Forsaga málsins er nefnilega sú að: frægur Íslendingur lést fyrir stuttu, hann var á mínum aldri, svo var það tveggja barna faðir nýfluttur inn í einbýlishúsið sitt með fjölskyldunni sinni sem lést heima hjá sér, Hilmar Örn, fór í opna hjartaaðgerð til að laga þar fyrirliggjandi vandamál og svo fékk einn af mínum góðu vinum hjartaáfall(þó ekki af alvarlegu gerðinni). Þetta varð til þess að ég fór og lét tékka á mér. Það átti vissulega líka grunn í því hvernig mér hefur liðið lengi og var í raun upphaflega út af öðrum óskyldum vandamálum sem þó virðast tengd. En niðurstöðurnar voru bæði sláandi og á sama tíma mikill léttir fyrir mig. Ég var mældur með háþrýsting á 1.stigi (2.stig er lífshættulegt), ég fékk þá einfaldlega bara einhverjar töflur sem ég á að taka alltaf á morgnanna, og ég er búinn að vera að því núna og er ekki frá því að líðanin sé allt önnur. Kvíðinn hefur minkað snarlega og ég á aðeins auðveldara með að einbeita mér, og læra. Ég vissi það svosem alltaf að þetta væri ekki eðlilegt, þetta einbeitingarleysi og ókyrrð sem mér hefur alltaf þótt ég upplifa. Svo læri ég það af móður minni að háþrýstingur er hrikalega ættgengt, því mér skilst að amma og afi heitin í Kópavoginum hafi bæði verið á þrýstingslyfjum hálfa æfina. Mér hefur líka lærst að dætur bera arfgengið frá föður sínum til sona sinna. Þannig að það er ekki óeðlilegt að svona sé ástatt!
Nú fleira kom út úr rannsókninni, en ég er með eðlileg neðri mörk á blóðþrýsitingi sem er mjög gott að vita því það er mun alvarlegra ef neðrimörkin eru of há. Eins mældist skjaldkirtilshormón vel yfir eðlilegum mörkum, en það er ekki víst að það sé eitthvað til að hafa áhyggjur af. Blóðprufa verður endurtekin og ég fæ vonandi að sjá lægru tölur. Allt annað er eins og best verður á kosið, ég á því ekki að þurfa að hafa of miklar háhyggjur af þessu í bili. En ég mun þó samt halda tímanum mínum hjá geðlækni svona til að strauja yfir andlegu hliðina á þessu öllusaman.
Ég er byrjaður að skoða leiðir til að græja þetta án lyfja og fyrstu skefin var að safna að mér hvítlaukstöflum og Eplaediki. Þetta hef ég svo verið að innbyrða. Það kemur mér á óvart að ég hafi ekki áður heyrt um undralyfið Eplaedik!! Þetta á bara að vera lausnin á ansi mörgu, allavega er afrekalistinn langur, þó margt af því sem þar kemur fram er ekki vísindalega sannað :) Þetta er ódýrasta undrameðal sem ég hef fundið! Og listinn yfir það sem það á að geta hjálpað við er ansi langur. Ég er því byrjaður að drekka þetta reglulega. Getur allavega ekki skaðað. Mörgum finnst bragðið hræðilegt, en ég hef alltaf verið hrifin af þessu edikbragði, svona sýrubragði :) Rosafínt að blanda þessu í kolsýrt vatn og þá er maður komin með fínan og hressandi drykk. Ég hef ákveðið að prufa að hætt að taka magasýrutöflurnar mínar í nokkra daga til að kanna virki undralyfsins :) En það á að taka um 2 vikur með daglegri neyslu að koma meltingunni í lag og lækka blóðþrýstinginn!
Af vinnuvettvangi er það helst að frétta að ég frumsýndi á fimmtudaginn mína 9undu frumsýningu hér í Görlitz, en það var Litla Töfraflautan eftir Mozart. Mjög skemmtilegt að taka þátt í svona barnasýningu. Ég hendi inn vídeói á næstu dögum. Ég ákvað að taka þetta upp fyrir dóttur mína :) hún er of ung til að mega koma á þetta, en kannski á næsta ári má hún koma.
Ég bíð enn svara við því hvort mér verði boðin einhver stærri hlutvek hérna við húsið á næsta tímabili. Ég er í raun búinn að gefa upp alla von um að það verði eitthvað af því en þá er það bara þannig og ég get farið að hugsa um eitthvað annað, eins og tildæmis allan tímann sem ég fæ þá að eiga með nýjum fjölskyldumeðlim :)
Þangað til næst, góðar stundir.


