--------------
Byrja á að sjóða brokkolí, bara heilan haus tekin í bita í svona 10 mín, eða þangað til al dente.
Á sama tíma bræða smjör (150 gr c.a) í pönnu eða potti
Bæta saman við um 79-80 gr af möndluflögum.
saman við þetta c.a ein tsk salt og hálf tsk pipar.
Láta þetta bara rétt malla, ekki steikja eða láta brúnast.
Þegar brokkoli er tilbúið á bara að láta vatnið renna af, eða n0ta beint ef gufusoðið, og hella saman við smjörblönduna.
---------------
Ef fólk borðar ekki brokkolí með bestu lyst eftir þetta þá er eitthvað að!!!
Ekki meira að sinni :) Varð bara að koma þessu inn. Sjóðheit gagnrýni frá Classic Open Air er svo væntanleg inn á bloggið á næstu 1-2 dögum.
Mynd frá því í dag við Bersdorfer See
Engin ummæli:
Skrifa ummæli