Fyrsta prufan var í Görlitz, sem er nánast jafn óspennandi bær og nafnið gefur til kynna. En húsið leit vel út, þó lítið sé og bærinn er mjög ódýr, enda held ég nú að launin séu í samræmi við það. Sú prufa fór þannig að mér var eiginlega boðið starf á staðnum. En það átti samt eftir að ræða þetta eitthvað nánar innanhúss. Og það þarf að bíða eftir því eitthvað geri ég ráð fyrir.
Umboðsmaðurinn var svakalega ánægður og sagði mér að þetta væri mjög jákvætt skref. Sem það svosem vissulega er.
Seinni prufa vikunar var svo í dag og það var í Braunschweig, þar sem ég söng Wagnerinn fyrr í vetur. Ég var mjög stressaður fyrir þessa prufu því ég vildi svo að hún gengi upp, þar sem þetta er náttúrulega svokallað A-hús, og það er stutt frá Berlín, auk þess sem ég þekki aðeins til þarna núna eftir að hafa eytt smá tíma þar. Raddlega var ég í toppformi og söng eins vel og á var kosið, nema hvað nú var það heilinn sem klikkaði, og það allsvakalega, ég var í miðri aríu sem ég hef sungið nokkuð oft og þá bara hvarf allur texti og ég vissi ekkert hvar ég var staddur í aríunni. Eftir að hafa stoppað og náð áttum, byrjaði ég aftur frá miðju, þar sem frá var horfið og kláraði, þeir báðu mig samt um að fá að heyra aðra aríu, og ég skilaði henni bara nokkuð vel. En ég held bara að þvímiður sé standardinn í A-húsum það hár að þeir færu ekki að ráða svona misheppnað akt!! Ég var svo vel undirbúinn, og svo ákveðinn í að þetta yrði góð prufa. Það er mjög þægilegt að syngja í þessu húsi og mér líður mjög vel þar. Ég er því hoppandi illur út í sjálfan mig þessa stundina.
Þriðja prufan sem mér var svo boðið í er í Stuttgart, en ég sá mér ekki fært að fara þangað með svona rosalega stuttum fyrirvara. Launin eru reyndar ágæt og þetta er aðalhlutverk, það bendir í raun allt á það að ég hefði átt að gera þetta, en ég er bara ekki undirbúinn fyrir það sem þarf að syngja þar, og hafði engan tíma í vikunni til að undirbúa það....það er því alger skömm.
Ég fer því með blendnar tilfinningar inn í jólafríið sem má eiginlega segja að hefjist hjá mér núna. Afhverju er maður að þessu getur maður endalaust spurt sig og yfirleitt fær maður alltaf sama svarið til baka: "hvað í andskotanum ætti ég svosem að gera annað?!?!?"
Friður og hamingja fylgi ykkur öllum,
Engin ummæli:
Skrifa ummæli