Hér hefur mikill pirringur verið að gera vart við sig hjá ungu dömunni, líklegast vegna aðgerðaleysis, en gæti haft eitthvað með það að gera að hún er hætt að sofa á daginn!! Eðlilegt hjá barni á þessum aldri? Það skal ég ekki segja, en hún er allavega að fá þessa 10-12 tíma í svefn sem hún á að fá, hvort það svo sé verra að hún taki það allt á nótunni veit ég ekki. Hún vaknar allavega með okkur uppúr hálf 9 á morgnanna og vakir svo allan daginn og er hress og kát. Stundum hefur hún þó lognast útaf milli 17 og 18 og þá fær hún að hvíla sig aðeins, en við þurfum að vekja hana fljótlega til að hún sofi nú eitthvað um nóttina, en það hefur aldrei verið neitt vandamál. Hún gekk hér um gólf um daginn og tautaði "Slæmar fréttir, slæmar fréttir!!" Ekki hef ég hugmynd um hvar hún hefur heyrt þetta, því þetta er ekki beint eitthvað sem við erum að segja dags daglega, ég held meira að segja að við höfum aldrei sagt þetta. Það var því alveg ótrúlega fyndið að heyra þetta litla skott labba um og tauta þetta :) Hún situr stundum inni í herberginu sínu og er að lesa fyrir dúkkurnar sínar í bók. Við þurfum líka alltaf að passa vel upp á að allt sé rétt gert þegar hún fer að sofa, annars fáum við að heyra það. Allir bangsarnir þurfa að vera til staðar, auk sængur og kodda þarf hún líka að vera með teppið sitt. Svo er algerlega ómissandi að fá sér vatnssopa áður en gengið er til náða og það úr Hello Kitty vatnsflöskunni. Hún reynir ítrekað að ljúga að mér að hún ætli bara að fá duddurnar til að geyma þær, alls ekki setja í munninn, bara "geyma við brjóstið" eins og hún orðaði það sjálf.
Atvinnulega gengur allt vel, þrátt fyrir ýmislegt bull í æfingaplani, en svona er það bara, ég er að fá borgað fyrir þetta og nenni ekki að vera væla allt of mikið yfir því.
Þema Janúarmánaðar er "gleraugu". Góðar stundir þar til næst.
| Komst í gleraugun hennar móður sinnar og fannst það mikið sport :) |
| 3D gleraugun hans pabba eru líka vinsæl :) |
| og svo eru það auðvitað gellugleraugu hennar hátignar :) |
Engin ummæli:
Skrifa ummæli