Eins og ég sagði síðast frá þá söng ég fyrir hérna í Görlitz í þeirri veiku von að ég fengið kannski eitthvað bitastæðara, og það hefur nú svosem skilað sér að litlu leiti. Ég taldi næsta öruggt að ég fengi aðalhlutverkið í Der Vogelhändler, en eins og ég vissi svosem, er það ekki raunin, merkilegt hvað ég reynist sannspár þegar ég hugsa jákvætt!! Ég fæ allavega næst stærsta hlutverkið, sem er svosem ágætt, þó það geri líklegast ekkert fyrir mig. En það er allavega einhver vinna á bakvið það, og mér finnst eins og ég hafi eitthvað fram að færa loksins! Þetta er búið að vera ótrúelga leiðinleg barátta, og ég held, sannlega sagt, að þetta sé ekki rétta leiðin fyrir mig í lífinu. Ég er einfaldlega ekki ánægður með það að vera hafður að engu, þegar kemur að því að velja í hlutverk. Ég þarf kannski að kyngja því að ég sé ekki eins góður og ég sjálfur tel mig vera, sem er alltaf erfitt. En ég á allavega eitt ár eftir hérna til að bæði læra, og reyna fyrir mér. En eins og staðan er í dag er framtíðin ekki það bjartasta sem ég hef séð síðustu árin, en ég reyni í staðin að gleðjast yfir nýjum erfingja og því fólki sem stendur mér næst. En það er ekki alltaf auðvelt að sjá það jákvæða þegar það stendur svona nálægt. Mjög hallærislegt, en svona er það nú bara!!
M&P eru búin að vera í heimsókn síðan á Þriðjudag, ég er búinn að vera vinna eitthvað síðan þau komu og því ekki eins mikill tími verið aflögu. En við erum þó búinn að afreka það að fara til Dresden og kaupa rúm handa Júlíu, og keyra hér um svæðið og skoða okkur um.
Í dag er svolítð sem kallast hér í Þýskalandi, Christi Himmelfart, sem er alltaf ótrúlega fyndið fyrir okkur sem erum með klósetthúmorinn á réttri stillingu :) En í dag er líka það sem kallast MännerTag, sem þýðir að flestir ungir Þýskir karlmenn fara á fyllerí, og helst á hjólunum sinum einhvert útí náttúruna. Það er búið að vera áhugavert að fylgjast með því. En ég verð að viðurkenna að ég vissi ekki hvað var í gangi hérna, þegar ég sá þetta í fyrsta skipti. :) Hér í austrinu eru menn ekki eins trúaðir og í suðurþýskalandi, og því er dagurinn í dag bara fínn fyllerísdagur :) Ég get svosem skilið það :)
Júlía er búin að fá hjól frá Ömmu sinni og Afa, og það er augljóst að hún nýtur þess að hafa þau hérna í heimsókn, hegðunar mynstur hennar er allavega allt annað en við eigum að venjast, og stundum ekki á jákvæðan hátt, en svona er það bara :) Hjólið hefur ekki notið þeirrar náðar fyrir fyrir augliti ungfrúarinnar eins og vonast var eftir, hún vill bara alls ekki hjóla, og það verður ekki rætt frekar!
Hér er veður bara búið að vera sæmilegt (kringum 18-25°C), en um helgina er spáð um 30 gráðum og það þarf ekkert að fjölyrða um það hvað það verður flott.
Jæja meira verður það ekki í bili, myndir koma inn með næsta bloggi, stay tuned :)