Síðustu daga hefur nánast verið hér óbærilegur hiti hér í Berlín, ég get auðvitað ekki leyft mér að kvarta. En í dag var ákveðið að skella sér í strandferð til Müggelsee, sem er einn af vinsælum strandsvæðum í Berlín. Þegar þangað var komið gengum við fyrst í gegnum svokallað FKK bereich, sem hljómar líklega eins og eitthvað úr seinni heimsstyrjöldinni :) En þýðir í raun Frei Körper Kultur Bereich, eða Frjálsra Líkama Menningar Svæði (ótrúlega léleg þýðing, en stuttlega kallast það nektarnýlenda á íslensku). Strandir hér skiptast yfirleitt í tvö svæði. Og hefði maður verið á þeim buxunum........eða ekki :) þá hefði maður get verið á nánast einka strönd í engum troðningi með Júlíu, þar sem nektarströndin var afar lítið notuð, í staðin var allt í klessu og troðningi á hinni ströndinni, þar sem við vorum. Sú stutta skemmti sér þó vel og öllum leið afar vel, í 35+ gráðunum sem hér voru í dag. Það er ekkert lát á þessum hita næstu daga, líklega eitthvað þrumuveður á þrijðudag en svo heldur þetta bara áfram. Allt í einu virðist 200 Evru loftkæling ekki svo dýr :)
Ég hef verið mikið upptekinn af Paul von Oberhausen, sem hefur verið að segja til um úrslitin á HM, og hingað til hefur hann verið með 7 af 7 rétt. Það er eitthvað að standa á sér núna, þar sem gull-leikur Hollendinga og Spánverja er í gangi. Paul hefði mátt segja okkur hversu leiðinlegur leikurinn yrði svo við þyrftum ekki að horfa á hann, en svona er lífið.
Stressið er að hefjast þar sem fyrsta æfing er á morgun, með stjórnandanum. Ég tel mig vel undirbúinn og því á þetta nú ekki að vera of mikið vesen. Þetta er í raun allt spurning um hvernig formi ég er í raddlega, hitt er bara einfaldlega í lagi!!!!
Auglýsingar fyrir Classic Open Air tónleikana eru bókstaflega allsstaðar, og þá meina ég allsstaðar, ég rakst eina slíka á göngu um daginn og lét bara taka mynd af mér með henni. Þó ekki sé beint minnst á mig á auglýsingunni, þar sem ég er ekki nógu stór fiskur ennþá, þá er samt gamana að sjá metnaðinn sem í þetta er lagður. Mér skilst að það séu bara ÖRFÁ sæti laus, sem þýðir að ég fæ að syngja fyrir um 7000 manns á föstudaginn kemur, sem er frábært.
Fyrir Mogga aðdáendur þá er viðtal við mig í mánudagsmogganum á morgun 12.7.2010
Birti hérna tvær myndir frá síðustu dögum.
Varð að taka mynd af mér við eitt af fjölmörgum skiltum til sýnis í Berlín.

Júlía að skemmta sér við Müggelsee