30.12.09

Styttist í nýtt ár

Það verður að segjast eins og er þegar ég lít yfir síðasta ár, að ég er bara búinn að áorka ansi miklu, og svona eftirá að hyggja er ég afar stoltur og ánægður með það sem ég hef gert. Síðustu mánuðir ársins hafa verið rússíbanareið tilfinningalega og ferðalega. Ég hef hentst útum allt þýskaland og til austurríkis til að reyna að sýna hvað í mér býr, en það bar lítinn ávöxt þvímiður. Þó gæti verið að góðra frétta sé að vænta í byrjun nýja ársins, og mun ég smella því hér inn við fyrsta tækifæri :)

Internetið er komið inn, eiginlega alveg sjálfkrafa, en ég var búinn að hringja og kvarta yfir því að það væri alveg dottið út allt samband á línunni hjá okkur, ég bjóst við að þurfa að standa í einhverjum símtölum fram og til baka. Sem betur fer var það ekki svo. En sökum þessara vandamála fór ég að nota gsm símann minn meira til að skoða netið, og verð ég að segja að ég er alveg hrikalega ánægður með græjuna og þessa tækni. Við horfðum hérna á fréttatíma í gegnum GSM samband!! Sem ég hélt bara að væri ekki hægt! En það var jafn einfallt og að horfa í gegnum ADSLið. Allt í einu fæ ég svo SMS frá T-mobile sem segir að ég hafi farið framyfir í gagnamagni, og fái því aðeins mjög takmarkaðan hraða til mánaðarmóta! Ég taldi mig að sjálfsögðu vera að borga fyrir "unbegrenzt" internet í síma. Og það kemur á daginn að það er rétt og á einungis við um tenginguna, ég borga ekkert fyrir að vera tengdur, en ég get bara notað 200Mb á mánuði, sem er svosem eðlilegt, en þetta kom mér verulega á óvart. Það hefur því tikkað ansi hratt þegar ég fór að streama fréttatímann :) En þetta er allvega allt komið inn og nú má nýja árið fara að ganga í garð.

Við familían skelltum okkur í fyrsta skipti saman niður í bæ þessi jólin, svona rétt aðeins til að skoða okkur um, ekki skemmdi fyrir að hér hefur kyngt niður snjó í dag og allt er hvítt og fallegt. Leiðin lá á Unter den Linden, en þar gat maður séð glitta í showið sem verður þarna á morgun, nokkuð flott. En við verðum nú líklega ekki þar. Lukum svo kvöldinu á að kíkja á Maredo og detta í eina Feinschmecker og ekki brást nú bogalistin þar á bænum frekar en fyrr (nema í Dresden).

Hér er svo ein mynd af hliðinu fræga ásamt smá ljóssúlum.


28.12.09

Jólin með glanz og internet í steik

Hér gengu jólin í garð ekki alveg eins og maður hefði vonað, en líklega einhverju betri en í fyrra :) Ungfrúin tók aðfararnótt aðfangadags í að verða nokkuð veik með hita og stíflað nef, og gat því ekki sofið mjög vel, þetta þýddi svo frekar erfiður aðfangadagur. En svona er þetta bara og lítið við því að gera. Matur og drykkur heppnaðist með eindæmum vel og má segja að þýski hversdagsmaturinn Kasseler hafi staðið að öllu leiti á sama stalli og íslenski Hamborgarhryggurinn. Hér eru að sjálfsögðu sínhvorar hefðirnar í gangi og blandast þær bara ansi vel saman :) Gjafalega stöndum við bara vel og auðvitað fullkomlega sátt við það sem okkur hefur hlotnast :)

Ég er búinn að syngja tvær sýningar í röð núna milli jóla og nýárs, sökum veikinda. Það er svosem allt í lagi þar sem ég er ekki að gera mikið annað á þessum tíma. Nú á ég aðeins tvær sýningar eftir og svo tekur við frí í talsverðan tíma. Og er Íslandsferð inni í því, það má segja að það sé komin örlítil tilhlökkun að hendast heim, þar sem ég hef ekki komið til Íslands í heillt ár núna í Janúar.

Það eru erfiðir dagar sem nú fara í hönd. Ástæða þess er sú að hér erum við nánast netsambandslaus, við getum að vísu reddað okkur með tölvupóst og blogg, en öll þyngri internetvinna verður að bíða :) Internetsambandið okkar, og þar með talinn heimasíminn eru bara allt í einu dottið út!! Grunur minn er sá að þetta sé bilun í router, þó vissulega sé ekki hægt að útiloka neitt í þessum efnum, ég á von á símtali frá tæknimanni í kvöld eða á morgun til að ákveða næstu skref. Á meðan getum farið á netið í gegnum símann minn, þar sem ég er á Flatrate taxta, þ.e get verið tengdur eins mikið og ég vil án endurgjalds, þó ég sé nú vissulega að borga fyrir það í hverjum mánuði, þá kemur það sér ágætlega núna :)

Áramótin koma brátt, og við erum búin að ákveða að hafa kjúkling, með einhverju, sem á enneftir að koma í ljós. Við bara vonum að hægt verði að horfa á áramótaskaup og annála hérna megin. Það er allsendis óljóst á þessari stundu þar sem ekkert er internetið og ekki líkilegt að það verði komið í lag fyrir áramótin.

24.12.09

23.12.09

Í ljósi nýjustu frétta frá Íslandi....

...er gaman að geta þess að jólabjór og allur annar bjór er langt frá því að vera uppseldur :) Það er eitthvað svo gaman að verða vitni að þessu héðan, frá allt öru landi, maður sér þetta í svolítið öðru samhengi :)

22.12.09

Tíminn líður hratt svona síðustu dagana fyrir jól

Hér í Berlín er búið að vera ansi kallt síðustu daga og hér hefur jafnvel snjóað sem við fengum ekki að njóta eins vel í fyrra. En það eru svo sannarlega að koma jól og við erum búin að eyða þónokkrum klukkutímum í að undirbúa það alltsaman, en það er auðvitað allt þess virði. Ég hef ekki verið mikill fjölskyldumaður síðustu vikur og mánuði sökum söngtengra mála, áheyrnarprufur og annað plögg í kringum þetta er ekki mjög fjölskylduvænt, sérstaklega ekki fyrir fólk eins og mig sem á að til að tapa sér lítillega í því sem þeir eru að gera. En núna hef ég notið þess mun meira að vera með litlu fjölskyldunni minni hérna í Berlín. Það kóróna svo fréttir sem líklegast flestir lesendur þessarar síðu vita núþegar eitthvað um, en eru síður en svo 100% staðfestar. Þegar ég kem svo til Íslands í byrjun Janúar, verður hægt að staðfesta, eða ekki, það góða sem gerst hefur nú í lok árs 2009.

Hér á bæ verður hamborgarhryggur, eða Kasseler, og var hann keyptur í dag. Án beins er kvikindið, en ég skal láta þetta verða safaríkasta kjöt sem ég hef smakkað, þó ég þurfi að sprauta vökva inní kjötið :) Held þetta verið ekki neitt flókið mál, en gaman verður það að vanda. Við höfum verið í smá veseni með að ákveða hvaða áramóta mat við ætlum að hafa, en enduðum á að kaupa bara kjúkling, sem hérna í þýskalandi, virðist vera erfitt að fá ánþess að það hann innihaldi innyfli og háls!! Sem er svona frekar viðbjóðslegt að hugsa til, en síðast þegar ég keypti kjúkling í heilu lagi hérna var þetta sem betur far allt saman pakkað í sérstakan poka sem var troðið inn í kjúklínginn. Reyndar fundum við í dag svona sérstakan hátíðarkjúkling, og hann kostaði bara ansi mikið (30 EUR). Reyndar nokkuð öruggt að um "góð" gæði var að ræða en þetta er svolítið dýrt finnst manni. Hamborgarhryggurinn er um 10.Eur/Kg sem verður að teljast ágætt.

Á morgun verðum við svo með eðalplokkara, þar sem ég nenni ekki að standa því að borða skötu, aleinn.

Við erum allvega sátt og förum inn í jólin með gleði og kærleik í hjarta, þrátt fyrir að vera fjarri vinum og vandamönnum.

Kveðjur héðan frá Kurfursten.
Nýjar myndir af ungfrúnni eru komnar inn hérna




17.12.09

Fyrirsöngur og jól

Þá er komið svolítið síðan maður henti inn einhverju hérna síðast. Það sem helst er kannski að frétt að ég fór í tvær áheyrnarprufur í vikunni og fékk einnig boð í þá þriðju. Semsagt mikið að gera.

Fyrsta prufan var í Görlitz, sem er nánast jafn óspennandi bær og nafnið gefur til kynna. En húsið leit vel út, þó lítið sé og bærinn er mjög ódýr, enda held ég nú að launin séu í samræmi við það. Sú prufa fór þannig að mér var eiginlega boðið starf á staðnum. En það átti samt eftir að ræða þetta eitthvað nánar innanhúss. Og það þarf að bíða eftir því eitthvað geri ég ráð fyrir.
Umboðsmaðurinn var svakalega ánægður og sagði mér að þetta væri mjög jákvætt skref. Sem það svosem vissulega er.

Seinni prufa vikunar var svo í dag og það var í Braunschweig, þar sem ég söng Wagnerinn fyrr í vetur. Ég var mjög stressaður fyrir þessa prufu því ég vildi svo að hún gengi upp, þar sem þetta er náttúrulega svokallað A-hús, og það er stutt frá Berlín, auk þess sem ég þekki aðeins til þarna núna eftir að hafa eytt smá tíma þar. Raddlega var ég í toppformi og söng eins vel og á var kosið, nema hvað nú var það heilinn sem klikkaði, og það allsvakalega, ég var í miðri aríu sem ég hef sungið nokkuð oft og þá bara hvarf allur texti og ég vissi ekkert hvar ég var staddur í aríunni. Eftir að hafa stoppað og náð áttum, byrjaði ég aftur frá miðju, þar sem frá var horfið og kláraði, þeir báðu mig samt um að fá að heyra aðra aríu, og ég skilaði henni bara nokkuð vel. En ég held bara að þvímiður sé standardinn í A-húsum það hár að þeir færu ekki að ráða svona misheppnað akt!! Ég var svo vel undirbúinn, og svo ákveðinn í að þetta yrði góð prufa. Það er mjög þægilegt að syngja í þessu húsi og mér líður mjög vel þar. Ég er því hoppandi illur út í sjálfan mig þessa stundina.

Þriðja prufan sem mér var svo boðið í er í Stuttgart, en ég sá mér ekki fært að fara þangað með svona rosalega stuttum fyrirvara. Launin eru reyndar ágæt og þetta er aðalhlutverk, það bendir í raun allt á það að ég hefði átt að gera þetta, en ég er bara ekki undirbúinn fyrir það sem þarf að syngja þar, og hafði engan tíma í vikunni til að undirbúa það....það er því alger skömm.

Ég fer því með blendnar tilfinningar inn í jólafríið sem má eiginlega segja að hefjist hjá mér núna. Afhverju er maður að þessu getur maður endalaust spurt sig og yfirleitt fær maður alltaf sama svarið til baka: "hvað í andskotanum ætti ég svosem að gera annað?!?!?"

Friður og hamingja fylgi ykkur öllum,

12.12.09

Tímasetning á heimför


Þá er komið að þeim tímapunkti þegar það þarf að fara ákveða hvort við verðum hér áfram eða ekki. Þetta er erfið ákvörðun sérstaklega í ljósi þess að það er alls óvíst hvernig þetta getur allt saman farið. En dagsetningin hefur verið sett 1.ágúst 2010, það þarf að segja öllu upp hérna með lágmark þriggja mánaða fyrirvara og því þarf það að hefjast 1.maí. Það er gott að vera búinn að ganga frá öllu svona með góðum fyrirvara. Það gæti reyndar verið að maður þurfi að taka eitthvað lán til að klára síðustu vikurnar en svona er það bara. Líklega er það ekki það gáfulegasta að koma heim með atvinnuaðstæðurnar eru eins og þær eru en það er líka erfitt að Júlía fái ekki að kynnast ömmum sínum og öfum, og öðru skyldfólki. Kannski ætti maður bara að fara leita að vinnu á norðurlöndunum! En það er pæling fyrir nýja árið!

Það styttist í næstu áheyrnarprufu, og ekki hjálpar til að mig langar í raun alls ekkert að fara þangað, hvorki til að fara í prufuna eða til að lifa og vinna ef ske kynni að ég fengi ráðningu þar. Það er erfitt að hafa ekkert val annað en að taka því sem býðst, það hefur alla tíð verið mottóið mitt að gera ekki það sem mig langar ekki að gera, en þegar maður hefur ekkert val, er svosem ekki erfitt að brjóta það mottó :)

Svo tekur bara við jólahátíðin, og þar sem þetta verður sú síðasta í þýskalandi í bili, þá ætla ég bara að njóta þess í botn. Maður þarf núna að fara huga að því að kaupa hrygginn, ég hef bara ekki hugmynd um hvað svona kjöt geymist lengi í kæli. Hér er þetta keypt ferskt úr borðinu, reyndar líka hægt að fá þetta vakúmpakkað án beins, sem er líklega ekkert verra, en einhvernvegin finnst mér að beinið verði að vera (einhver innræting þar á ferð).

Þjóðverjar eru komnir í jólaskap, og hér hefur verið skreytt víða. Það kólnar frekar hratt þessa dagana og hitinn á að detta í mínusgráður strax eftir helgi, þannig að það er vonandi stutt í snjóinn.

Við erum búin að kaupa jólatréð og það varð aðeins dýrara en í fyrr og aðeins minna, en við fengum bara fínt tré.