30.11.08

Mikið sungið, mikil þreyta en gaman

Þetta mega svosem alveg vera einkunarorð næstu daga.   Ég söng semsagt í áheyrnarprufu í fyrradag og svo á tónleikum í gær.  Ég tel að það hafi gengið mjög vel, og er nokkuð sáttur við útkomuna, þó vissulega megi alltaf gera mun betur, ég stefni þá að því næsta laugardag milli 16:30 og 20:00 þegar ég fer í áheyranarprufu hjá Staatsoper, að gera ennþábetur, og þá verður maður að vera í toppformi!   Það verður vissulega gaman að sjá hvað koma barns 1-2 dögum áður hefur að segja um það.......  úff það kemur bara þegar það kemur og það verður sem verða vill.   

Ég er að hendast til Wolfgang núna á eftir nokkrar mínútúr, ég fór semsagt líka í tíma hjá honum í gær :)  er búinn að eyða um 400 Evrum í söng í þessum mánuði, þetta kostar mikið og vonandi nær þetta nú að standa undir sér bráðum.  En komandi námslán ná kannski að bjarga einhverju, þar sem núverandi laun ná rétt að dekka mat og leigu, eitthvað minna verður það í mars, en svona er það bara, ekki vera vanþakklátur fyrir það sem maður þó hefur.

Hérna fyrir neðan birti ég svo myndband frá því í gærkvöldi, þar sem ég er að syngja hina fáránlega erfiðu "Di rigori armato il seno" úr Der Rosenkavalier eftir Richard Strauss.  Fyrir þá sem ekki vita þá er þessi aría eina tenórhlutverkið í þessari 6 tíma löngu óperu... ansi magnað ekki satt :)


28.11.08

Dagurinn í dag var merkilegur dagur

Ég vaknaði eldsnemma af sjálfsdáðum, sem gerist nú yfirleitt þegar eitthvað mikið er framundan, og það var ekki barnið, heldur var það áheyrnarprufan mikla fyrir BBC.    Ekki er ég viss um hvort það gekk vel eða illa, en mér leið allavega ágætlega og held ég hafi skilað því sem ég þurfti að skila á sómasamlegan hátt.  Sá sem var að hlusta virtist ánægður og þakkaði mér kærlega fyrir söngin, hann er breskur, og því veit maður ekkert hvaða stöðu maður er í :)   Ég var með tilbúnar 3 aríur, og ég söng fyrstu og erfiðustu aríuna ágætlega held ég, svo bað hann um næstu aríu og eftir það þurfti hann ekki að heyra meira, hvort sem það var afþví að þetta var svo gott eða svo hræðilegt á eftir að koma í ljós.  Ég hentist svo í að fá mér einn ÖL með strák sem er að syngja við Deutsche Oper, hann var einmitt á undan mér í röðinni fyrir prufuna.  Þekkti hann lítillega úr síðasta partíi hjá Janet.  Það var voða fínt.

Svo hentist ég heim þar sem Soffía var búin að kaupa handa mér litla freyðivín og Lindtt súkkulaði, hvað er hægt að biðja um meira?  Kannski að barnið manns farið að koma í heiminn??  Jahh sveimérþá.   Þegar ég var svo að sötra síðustu dropana af freyðivíninu fékk ég símtal sem mun líklega breyta framtíðinni umtalsvert, en það var símtal frá núverandi atvinnuveitanda mínum, þar sem var verið að segja mér upp störfum.   Jahhá, mér finnst einhvernvegin að ég hafi átt von á þessu í einhvern tíma og það hlaut að koma að þessu.   Ég hef ákveðið að taka þessu sem jákvæðum hlut, því við búum svo vel hérna að skulda ekkert, og eiga ekkert, því erum við kannski ekki í eins mikilli hættu með að missa allt, að auki fæ ég 6 mánaða fæðingarorlof, og það ætti að vera nóg til að ég geti allavega fengið einhverja vinnu hérna úti, og farið alfarið frá því ömurlega ástandi sem nú ríkir á Íslandi.

Óléttuhornið:
Ekkert að gerast, þýðingarlaust að vera eitthvað að ræða það frekar :)

27.11.08

Sumir eru bara leiðinlegri og geðveikari en aðrir

Ákvað að bregða mér í kvikmyndahús í kvöld til að reyna að dreifa huganum fá áheyrnarprufunni á morgun.  Ég átti frímiða á MysteryMovie hjá Cinestar, og ákvað því að drífa mig með Daníel norska, Gunnari og frú.  Yfirleitt hef ég nú séð ágætis myndir þarna, en það sem var í boði var svo lélegt að ég fór eftir 5 mínútur!  Þeir sem sjá sérstaka ástæðu til að tuða yfir því að ef ég sá bara 5 mínútur af myndinni áður en ég ákvað að fara, þeir geta bara átt sig og sínar skoðanir.  Ég er orðin það sjóaður í kvikmynda áhorfi að ég get í 90% tilfella sagt til um skemmtanagildi myndarinnar á fyrstu mínútunum, hin 10% dæma sig sjálf með leikaravali, leikstjóra og tónlist í byrjun myndar, auk þess hafði ég séð trailerinn einhverju áður og þá þurfti ég að hafa mig allan við til að æla ekki á hausinn á manneskjunni sem sat fyrir framan mig.   Þessi mynd sem var sýnd í kvöld fékk semsagt 0 af 10 mögulegum hjá mér.  Myndin sem um ræðir heitir "Vicky Cristina Barcelona" og er eftir leiðindagaurinn Woody Allen, og þar er eiginlega myndin algerlega búin að dæma sig.  Hún er að fá fína dóma á IMDB, en fínir dómar segja ekkert um skemmtanagildið, þeir segja bara til um hversu "áhugaverð" myndin er, en sá skali er bara ekki til hjá mér, þar sem ég fer fyrst og fremst eftir skemmtanagildi.

Á morgun er svo áheyrnarprufa fyrir BBC keppnina, og ég veit ekki alveg í hvaða ástandi ég er núna, er einhvernvegin ekki mikið stressaður, en veit að það á eftir að koma.  Ég kann mitt mjög vel, og verð bara að treysta því að röddin verði þarna á morgun, og ég hiti mig rétt upp, auk þess að hafa stjórn á stressinu.

Hingað kom svo ljósmóðirin okkar í morgun og fór yfir ýmis ráð sem hægt er að nota til að koma fæðingu af stað, og sagði okkur í leiðinni að þegar konur fara framyfir, þá fer fæðing oftast af stað svona 9-12 eftir settan dag, sem er svosem gott og blessað.  Soffía þorir núna ekki að nota neitt af ráðum ljósmóðurinnar, þar sem ég er að fara í áheyrnarprufuna á morgun, og þetta má alls ekki fara af stað á þeim tíma!  Þannig er bara það.  En svo má þetta nú fara að gera sig, ef þetta fer ekki af stað í kvöld, þá eru litlar líkur á að það gerist yfirhöfuð fyrr en annaðkvöld, þar sem fæðingar fara yfirleitt af stað seinnipart og á kvöldin.  Bara gaman að því.

Meira var það ekki í bili, nú er ég farinn að horfa á eitthvað og svo að sofa.  Hugsið nú til mín á morgun kl 15:30 (14:30 að IS tíma)

25.11.08

Hér ríkir einkennilegt ástand...

staðan er ss 40+5 þegar þetta er skrifað..... og nákvæmlega ekkert að gerast!

Við bíðum hin rólegustu en ekki laust við að maður sé orðin svolítið pirraður á þessu öllu saman.  Þetta skilar sér að sjálfsögðu út í geðslagið og maður hefur ekki verið allt of kátur síðustu daga, en það gætu svosem átt sér aðrar skýringar líka, svosem eins og kvíða fyrir auditionum og því sem framundan er.

Á laugardaginn eru tónleikar með nemendum Janet Williams, þar hafa verið einhver forföll og því spurði hún mig hvort ég myndi vilja koma og prófa audition prógramið mitt á fólkinu, sem ég þáði auðvitað.  Ég er því að fara hendast á generalprufu á morgun og svo auðvitað verða tónleikar kl 17 á laugardaginn.  Þetta eru bara 2 aríur, en 2 svínerfiðar  sem ég er að vona að ég nái að gera góð skil á, því ef ég get það, þá ætti í raun að vera fátt sem stoppar mig :)  

Nú svo rétt í þessu var ég að fá boð frá Staatsoper um að mæta í áheyrnarprufu 7.des, sem er frábært, það er svona 2ára prógram sem er verið að bjóða upp á þar, á launum og allt, og það væru nú aldeilis gaman að komast í það, en sjáum hvað setur.

Jæja, meira síðar, vonandi við talsvert breyttar aðstæður.

23.11.08

40 + 3

Erfinginn lætur ekki á sér kræla, og það er hreint ekki útlit fyrir að það muni gerast á næstu dögum, þó vonir manns standi nú um annað.  Ég hef allavega fengið þá ósk mína uppfyllta að barnið verði Bogamaður :) ... sem er þó eitthvað.

Hér hefur snjóað síðustu tvo daga og í gærkvöldi var nú bara ansi jólalegt.  Ég tók nokkrar myndir hérna útúm gluggan hjá okkur yfir gatnamótin frægu hér við húsið.  Það er líka búið að vera ansi kalt, eiginlega alveg nístandi kalt. 

Á síðastliðin föstudag  var haldið flott afmælispartý til heiðurs David Jones og er ég búinn að henda inn myndum af því hérna.  Svo setti ég inn svona samtýning af myndum frá þessum mánuði, maður hefur nú ekki alveg verið nógu duglegur síðustu daga að taka myndir.  EN þegar það vantar tilefni og jafnvel veður til að munda EOSinn, þá verður það bara svona.

Það eru MJÖG virkir dagar framundan.
-Barnsfæðing (nóv??)
-Áheyrnarprufa - BBC (28.nóv)
-Áheyrnarprufa - ZBF (4.des)
-Áheyrnarprufa - Staatsoper (6.des)

Allt mikilvægt fyrir mig að öllu leiti, áheyrarprufurnar verða þær fyrstu sem ég tek þátt í hérna í Berlín og viðbúið að ekki allt gangi upp, enda segja þeir sem til þekkja að það að fá eitthvað að gera út úr einni af hverjum 10 má teljast nokkuð gott!!  Ekki glæsilegar líkur mér í hag, en svona er þetta bara :)  Ég hlakka allavega mikið til að prufa þetta, þó stressið geti nú hæglega farið með mann.  

Mín beið svo í gær, þegar ég kom heim, risastórt súkkulaði dagatal frá Lindt!   Soffía ákvað að koma mér á óvart... sem er bara frábært.   Hlakka til að opna gluggana á hverjum degi og fá mér einn Lindt glaðning :)

Óléttuhornið:
Ekkert er að gerast!  Allt er tilbúið hjá okkur. Og fyrir þá sem telja að nauðsynlegt sé að gefa okkur eða barninu eitthvað þá er kannski rétt að upplýsa það sem við eigum núþegar.

-"Heimferðarföt"
-Rúm
-Vagn
-Bílstól
-Kerru
-Burðarrúm
-Burðarpoka

20.11.08

40 vikur

Þetta er dagurinn sem allir eru búnir að vera bíða eftir :)   EN ekkert er að gerast, og lítur ekki út fyrir að vera gerast í bráð.  Við erum þó á leið til læknis eftir nokkrar mínútur.  Laugardagur eða síðar til lukku, þar sem þá fæðist bogamaður :)

Ég sendi í rælni fyrirspurn í dag til Staatsoper varðandi Young Artists Program sem þeir byrjuðu á í fyrra.  Komst svo að því að umsóknarfrestur rann út 30.september sl!   jæja hvað með það, ég fékk allavega svar frá þeim og mér var boðið að sækja um þrátt fyrir það.... sem er bara frábært. Forhlustun hjá þeim er 5-6 des og svo aftur 13.des, en þá er allt ákveðið held ég.  Verður allavega gaman að sjá hvað kemur útúr því öllu saman.

17.11.08

Ég trúi bara ekki að....

...það sé tæp vika síðan ég bloggaði síðast!  Svo hratt líður tíminn núna að maður veit ekkert hvaðan á sig stendur veðrið.   Hér er ss nóg að gerast.  Ég fór 2x í bíó í síðustu viku, auk þess að syngja í svona opnum tíma hjá "advanced" nemendum Janet, svo var farið til Wolfgang, síðan á masterklass sama dag og svo í brunch og einkatíma á sunnudeginum, það má sannarlega segja að mikið hafi gerst á stuttum tíma :)  Sem er gott.

David heyrði auðveldlega framfarirnar í röddinni, og er alveg sammála þessari nýju stefnu, hann gat sýnt mér og sagt mér hvernig ég væri að gera og ætti að gera það sem ég er að gera núna og hvernig er best að þróa það. EN hann stoppar mig ekki af þegar ég er að beita of miklum þrýstingi á raddböndin, en það gerir hinsvega Wolfgang og  því er mjög gott að vera hjá honum þessa dagana.  Mér bauðst annar tími hjá David í gær, þar sem einn hætti við, og ég allranáðarsamlegast afþakkaði..... sem ég hélt ég myndi aldrei gera með tíma hjá David!!  EN málið er bara þannig núna að hver tími kostar hjá honum 17.þús ISK, og það munar sannarlega um 37þús kall.  Wolfgang lækkaði tímaverðið hjá sér á laugardaginn úr 60 í 50 þar sem við erum farnir að þekkjast betur.  Þetta munar ansi miklu!!  Sérstaklega þar sem hann er vel þess virði.
Ég var búinn að segja frá því að núna finnst mér ég fyrst eiga einhvern séns í þennan bransa og hlakka til að takast á við þetta.

Tilhlökkun vegna komu frelsarans er í lágmarki, þó manni hlakki alveg til, en maður er bara svo mikið búinn að bíða, að þetta er bara svona eitthvað sem maður fer ekkert að hugsa um fyrr en allt fer af stað, sem er líka ágætt, ekkert að vera alltaf að hugsa um þetta heldur geðinu í lagi.

Óléttuhornið:
Nú í fjarveru minni hefur kjarnakonan hún Soffía ráðist í það að þrífa íbúðina hátt og lágt, og þá á ég við nánast hvern krók og kima sem hægt er að finna í búðinni.   Þetta er soldið til marks um það hvað henni líður í raun vel, þar sem það truflaði hana ekkert að vera ólétt :)  Eða allavega ekki mikið.  Nú eru bara um 3 dagar í settan dag, og ég er sem fyrr að vona að barnið láti sjá sig í fyrsta lagi á næsta sunnudag eða 23 nóv, nú eða eitthvað aðeins seinna en það, því eins og ég held ég hafi áður minnst á þá eiga sambönd á milli Vatnsbera foreldris og Sporðdreka barns að vera mjög erfið EN hinsvegar Bogamanns barn..... það er allt annað!   Það er gaman að taka það fram að David Jones á einmitt afmæli þann 23 :)  Hann er búinn að stinga upp á sínu nafni fyrir barnið þegar það fæðist, eins og svo margir aðrir :)  Hann heitir nefnilega David Lynn Jones, og ef þetta er strákur þá á hann að heita David Lynn, en ef stelpa, þá Lynn David.   Greinilega mikið búið að hugsa þetta....... EN ég held ekki :)

Gaman væri að sjá uppástungur fólks um nöfn á erfingjann, hvort sem það er stelpa eða strákur. Og ég held að fólk geti svosem sleppt því að stinga upp á Jón Páll, þar sem sá brandari er orðinn frekar þreyttur :)  (NB við erum búin að finna nöfn hvort sem það er stelpa eða strákur)