13.3.11

Greining, lyfjataka, vellíðan?!

Er til eitthvað sem heitir tilviljun, eða eru bara til atvik sem maður á allajafna að taka eftir og taka mark á.  Ég hef oft hugsað um það hvernig þetta virkar allt saman, og ég held sveimér þá að ef maður er duglegur að taka eftir sínu nánasta umhverfi, og bregðast svo við því á ábyrgan hátt, þá sé manni borgið.   Ástæða þessara skrifa er sú að ég gerði einmitt það, í Xsta skipti, og það virðist hafa borgað sig enn og aftur.

Forsaga málsins er nefnilega sú að: frægur Íslendingur lést fyrir stuttu, hann var á mínum aldri, svo var það tveggja barna faðir nýfluttur inn í einbýlishúsið sitt með fjölskyldunni sinni sem lést heima hjá sér,  Hilmar Örn, fór í opna hjartaaðgerð til að laga þar fyrirliggjandi vandamál og svo fékk einn af mínum góðu vinum hjartaáfall(þó ekki af alvarlegu gerðinni).  Þetta varð til þess að ég fór og lét tékka á mér.  Það átti vissulega líka grunn í því hvernig mér hefur liðið lengi og var í raun upphaflega út af öðrum óskyldum vandamálum sem þó virðast tengd.  En niðurstöðurnar voru bæði sláandi og á sama tíma mikill léttir fyrir mig.  Ég var mældur með háþrýsting á 1.stigi (2.stig er lífshættulegt), ég fékk þá einfaldlega bara einhverjar töflur sem ég á að taka alltaf á morgnanna, og ég er búinn að vera að því núna og er ekki frá því að líðanin sé allt önnur.  Kvíðinn hefur minkað snarlega og ég á aðeins auðveldara með að einbeita mér, og læra.  Ég vissi það svosem alltaf að þetta væri ekki eðlilegt, þetta einbeitingarleysi og ókyrrð sem mér hefur alltaf þótt ég upplifa.  Svo læri ég það af móður minni að háþrýstingur er hrikalega ættgengt, því mér skilst að amma og afi heitin í Kópavoginum hafi bæði verið á þrýstingslyfjum hálfa æfina.  Mér hefur líka lærst að dætur bera arfgengið frá föður sínum til sona sinna.  Þannig að það er ekki óeðlilegt að svona sé ástatt!
Nú fleira kom út úr rannsókninni, en ég er með eðlileg neðri mörk á blóðþrýsitingi sem er mjög gott að vita því það er mun alvarlegra ef neðrimörkin eru of há.  Eins mældist skjaldkirtilshormón vel yfir eðlilegum mörkum, en það er ekki víst að það sé eitthvað til að hafa áhyggjur af.  Blóðprufa verður endurtekin og ég fæ vonandi að sjá lægru tölur.  Allt annað er eins og best verður á kosið, ég á því ekki að þurfa að hafa of miklar háhyggjur af þessu í bili.  En ég mun þó samt halda tímanum mínum hjá geðlækni svona til að strauja yfir andlegu hliðina á þessu öllusaman.

Ég er byrjaður að skoða leiðir til að græja þetta án lyfja og fyrstu skefin var að safna að mér hvítlaukstöflum og Eplaediki.  Þetta hef ég svo verið að innbyrða.  Það kemur mér á óvart að ég hafi ekki áður heyrt um undralyfið Eplaedik!!  Þetta á bara að vera lausnin á ansi mörgu, allavega er afrekalistinn langur, þó margt af því sem þar kemur fram er ekki vísindalega sannað :)  Þetta er ódýrasta undrameðal sem ég hef fundið!  Og listinn yfir það sem það á að geta hjálpað við er ansi langur.  Ég er því byrjaður að drekka þetta reglulega.  Getur allavega ekki  skaðað. Mörgum finnst bragðið hræðilegt, en ég hef alltaf verið hrifin af þessu edikbragði, svona sýrubragði :)  Rosafínt að blanda þessu í kolsýrt vatn og þá er maður komin með fínan og hressandi drykk.  Ég hef ákveðið að prufa að hætt að taka magasýrutöflurnar mínar í nokkra daga til að kanna virki undralyfsins :)   En það á að taka um 2 vikur með daglegri neyslu að koma meltingunni í lag og lækka blóðþrýstinginn!

Af vinnuvettvangi er það helst að frétta að ég frumsýndi á fimmtudaginn mína 9undu frumsýningu hér í Görlitz, en það var Litla Töfraflautan eftir Mozart. Mjög skemmtilegt að taka þátt í svona barnasýningu.  Ég hendi inn vídeói á næstu dögum. Ég ákvað að taka þetta upp fyrir dóttur mína :)  hún er of ung til að mega koma á þetta, en kannski á næsta ári má hún koma.

Ég bíð enn svara við því hvort mér verði boðin einhver stærri hlutvek hérna við húsið á næsta tímabili.  Ég er í raun búinn að gefa upp alla von um að það verði eitthvað af því en þá er það bara þannig og ég get farið að hugsa um eitthvað annað, eins og tildæmis allan tímann sem ég fæ þá að eiga með nýjum fjölskyldumeðlim :)

Þangað til næst, góðar stundir.

5.3.11

Er sagan endalausa í raun endalaus?

Það er kannski rétt að byrja á því að henda hér inn núna að hérna á Biesnitzerstrasse 31, er von á 4ða einstaklingnum í fjölskylduna.  Settur dagur er 4.September, og það verður gaman að sjá hvort það stenst, því þetta virðast vera jafn nákvæm vísindi og jarðfræði :)  Erfiður tími fyrir okkur, en vonin er auðvitað sú að þetta smelli allt inn í hefðbundin form.  Það er ekki laust við að kvíðinn byrji að setjast að, eftir reynslu fyrsta barns!!

Merkilegt er svo að segja frá því að í gær söng ég aðra sýningu mína á árinu!!  Sem er magnað þegar maður lítur til þess að nú er Mars.  Textarugl gerði þetta að leiðinda sýningu í mínum huga, en það reddaðist allt án þess að fólk tæki eftir því held ég :)

Í kjölfar frétta af heilsufari fólks, og líferni mínu og andlegu ástandi ákvað ég að leita mér lækninga.  Ég hef, svo lengi sem ég man eftir mér þjáðst af óútskýranlegum kvíða, sem hefur reyndar aldrei truflað mig neitt stórkostlega í mínu daglega lífi.  En mér hefur fundist þetta vera að versna og ég hef drukkið áfengi til að halda þessu niðri (ekki ólíklegt að vítahringur hafi skapast) :) Frekar óeðlilegt í mínum huga, en svona er þetta bara. Þessi kvíði hefur haldist niðri við það að ég hef haft mikið að gera, en nú þegar ég er einn í kotinu, og hef nægan tíma til að hugsa, þá fór þetta allt af stað aftur.  Ég fór því til læknis sem ætlar að senda mig strax í allar mögulegar og ómögulegar rannsóknir, sem er reyndar eitthvað sem ég líka oft velt því fyrir mér að gera.  Sjálfur hef ég fylgst vel með eigin blóþrýsingi og hann er alltaf fullkominn!  Sama er að segja um blóðsykurinn. En ég veit ekkert um kólestrólið, lifrina, nýrun og skjaldkirtilin, sem gætu öll átt þátt sinn í þessu. Þetta ástand mitt gæti því auðvitað átt sér líkamlegar ástæður sem er vert að rannsaka.  Ég hef verið boðaður í blóðprufur og hjartalínurit á þriðjudag, auk þess sem ég þarf að fá einhvherja græju festa við mig sem ég þarf svo að vera með í einn sólarhring.  Ég fékk svo líka ávísun á geðlækni sem ég mun að sjálfsögðu nýta mér, bara spurning hvernig það á allt eftir að ganga á þýsku!! :)

Í millitíðinni fékk ég nokkrar litlar bláar töflur af Lorazepam sem á að vera svaka fínt stuff.  Er búinn að prufa að taka það svona þegar ég finn kvíðaáhrif, segi nú ekki að mér finnist það virka, en ég finn svona mild áfengisáhrif og verð þreyttur, auk þess sem ég steinsofna á kvöldin :) En þetta er ávanabindandi lyf og því hef ég hætt inntöku þess í bili, með tilheyrandi kvíðaröskunareinkennum :) Ég auðvitað líka byrjaður að hreyfa mig meira og borða hollari mat, sem verður líklegast bara bóla eins og alltaf, en ég er þó allavega að reyna.

Heilsufar kvenkynsins í litlu fjölskyldunni er slæm þessa stundina, báðar búnar að vera með leiðinda kvef og hita sem er alls ekki gott mál, sérstaklega fyrir Soffíu.  Sú litla harkar þetta nú af sér eins og allt annað.  Hún vill mjög gjarnan spjalla við pabba sinn í símann, og byrjar samtalið alltaf á "stóra stóra flugvélin", hún man ennþá stundina þegar hún sagði bless við pabba sinn á flugvellinum og henni var þá sagt að ég væri að fara burtu í stóru flugvélinni :)  Mögnuð þessi litlu skott :)

Í næsta bloggi langar mig að sýna ykkir smá vídeó af mér í action á sviðinu :)  Á reyndar eftir að sjá myndirnar sjálfur, en það gekk ágætlega og ég vona að það verði sýningarhæft :)

Þangað til næst, góðar stundir.

27.2.11

Er ég kominn heim? Íslandsferð og annað í þeim dúr.

Görlitz heilsaði mér með ískulda, úti var um -4°C og innandyra voru þær +6°C.  Þannig að það var bara beint í hlý föt og að ofninn í svefnherberginu settur í gang.  Núna hefur hitin náð 10°C innandyra og er orðið nokkuð bærilegra. Ég hóf reyndar þýskalandsferðina á að heimsækja Ásgeir Pál í Halle, svo brunaði ég á Mercedes E-Klassanum, sem ég var uppfærður í, heim til Görlitz.

ekkert smá ánægð með voffann
Íslandsferðin var mjög góð og ég náði að gera allt það sem ég ætlaði mér að gera:
  • Borða rækjusamloku
  • Borða roastbeefsamloku
  • Borða Nonnabita
  • Rækju smörrebröd (heimagert)
  • Akureyring á Skalla
  • Íslenskur bjór
  • Humarsúpa
Að fá sér súkkulaðirúsinur
Ungrúin naut sín vel hjá ömmu og afa í Kvistholti, og fékk súkkulaðirúsínur hjá lang-afa í Hveratúni, hoppaði í pollum, lék sér í snjónum og hitti ýmis dýr sem fór afar vel í hana.

Við Soffía ákváðum að gera vel við okkur og skrá okkur inn á hótel í eina nótt og amma og afi pössuðu á meðan.  Við fórum í nudd og spa og svo út að borða, þannig að það var stórkostlega fínn dagur og kvöld. Ég kom líka fram sem gestur á hádegistónleikum í Íslensku Óperunni, þar sem ég söng með góðu fólki skemmtilega dagskrá :)

HOPPA!
Tíminn leið í raun allt of hratt, en ég naut hans, þannig að varla er hægt að kalla það tap :)  Núna eru þær mæðgur farnar norður í land og dvelja þar í einhvern óákveðin tíma.  Það er strax kominn upp söknuður hjá mér, og það er alveg merkilegt hvað maður verður háður því að hafa fólkið hjá sér.  En í staðin hef ég meiri tíma til að undirbúa og vinna að framtíðarverkefnum sem er líka mjög gott. 

Ég átti samtal við óperustjórann hérna áður en ég fór til Íslands til þess að láta í ljós óánægju mína með vinnubrögðin hérna, sérstaklega því sem snýr að loforði sem mér var gefið við undirritun samnings, sem snérist um að mér yrði boðið stærra hlutverk seinna árið mitt hérna.  Það hefur ekki gengið eftir og stóð ekki til síðast þegar ég vissi.  Ég vona bara að ég hafi náð að koma að góðum rökum á framfæri, því það er mikilvægt fyrir mig að fá einhver stærri hlutverk á efnisskránna mína.


Rétt áður en við lögðum af stað til landsins, birtist flennistór mynd af mér í Sächsische Zeitung, þar sem var verið að fjalla um óperuballið, þar sem ég fór með eitt aðalhlutverkanna.  Hér fyrir neðan má sjá þá mynd.

Að auki eru komnar inn fullt af nýjum myndum í Albúmið hennar Júlíu
Fyrir hugasama eru líka komnar skemmtilegar HDR myndir í Albúmið mitt

Caramello syngur Komm in die Gondel

11.2.11

Að heimta, stress og kvíði

Sem Caramello í Nótt í Feneyjum
GLEYMDIST
Nýjar myndir af ungfrúnni má finna hér


Á morgun er Óperuballið haldið hér í Görlitz, mikið hefur verið æft og smá þreyta að gera vart við sig, en langt í frá að þetta sé að buga mann. Ég stíg á svið sem Caramello út Nótt í Feneyjum og fæ að syngja það flottasta úr óperettunni, sem ég held að sé bara fínt mál. Ég hef allavegana verið að fá mikið hrós frá kollegum og sumum af stjórnendunum, sem er gott mál, ég hef þó ekki fengið nein viðbrögð frá aðalstjórnanda hússins, sem þó hefur horft tvisvarsinnum á mig syngja þetta aðalhlutverk. Það kom loks að því að ég fékk fund með honum, og einn kollegi minn hér í húsinu sem hefur verið hérna í 30 ár, kom með mér til að gæta að því fyrir mig að ég komi mínu á framfæri á réttan hátt og að það verði engin misskilningur. Stressið var að drepa mig fyrir þennan fund, því maður vill ekki vera sá sem er að tuða og væla, en ég held samt að þetta hafi allt farið vel, þó held ég að afar litlu verði breytt, það kann þó að gerast að ég fái allavega að læra einhver aðalhlutverk, þó ég syngi þau ekki á sviðinu. En það er strax betra en að vera bara fastur í því að syngja buffo tenór rullur sem gera nákvæmlega ekkert fyrir mig. Ég fékk þær skýringar að ég væri ráðin hér sem buffo tenór og ég myndi í raun bara fá að syngja þau hlutverk, sem er ótrúlega hallærislegt og þrönghugsað af húsinu, en ég get svosem vel skilið það að vissu leiti.

Á Mánudag er svo fyrirhuguð heimferð og allt lítur vel út hvað veður varðar, þannig að það ætti ekki að stoppa þetta af. Ég verð svo með í hádegistónleikum Íslensku Óperunnar 22.Febrúar og flýg svo aftur út 25. Kona og dóttir verða eftir á landinu í einhverja mánuði, þar sem að hér er afar lítið að gera.fyrir þær, eins og áður hefur komið fram.

Við sjáums væntanlega bráðum, og þangað til þá, góðar stundir.

4.2.11

Stormasamt í helvíti

Ýmislegt hefur gerst hérna síðustu daga, samt ekki neitt sérlega áhrifaríkt fyrir framtíðina, en áhugavert engu að síður. Það fór svo að hinn tenórinn hérna í húsinu þurfti að taka sér 13 daga veikindaleyfi vegna of mikils álags og mikillar hættu á að eyðileggja á sér röddina. Hann hafði margtalað við stjórnendur hér um að gefa sér frí, þó ekki væri nema í einn dag! Það var ekki einusinni hlustað á það. Þannig að nú er hann veikur fram að vetrarfríi. Sem þýðir að húsið hefur þurft að aflýsa einni stórri sýningu og þurfa að finna staðgengil fyrir hann í tvær sýningar í viðbót. Ótrúlega gáfuleg vinnubrögð hjá stjórnendum hér. Að sama skapi er það svo að ég óska mér afar heitt að fá meira að gera, en það virðist bara ekki ætla að gerast. Og þegar ég meina meira að gera, þá meina ég ekki að það sé komið til mín og spurt hvort ég vilji ekki læra heilt hlutverk á 5 dögum með fullt af töluðum texta, 2 arúm og 3 dúettum. Ég sagði einfaldlega bara þvert nei. Ég er búinn að leggja mikið á mig að læra mitt hlutverk, sem er í raun aðalhlutverkið, allavega syngur þekktustu melódíurnar. Ég hef samt á tilfinningunni að ég verði látin taka hitt yfir sem er ekki til að draga úr stressinu. Ég hef komið mér upp ágætis kerfi, en það er einfaldlega að kunna mitt 100% og kunna það í tæka tíð, þannig er maður búinn að koma í veg fyrir stress, það er fátt eins leiðinlegt og truflandi og breytingar á síðustu stundu. Svo ég tali nú ekki um vanvirðinguna við þá sem eru að gera sitt besta.

Allavega ég er á leiðinni, vonandi fyrir vetrarfrí, að tala við framkvæmdarstjóran hérna um að ég sé ósáttur við að fá ekki meira að gera. Ég vil einfaldlega fá tækifæri til að sýna mig, eins og var búið að lofa mér. Ég er mjög stressaður fyrir því að gera þetta, því ég þoli ekki að þurfa að vera með einhver leiðindi, ég hef verið að standa mig vel, allavega held ég það, og ég skil ekki að þeim detti ekki í hug að gefa mér einn séns. Ég kvíði allavega þessu viðtali og er þessvegna ekki búinn að panta tíma ennþá!! Umboðsmaðurinn vill ekkert gera og segir að ég verði bara að græja þetta sjálfur, sem er ansi skítt, miðað við það sem ég er að borga honum í hverjum mánuði. Ákvörðun um heimferð stendur því enn að svo stöddu.

Allavega sýningin sem átti að vera á morgun, fellur niður vegna veikinda og við familían ætlum að reyna að skella okkur í stutta borgarferð til Dresden í fyrramálið.

Það er frá litlu að segja í Júlíumálum, hún bara þroskast hratt og lærir enn hraðar. Það verður áhugavert að skilja hana eftir hjá ömmu og afa í sveitinni. Hún hefur ekki verið í pössun neinstaðar mjög lengi áður, það verður líklegast einhver mömmusýki, en það hlítur að reddast. Þegar maður skammar hana núna þá hlíðir hún, og labbar ótrúlega pirruð inn í herbergið sitt. Skellir nú samt ekki alltaf hurðum :)

Margt er stundum líkt með skyldum, þó ekki alltsaman :) Hérna erum við c.a á sama aldri.

29.1.11

Snúður og Snælda

Var að lesa Snúð og Snældu fyrir ungfrúnna um daginn, sem oft áður og komst þá að því að það er ekki einleikið að snúa á lært atferli, ekki endilega að það sé slæmt. En fyrir þá sem ekki þekkja Snúð og Snældu, sem eru kettir í barnabókmenntum, þá er Snúður hvítur á lit og Snælda er svört, og þó ég sé búinn að lesa þetta nokkrum sinnum fyrir ungfrúnna, þá ruglast ég samt alltaf, mér finnst bara algerlega ómögulegt að þetta sé svona. Auðvitað á Snúður að vera svartur og Snælda á að vera hvít, það er bara þannig, sama hvað femínista vitleysingar segja!! Ég er að reyna að lýsa myndum í bókinni og ruglast statt og stöðugt, þetta er svona eins og sálfræði tilraunin með litina, þar sem blár litur er sýndir með textanum "grænn" og svo framvegis, maður einhvernvegin á erfitt með að meðtaka þetta! :) En sama hvað ég er auðvitað orðinn vanur þessu núna, en þetta tók á að læra þetta.

Það ber kannski helst að inn eru komnar myndir fyrir Janúar mánuð í albúmið hennar Júlíu fyrir þá sem það þekkja :) En hér er einföld leið fyrir þá sem eiga erfiðara með að muna :)

26.1.11

Internetið og Júlía

Internetið small hér inn fyrir um viku síðan.  Það gekk auðvitað ekki áfallalaust fyrir sig, þar sem við áttum að fá þetta upp á mánudegi, en ekki kom það.  Ég hringdi því í Telekom til að láta vita af þessu, þar fékk ég þau svör að þau sæju ekki að neitt væri en ætluðu að láta tæknimann í málið strax í fyrramálið.  Ég fékk svo SMS snemma á þriðjudagsmorgun um að tæknibeiðninni minni hefði verið lokað, en ekki datt þetta í gang.  Ég hringdi aftur og kvartaði, mér var sagt að tæknimaður myndi hafa samband við mig fljótlega.  Ég fékk svo símtal upp úr hádegi frá tæknimanni sem sagði að þeir myndi græja þetta milli 17 og 20, ég samþykkti það svosem þar sem ég hafði ekkert annað val.  En svo uppúr 15 þá datt þetta í lag.  Ég reyndi að hringja í Telekom til að afboða tæknimann, en það gat engin gert neitt eins og venjulega.  En svo kom engin tæknimaður, þannig að þetta leystist allt að sjálfusér, og engin gat séð að nokkuð hafi verið gert :)  En við erum allavega með netið núna, ekki endilega betra en það sem var áður, en heldur ekki verra, þannig að við vælum ekkert yfir því.  Er samt ekki frá því að Youtube  virki örlítið betur en áður, og straumur frá Íslandi er líka í fínu lagi þannig séð.

Hér hefur mikill pirringur verið að gera vart við sig hjá ungu dömunni, líklegast vegna aðgerðaleysis, en gæti haft eitthvað með það að gera að hún er hætt að sofa á daginn!!  Eðlilegt hjá barni á þessum aldri?  Það skal ég ekki segja, en hún er allavega að fá þessa 10-12 tíma í svefn sem hún á að fá, hvort það svo sé verra að hún taki það allt á nótunni veit ég ekki. Hún vaknar allavega með okkur uppúr hálf 9 á morgnanna og vakir svo allan daginn og er hress og kát.  Stundum hefur hún þó lognast útaf milli 17 og 18 og þá fær hún að hvíla sig aðeins, en við þurfum að vekja hana fljótlega til að hún sofi nú eitthvað um nóttina, en það hefur aldrei verið neitt vandamál. Hún gekk hér um gólf um daginn og tautaði "Slæmar fréttir, slæmar fréttir!!"  Ekki hef ég hugmynd um hvar hún hefur heyrt þetta, því þetta er ekki beint eitthvað sem við erum að segja dags daglega, ég held meira að segja að við höfum aldrei sagt þetta.  Það var því alveg ótrúlega fyndið að heyra þetta litla skott labba um og tauta þetta :) Hún situr stundum inni í herberginu sínu og er að lesa fyrir dúkkurnar sínar í bók. Við þurfum líka alltaf að passa vel upp á að allt sé rétt gert þegar hún fer að sofa, annars fáum við að heyra það.  Allir bangsarnir þurfa að vera til staðar, auk sængur og kodda þarf hún líka að vera með teppið sitt.  Svo er algerlega ómissandi að fá sér vatnssopa áður en gengið er til náða og það úr Hello Kitty vatnsflöskunni.  Hún reynir ítrekað að ljúga að mér að hún ætli bara að fá duddurnar til að geyma þær, alls ekki setja í munninn, bara "geyma við brjóstið" eins og hún orðaði það sjálf.

Atvinnulega gengur allt vel, þrátt fyrir ýmislegt bull í æfingaplani, en svona er það bara, ég er að fá borgað fyrir þetta og nenni ekki að vera væla allt of mikið yfir því.

Þema Janúarmánaðar er "gleraugu".  Góðar stundir þar til næst.

Komst í gleraugun hennar móður sinnar og fannst það mikið sport :)

3D gleraugun hans pabba eru líka vinsæl :)

og svo eru það auðvitað gellugleraugu hennar  hátignar :)