman :) Hérna erum við c.a á sama aldri.

29.1.11

Snúður og Snælda

Var að lesa Snúð og Snældu fyrir ungfrúnna um daginn, sem oft áður og komst þá að því að það er ekki einleikið að snúa á lært atferli, ekki endilega að það sé slæmt. En fyrir þá sem ekki þekkja Snúð og Snældu, sem eru kettir í barnabókmenntum, þá er Snúður hvítur á lit og Snælda er svört, og þó ég sé búinn að lesa þetta nokkrum sinnum fyrir ungfrúnna, þá ruglast ég samt alltaf, mér finnst bara algerlega ómögulegt að þetta sé svona. Auðvitað á Snúður að vera svartur og Snælda á að vera hvít, það er bara þannig, sama hvað femínista vitleysingar segja!! Ég er að reyna að lýsa myndum í bókinni og ruglast statt og stöðugt, þetta er svona eins og sálfræði tilraunin með litina, þar sem blár litur er sýndir með textanum "grænn" og svo framvegis, maður einhvernvegin á erfitt með að meðtaka þetta! :) En sama hvað ég er auðvitað orðinn vanur þessu núna, en þetta tók á að læra þetta.

Það ber kannski helst að inn eru komnar myndir fyrir Janúar mánuð í albúmið hennar Júlíu fyrir þá sem það þekkja :) En hér er einföld leið fyrir þá sem eiga erfiðara með að muna :)

26.1.11

Internetið og Júlía

Internetið small hér inn fyrir um viku síðan.  Það gekk auðvitað ekki áfallalaust fyrir sig, þar sem við áttum að fá þetta upp á mánudegi, en ekki kom það.  Ég hringdi því í Telekom til að láta vita af þessu, þar fékk ég þau svör að þau sæju ekki að neitt væri en ætluðu að láta tæknimann í málið strax í fyrramálið.  Ég fékk svo SMS snemma á þriðjudagsmorgun um að tæknibeiðninni minni hefði verið lokað, en ekki datt þetta í gang.  Ég hringdi aftur og kvartaði, mér var sagt að tæknimaður myndi hafa samband við mig fljótlega.  Ég fékk svo símtal upp úr hádegi frá tæknimanni sem sagði að þeir myndi græja þetta milli 17 og 20, ég samþykkti það svosem þar sem ég hafði ekkert annað val.  En svo uppúr 15 þá datt þetta í lag.  Ég reyndi að hringja í Telekom til að afboða tæknimann, en það gat engin gert neitt eins og venjulega.  En svo kom engin tæknimaður, þannig að þetta leystist allt að sjálfusér, og engin gat séð að nokkuð hafi verið gert :)  En við erum allavega með netið núna, ekki endilega betra en það sem var áður, en heldur ekki verra, þannig að við vælum ekkert yfir því.  Er samt ekki frá því að Youtube  virki örlítið betur en áður, og straumur frá Íslandi er líka í fínu lagi þannig séð.

Hér hefur mikill pirringur verið að gera vart við sig hjá ungu dömunni, líklegast vegna aðgerðaleysis, en gæti haft eitthvað með það að gera að hún er hætt að sofa á daginn!!  Eðlilegt hjá barni á þessum aldri?  Það skal ég ekki segja, en hún er allavega að fá þessa 10-12 tíma í svefn sem hún á að fá, hvort það svo sé verra að hún taki það allt á nótunni veit ég ekki. Hún vaknar allavega með okkur uppúr hálf 9 á morgnanna og vakir svo allan daginn og er hress og kát.  Stundum hefur hún þó lognast útaf milli 17 og 18 og þá fær hún að hvíla sig aðeins, en við þurfum að vekja hana fljótlega til að hún sofi nú eitthvað um nóttina, en það hefur aldrei verið neitt vandamál. Hún gekk hér um gólf um daginn og tautaði "Slæmar fréttir, slæmar fréttir!!"  Ekki hef ég hugmynd um hvar hún hefur heyrt þetta, því þetta er ekki beint eitthvað sem við erum að segja dags daglega, ég held meira að segja að við höfum aldrei sagt þetta.  Það var því alveg ótrúlega fyndið að heyra þetta litla skott labba um og tauta þetta :) Hún situr stundum inni í herberginu sínu og er að lesa fyrir dúkkurnar sínar í bók. Við þurfum líka alltaf að passa vel upp á að allt sé rétt gert þegar hún fer að sofa, annars fáum við að heyra það.  Allir bangsarnir þurfa að vera til staðar, auk sængur og kodda þarf hún líka að vera með teppið sitt.  Svo er algerlega ómissandi að fá sér vatnssopa áður en gengið er til náða og það úr Hello Kitty vatnsflöskunni.  Hún reynir ítrekað að ljúga að mér að hún ætli bara að fá duddurnar til að geyma þær, alls ekki setja í munninn, bara "geyma við brjóstið" eins og hún orðaði það sjálf.

Atvinnulega gengur allt vel, þrátt fyrir ýmislegt bull í æfingaplani, en svona er það bara, ég er að fá borgað fyrir þetta og nenni ekki að vera væla allt of mikið yfir því.

Þema Janúarmánaðar er "gleraugu".  Góðar stundir þar til næst.

Komst í gleraugun hennar móður sinnar og fannst það mikið sport :)

3D gleraugun hans pabba eru líka vinsæl :)

og svo eru það auðvitað gellugleraugu hennar  hátignar :)

23.1.11

Nýtt, sjóðheitt vídeó

Nýtt vídeó hefur nú litið dagsins ljós, það má finna í albúminu hennar Júlíu.

21.1.11

Egill! Hættu nú!

Hér er byrjað að kólna og snjóa aftur, maður var nánast kominn í vorfíling því veðrið var bara orðið það gott. En nei aldeilis ekki, hér er aftur byrjað að snjóa og hitinn kominn í -3°C, sem er alveg ótrúlega leiðinlegt. En svona er það nú bara það er ekki hægt að ætlast til þess í janúar að það sé komið vor :)

Héðan er svosem lítið að frétta, nema að ég fór á fyrstu æfingu fyrir Candide í gær og það er sko ekki neitt til að hrópa húrra fyrir, því ég þarf að taka að mér afar lítl hlutverk, kórhlutverk, og ég, ásamt öðrum kollega í húsinu þurfum að standa allan tíman með kórnum í senunni og standa þar eins og fífl og syngja bara okkar örfáu tóna en að öðruleiti bar með lokaðan munn og það er ótrúlega erfitt að standa í þessu rugli. Í dag fór ég hinsvegar á æfingu fyrir einu aríuna mína í stykkinu, það gekk mjög vel og leikstjórinn hafði það sérstaklega á orði hversu fallega rödd ég hefði og hversu vel ég skilaði mínu! Verst að þessi sami leikstjóri, tók út hina aríuna mína sem er ein af þeim vinsælli úr verkinu! Algerlega óskiljanlegt og hálfvitalegt!! Gerir það að verkum að ég hef ótrúlega lítinn áhuga á þessu verki og þvímiður hef ég ekki áhuga á að leggja mikið á mig fyrir þetta, en ég mun auðvitað samt gera það, ég er ekki í því að eyðileggja fyrir öllum öðrum með neikvæðni og leiðindum, og mér líkar ekki þannig fólk, en ég hef rétt á mínum skoðunum og tilfinningum og mun halda þeim að mestu fyrir mig :)

Fyrirsögnin vísar í nýjan stjórnanda heimilisins, sem segir þetta við pabba sínn ef hún er ekki sátt við að hann sé að stoppa sig af eða gera eitthvað sem hún ekki fílar. Mér finnst þetta drepfyndið, og geri í því að stríða henni bara til að framkalla þessi viðbrögð :)

Bóndadagur gekk í garð án minnar vitundar en ég fékk dýrindis franska súkkulaðiköku með vanilluís í kaffinu í dag ásamt blómvendi og bjór, sem varð til þess áttaði mig á þessu :) Fínn dagur í dag. Þó hef ég mikið verið að snúa fyrir mér framtíðinni og reyna að átta mig á því hvað sé rétt/best að gera á næstu árum. Ég er ekki ánægður eins og staðan er í dag, þó ég sé að fá borgað ágætan pening fyrir að vera heima hjá mér og njóta samvista við fjölskylduna mest allan tímann, þá er ég bara þannig að ég kann ekki við að vera fá borgað fyrir að gera lítið sem ekkert!! Ég vil fá meira að gera og ég vil fá að reyna mig, ekki bara syngja smáhlutverk sem allir geta gert! En það sem er gott við þetta er að þetta er að móta og einfalda lífsviðmót mitt og ég á auðveldara með taka ákvarðanir. Ég stend ennþá við þá ákvörðun að vera á heimleið í lok árs 2012. Vonandi breytist samt eitthvað sem veldur því að ég endurskoða þá ákvörðun.

Meira var það ekki í bili, meira síðar.