19.6.11

Jákvæða bloggið! nýja barnið :)

Við familían skelltum okkur til Berlínar þann 17.Júni, því það hittist einmitt þannig á að ég gat fengið frí þennan eina dag í æfingaferlinu.  Við áttum líka tíma í Berlín til að fara í nákvæma sónarskoðun vegna naflastrengs vandamálsins sem hugsanlega gæti verið mjög alvarlegt, og svo ætluðum við að hitta vini, versla skó á Júlíu og fara í fögnuð í ráðherrabústaðnum.

Það er skemmst frá því að segja að þetta var allt strikað út af listanum eftir þessa ferð :)

Sónarinn gekk vel og það er mikill fjársjóður fyrir okkur að hafa fundið þetta klínik, því fólkið sem vinnur þarna er afar vingjarnlegt og manni líður vel þarna.  Ólíkt aðstæðunum hérna í Görlitz.  Allt leit mjög vel útí skoðuninni og Hákon (læknir) sagði okkur að við þyrftum ekki að hafa frekari áhyggjur af þessu, barnið vex eðlilega og nóg blóðflæði er til barnsins þrátt fyrir aðeins eina slagæð.  Þetta var því mikill léttir.  Við erum því byrjuð að huga að nafni sem verður að vanda nokkuð erfitt mál, en það hlítur að hafast á endanum.  Við fengum einnig að vita kyn barnsins og það væri gaman ef gestir síðunnar myndur taka þátt í laufléttri skoðanakönnun hérna hægramegin á síðunni, bara svona til gamans :)

Til að hjálpa til við valið sýni ég ykkir hérna sónarmynd sem við fengum.  Mun skýrari en sú sem við fengum af Júlíu. Og gæti líklegast hjálpað þeim sem ekki þegar "finna það í beinunum" hverskyns þetta er nú :)

15.6.11

Ég hata Görlitz!!

Jæja kæru lesendur, þá gerðist það sem ég óttaðist.  En það sem var of gott til að vera satt var það líka.  Ég sagði frá því byrjun mánaðarins að ég hefði sungið fyrir hérna í húsinu, AFTUR!!  Og hefði í kjölfarið fengið næst stærsta hlutverkið í Der Vogelhändler, sem ég var svosem alveg sáttur við, allavega betra en viðbjóðslega smáhlutverkið sem þeir ætluðu að bjóða mér.  Nú er semsagt komið í ljós að þeir þurfa að taka þetta hlutverk af mér, vegna "mistaka á skrifstofunnu" voru þeir búnir að lofa öðrum hlutverkinu, og höfðu ekki talað sig nógu vel saman.  Þetta þýðir að 2 vikur eru núna farnar í vaskinn af lærdómi, og ég þarf að byrja að læra annað hlutverk, sem ekki bara er ótrúlega leiðinlegt og ómerkilegt og ekki fyrir mína raddtýpu, heldur afar óspennandi kostur miðað við það sem ég var byrjaður að læra.  Ég á í raun ekki til almennileg lýsingarorð til að lýsa því hvernig mér líður núna.  Ég er gjörsamlega búinn að missa áhugann á þessu starfi, og að hugsa sér að ég eigi eitt ár eftir hérna í þessu rugli!!  Með litla möguleika að finna mér eitthvað annað að gera!

Þetta er stórkostlegt og frábært, og ég lofa því að reyna að vera jákværður í næsta bloggi. En það er gott að koma þessu frá sér á prent, til að tappa af smá reiði.

11.6.11

Heimsókn, hiti og hamagangur, EHEC...og já PS3 :)

Þá er loksins kominn tími fyrir næsta blogg. Það er erfitt núna þegar PS3 er komin inn á heimilið. Ekki gamalt en samt búið að prufa aðeins. Ég ákvað að ef ég myndi standa mig vel á tónleikunum sem nú eru afstaðnir, þá myndi ég verðlauna mig með einu svona tæki. Og viti menn, það hefur gerst. Move pakkinn var að sjálfsögðu keyptur með, og það er alveg fáránlega sniðugt. EN ég ætla ekki að fara lýsa því eitthvað nánar hérna :)

Á leið upp á Landeskrone, fjallið okkar Görlitzbúa
Mamma og pabbi komu í heimsókn síðastliðna viku og Júlía var alveg í skýjunum með að hafa einhvern að leika við og fíflast með allan tímann. Það var ótrúlega gaman að sjá hvernig hún ljómaði öll að hafa ömmu og afa í heimsókn. Og ekki spillti fyrir að læra ný lög með ömmu og fá föt og hjól að gjöf.

Við fórum til Dresden í innkaupaferð, þar sem við keyptum stærra rúm handa Júlíu, hún sefur nú í því án teljandi erfiðleika, sem er alveg magnað! En hún hefur eitthvað átt erfitt með að sofa greyið og vaknar um 3svar-4sinnum á nóttu vælandi yfir einhverju og einhverju, ef það er ekki af því að hún er þyrst, þá er það afþví að hún finnur ekki dudduna eða þarf að láta snýta sér :) Sem er tilbúið vandamál og tilkomið vegna þess að hún þarf alltaf að grenja svo mikið. Þetta er afskaplega þreytandi og skapar leiðinlegan vítahring fyrir okkur.

FD á Brúnni í Bastei

Hér var steikjandi hiti allan tíman á meðan þau gömlu voru í heimsókn, ég kvartaði ekki. En sumum fannst þetta þó heldur of heitt, og það væri lygi ef ég segði ekki að það væri voða þægilegt núna að fá smá svalara loft og lægra hitastig í nokkra daga. Við notuðum tímann í góða veðrinu m.a til að fara í stutta róðrarferð á ánni Neisse, og svo dagsferð til Sächsische Schweiz, þar sem við skoðuðum Bastei, sandsteina byggðina, og bæinn Rathenau, sem er hinumegin við ánna. Líklegast hefði maður nú gert meira ef maður hefði ekki verið með smábarn, ólétta konu og tvö gamalmenni í eftirdragi :) En þetta var mjög góð ferð, fínt að hafa svona risastóran þjóðgarð hérna rétt hjá.

Ecoli sýkinging hefur haft sín áhrif á okkur eins og aðra, aðallega í því að við kaupum og borðum síður grænmeti. En þó er það nú að breytast og fer væntanlega að aukast eitthvað. En þetta er búið að vera hlægilegt mál og erfitt, þar sem fólk þorir ekki að kaupa grænmeti.

Æfingar eru að komast á rennslis stig fyrir sumaróperusýninguna Im Weisses Rössl, sem frumsýnt verður 24.Júní nk, og lítið fer að verða um frítíma. Þó ætlum við familían að skella okkur til Berlínar þann 17.Júni og hitta vini ásamt því að fara í sónar til að að láta tékka bumbubúanum. Svo er aldrei að vita nema maður skelli sér í veislu í ráðherrabústaðnum, þar sem haldin verður árlegur fagnaður. Það er því nóg framundan, sem beturfer allt skemmtilegt og jákvætt og ætla ég þar með að láta staðar numið að sinni.

Hérna eru svo komnar inn fullt af myndum frá Júnímánuði, þar sem hæst bar heimsókn ömmunar og afans.

Heimasætan myndast vel með Bastei í bakgrunni

Heimsókn, hiti og hamagangur, EHEC...og já PS3 :)

Þá er loksins kominn tími fyrir næsta blogg.  Það er erfitt núna þegar PS3 er komin inn á heimilið.  Ekki gamalt en samt búið að prufa aðeins.  Ég ákvað að ef ég myndi standa mig vel á tónleikunum sem nú eru afstaðnir, þá myndi ég verðlauna mig með einu svona tæki.  Og viti menn, það hefur gerst.  Move pakkinn var að sjálfsögðu keyptur með, og það er alveg fáránlega sniðugt. EN ég ætla ekki að fara lýsa því eitthvað nánar hérna :)

Á leið upp á Landeskrone, fjallið okkar Görlitzbúa
Mamma og pabbi komu í heimsókn síðastliðna viku og Júlía var alveg í skýjunum með að hafa einhvern að leika við og fíflast með allan tímann.  Það var ótrúlega gaman að sjá hvernig hún ljómaði öll að hafa ömmu og afa í heimsókn. Og ekki spillti fyrir að læra ný lög með ömmu og fá föt og hjól að gjöf.

Við fórum til Dresden í innkaupaferð, þar sem við keyptum stærra rúm handa Júlíu, hún sefur nú í því án teljandi erfiðleika, sem er alveg magnað!  En hún hefur eitthvað átt erfitt með að sofa greyið og vaknar um 3-4 á nóttu vælandi yfir einhverju og einhverju, ef það er ekki af því að hún er þyrst, þá er það afþví að hún finnur ekki dudduna eða þarf að láta snýta sér :)  Sem er tilbúið vandamál og tilkomið vegna þess að hún þarf alltaf að grenja svo mikið.  Þetta er afskaplega þreytandi og skapar leiðinlegan vítahring fyrir okkur.

FD á Brúnni í Bastei

Hér var steikjandi hiti allan tíman á meðan þau gömlu voru í heimsókn, ég kvartaði ekki.  En sumum fannst þetta þó heldur of heitt, og það væri lygi ef ég segði ekki að það væri voða þægilegt núna að fá smá svalara loft og lægra hitastig í nokkra daga.  Við notuðum tímann í góða veðrinu m.a til að fara í stutta róðrarferð á ánni Neisse, og svo dagsferð til Sächsische Schweiz, þar sem við skoðuðum Bastei, sandsteina byggðina, og bæinn Rathenau, sem er hinumegin við ánna.  Líklegast hefði maður nú gert meira ef maður hefði ekki verið með smábarn, ólétta konu og tvö gamalmenni í eftirdragi :)  En þetta var mjög góð ferð, fínt að hafa svona risastóran þjóðgarð hérna rétt hjá.

Ecoli sýkinging hefur haft sín áhrif á okkur eins og aðra, aðallega í því að við kaupum og borðum síður grænmeti. En þó er það nú að breytast og fer væntanlega að aukast eitthvað.  En þetta er búið að vera hlægilegt mál og erfitt, þar sem fólk þorir ekki að kaupa grænmeti.

Æfingar eru að komast á rennslis stig fyrir  sumaróperusýninguna Im Weisses Rössl, sem frumsýnt verður 24.Júní nk, og lítið fer að verða um frítíma.  Þó ætlum við familían að skella okkur til Berlínar þann 17.Júni og hitta vini ásamt því að fara í sónar til að að láta tékka bumbubúanum.  Svo er aldrei að vita nema maður skelli sér í veislu í ráðherrabústaðnum, þar sem haldin verður árlegur fagnaður.  Það er því nóg framundan, sem beturfer allt skemmtilegt og jákvætt og ætla ég þar með að láta staðar numið að sinni.

Hérna eru svo komnar inn fullt af myndum frá Júnímánuði, þar sem hæst bar heimsókn ömmunar og afans.

Heimasætan myndast vel með Bastei í bakgrunni

2.6.11

Fyrirsöngur og tækifræri?!??!?!

Eins og ég sagði síðast frá þá söng ég fyrir hérna í Görlitz í þeirri veiku von að ég fengið kannski eitthvað bitastæðara, og það hefur nú svosem skilað sér að litlu leiti.  Ég taldi næsta öruggt að ég fengi aðalhlutverkið í Der Vogelhändler, en eins og ég vissi svosem, er það ekki raunin, merkilegt hvað ég reynist sannspár þegar ég hugsa jákvætt!!  Ég fæ allavega næst stærsta hlutverkið, sem er svosem ágætt, þó það geri líklegast ekkert fyrir mig.  En það er allavega einhver vinna á bakvið það, og mér finnst eins og ég hafi eitthvað fram að færa loksins!  Þetta er búið að vera ótrúelga leiðinleg barátta, og ég held, sannlega sagt, að þetta sé ekki rétta leiðin fyrir mig í lífinu.  Ég er einfaldlega ekki ánægður með það að vera hafður að engu, þegar kemur að því að velja í hlutverk.  Ég þarf kannski að kyngja því að ég sé ekki eins góður og ég sjálfur tel mig vera, sem er alltaf erfitt.  En ég á allavega eitt ár eftir hérna til að bæði læra, og reyna fyrir mér.  En eins og staðan er í dag er framtíðin ekki það bjartasta sem ég hef séð síðustu árin, en ég reyni í staðin að gleðjast yfir nýjum erfingja og því fólki sem stendur mér næst.  En það er ekki alltaf auðvelt að sjá það jákvæða þegar það stendur svona nálægt.  Mjög hallærislegt, en svona er það nú bara!!

M&P eru búin að vera í heimsókn síðan á Þriðjudag,  ég er búinn að vera vinna eitthvað síðan þau komu og því ekki eins mikill tími verið aflögu. En við erum þó búinn að afreka það að fara til Dresden og kaupa rúm handa Júlíu, og keyra hér um svæðið og skoða okkur um.

Í dag er svolítð sem kallast hér í Þýskalandi, Christi Himmelfart, sem er alltaf ótrúlega fyndið fyrir okkur sem erum með klósetthúmorinn á réttri stillingu :)  En í dag er líka það sem kallast MännerTag, sem þýðir að flestir ungir Þýskir karlmenn fara á fyllerí, og helst á hjólunum sinum einhvert útí náttúruna.  Það er búið að vera áhugavert að fylgjast með því.  En ég verð að viðurkenna að ég vissi ekki hvað var í gangi hérna, þegar ég sá þetta í fyrsta skipti. :)  Hér í austrinu eru menn ekki eins trúaðir og í suðurþýskalandi, og því er dagurinn í dag bara fínn fyllerísdagur :) Ég get svosem skilið það :)

Júlía er búin að fá hjól frá Ömmu sinni og Afa, og það er augljóst að hún nýtur þess að hafa þau hérna í heimsókn, hegðunar mynstur hennar er allavega allt annað en við eigum að venjast, og stundum ekki á jákvæðan hátt, en svona er það bara :) Hjólið hefur ekki notið þeirrar náðar fyrir fyrir augliti ungfrúarinnar eins og vonast var eftir, hún vill bara alls ekki hjóla, og það verður ekki rætt frekar!

Hér er veður bara búið að vera sæmilegt (kringum 18-25°C), en um helgina er spáð um 30 gráðum og það þarf ekkert að fjölyrða um það hvað það verður flott.

Jæja meira verður það ekki í bili, myndir koma inn með næsta bloggi, stay tuned :)

29.5.11

Það sem engin sér...

Frá síðasta bloggi hefur lítt markvert gerst, annað en að bankareikningurinn minn hefur farið úr 0 í 4500 á tveimur dögum.  Þetta er frelsandi tilfinning og mikill léttir, en ég á nú líklegast eftir að greiða talsverðan skatt af um 3000 Evrum, sem gæti hugsanlega náð allt að helmingi, sem er ótrúlega sorglegt og leiðinlegt, eins og skattar eru alltaf.  En samt sem áður meira en áður var til og því fagna ég ákaft.

Skattaskýrslu hefur verið skilað og samkvæmt bráðabirgðarútreikningum eigum við að fá endurgreitt um 480 Evrur, sem ég tel að verði ekki, en fínt ef satt reynist.  Konan sem hjálpaði mér með skýrsluna, er mjög yndisleg og hún er núna farin í það að reyna að redda okkur barnabótum frá byrjun árs 2010, því við höfum engar barnabætur fengið fyrir tímabilið 1.Janúar 2010 til 1.Ágúst 2010.  Þetta er auðvitað afar óeðlilegt, en ég bara gafst upp á að reyna að berjast fyrir þessu og þakkaði bara fyrir að fá eitthvað!!!  Sem er ótrúlega bjánalegt þegar maður fer að hugsa út í það.  EN skattaskýrslan er allavega frá, sem er ótrúlegur léttir!

Ég er svo búinn að frumsýna La traviata, sem var auðveldara en að borða M&M.  Kannski sökum þess að ég er nýbúinn að taka þátt í því erfiðasta sem ég hef gert hingaðtil, Das Lied von der Erde.  Ég lofa því að ég mun ekki aftur minnast á að það í þessu bloggi, nema ég syngi það aftur einhverntíma :)  La traviata var því mín ellefta frumsýning á fyrsta ári hér í Óperuhúsinu, sem ég held að sé nú bara nokkuð gott:)

Nú ég er svo búinn að syngja fyrir hérna í Görlitz.......AFTUR!!!!!  Þar sem það var greinilega ekki nóg að ég sé búinn að sýna hvað ég get!!  Þeim leist ágætlega á og það gæti farið svo að ég fengi eitt aðalhlutverk næsta vetur í kjölfarið.  Líklegast er Adam í Der Vogelhändler, en það fæ ég allt að vita á Mánudaginn kemur.  Ég er ekki bjartsýnn, því ég er farinn að hlakka til að fá þetta hlutverk, og það er alltaf vísbending um að hlutirnir fari ekki eins og ég hefði óskað mér.

Foreldrarnir koma svo hér í heimsókn á morgun að öllum líkindum, og verða hjá okkur í viku.  Júlía talar um það af og til, kannski afþví að amma og afi ætla að gefa henni hjól :)  En það verður gaman hvernig sem á það er litið.

Hér gengur allt sinn vana gang.  Soffía vex og vex með tilheyrandi verkjum og ég vinn og vinn með tilheyrandi verkjum :)  Ég ætla að reyna að taka því rólega næstu daga, vona bara að ég þurfi ekki að vera á æfingum kvölds og morgna eins og er búið að vera.  Svo var ég nú búinn að taka ákvörðun um kaup á PS3 leikjatölvu eftir tónleikana mína, en ég hef ákveðið að setja þau kaup a ís þangað til allavega 9.Júni, en þá er áætlað að Sony muni lækka verðið umtalsvert.  Ég tel allavega rétt að bíða eftir því :)

22.5.11

Sumarfrí, svik og fyrirsöngur

Það má segja að sparnaður hafi bjargað okkur í bili.  Ég á að vísu von á ágætis peningaupphæð vegna tónleika síðust helgar.  En ákkúrat núna er bara allt tómt, fyrir utan 250 evrur í sparnað.  Þetta er afar leiðinlegt ástand, en þvímiður sjálfskapað!  Nú verðum við bara að reyna að þrauka  í viku í viðbót, sem er ótrúlega langur tími.  En svona er það nú bara.

Þann 18.Maí lét ég loka VISA kortinu mínu.  Ég tók eftir 4 færslum sem ég kannaðast ekki við, færslurnar voru í sænskum krónum og töldu samtals um 100.þús krónur.  Það kom mér verulega á óvart að sjá hvað ég skuldaði mikið miðað við að ég hef lítið sem ekkert notað kortið.  Ég er því búinn að láta loka kortinu og þurfti líka að senda kortið til baka til Valitor. Ásamt kvörtun. Þetta hefur skapað möguleika á ákveðnu vandamáli í sumar.  En ég á lestarmiða í sumar, og þarf að nota visakortið sem staðfestingu á kaupum!  Engu máli skiptir þó ég get vel sannað hver ég er með persónuskilríkjum, ef ég er ekki með visa kortið gæti þetta orðið mikið vandamál.  En ég vona ekki. Það er samt búið að greiða fyrir miðann, og ég sé fyrir mér að stórvandamál verði úr þessu.  Það sem verra er er að við erum að fara í sumarfrí á þessum lestarmiða, og við fengum hann á fáránlegagóðu verði.  78 Evrur fyrir lestarferð fyrir okkur 3 til Kaupmannahafnar, það verður ekki mikið ódýrara en það.  Við förum þann 12.Júlí og ætlum að vera í um 2 vikur.  Byrjum á að dvelja í Malmö í nokkra daga og jafnvel eittvað í Köben.   Síðan er ferðinni heitir til Álaborgar þar sem við ætlum að dvelja seinni vikuna.  Þetta hangir auðvitað allt saman með því að Soffía verði í ástandi til að ferðast og að við þurfum ekki að vera í einhverjum skoðunum hérna á þessum tíma.

Á næstunni hefur mér verið boðið að syngja fyrir í húsi hérna nálægt,  mig langar að gera það en það er verið að leita að tenór til að syngja aðalhlutverk í léttari kantinum.  Sem er kannski ekki nákvæmlega fyrir mig, en ég held að það geti samt verið áhugvert að reyna, þar sem ég nenni ekki að vera hérna lengur.  Vandamálið við þetta er að þeir eru að leita að tenór frá og með 1.September nk.  Sem þýðir flutningar og vesen með lítið barn nú eða stress og vesen að bíða.  En laun og möguleikar fyrir mig eru mun betri.  Auðvitað er þetta ekki síðasta tækifærið sem mér býðst, en ég gæti trúað því að þetta eigi ekki eftir að ganga upp þrátt fyrir góðan vilja og löngun.   Ég er að fá þetta í gegnum umboðsmann konu sem ég þekki frá námskeiðunum með David Jones hér í þýskalandi.  Oft eru þetta bara sambönd og aftur sambönd.  Þessi umboðsmaður hringdi í mig og sagðist sjaldan hafa heyrt svona fallega tenórrödd og var viss um að hún gæti komið mér í eitthvað.  Þetta er víst mjög krítisk kona og líka mjög góður umboðsmaður, þannig að þetta gæti nú verið verra.  Hér er allavega allt í farvegi og þetta verður bara að gerast þegar það gerist.

Sumarið er komið með tilheyrandi hita og þrumuveðri þess á milli.  Lífið gæti ekki verið betra nema ef við ættum risastórt heimili og allt of mikið af peningum :)