Það ber kannski helst að inn eru komnar myndir fyrir Janúar mánuð í albúmið hennar Júlíu fyrir þá sem það þekkja :) En hér er einföld leið fyrir þá sem eiga erfiðara með að muna :)
29.1.11
Snúður og Snælda
Var að lesa Snúð og Snældu fyrir ungfrúnna um daginn, sem oft áður og komst þá að því að það er ekki einleikið að snúa á lært atferli, ekki endilega að það sé slæmt. En fyrir þá sem ekki þekkja Snúð og Snældu, sem eru kettir í barnabókmenntum, þá er Snúður hvítur á lit og Snælda er svört, og þó ég sé búinn að lesa þetta nokkrum sinnum fyrir ungfrúnna, þá ruglast ég samt alltaf, mér finnst bara algerlega ómögulegt að þetta sé svona. Auðvitað á Snúður að vera svartur og Snælda á að vera hvít, það er bara þannig, sama hvað femínista vitleysingar segja!! Ég er að reyna að lýsa myndum í bókinni og ruglast statt og stöðugt, þetta er svona eins og sálfræði tilraunin með litina, þar sem blár litur er sýndir með textanum "grænn" og svo framvegis, maður einhvernvegin á erfitt með að meðtaka þetta! :) En sama hvað ég er auðvitað orðinn vanur þessu núna, en þetta tók á að læra þetta.
26.1.11
Internetið og Júlía
Internetið small hér inn fyrir um viku síðan. Það gekk auðvitað ekki áfallalaust fyrir sig, þar sem við áttum að fá þetta upp á mánudegi, en ekki kom það. Ég hringdi því í Telekom til að láta vita af þessu, þar fékk ég þau svör að þau sæju ekki að neitt væri en ætluðu að láta tæknimann í málið strax í fyrramálið. Ég fékk svo SMS snemma á þriðjudagsmorgun um að tæknibeiðninni minni hefði verið lokað, en ekki datt þetta í gang. Ég hringdi aftur og kvartaði, mér var sagt að tæknimaður myndi hafa samband við mig fljótlega. Ég fékk svo símtal upp úr hádegi frá tæknimanni sem sagði að þeir myndi græja þetta milli 17 og 20, ég samþykkti það svosem þar sem ég hafði ekkert annað val. En svo uppúr 15 þá datt þetta í lag. Ég reyndi að hringja í Telekom til að afboða tæknimann, en það gat engin gert neitt eins og venjulega. En svo kom engin tæknimaður, þannig að þetta leystist allt að sjálfusér, og engin gat séð að nokkuð hafi verið gert :) En við erum allavega með netið núna, ekki endilega betra en það sem var áður, en heldur ekki verra, þannig að við vælum ekkert yfir því. Er samt ekki frá því að Youtube virki örlítið betur en áður, og straumur frá Íslandi er líka í fínu lagi þannig séð.
Hér hefur mikill pirringur verið að gera vart við sig hjá ungu dömunni, líklegast vegna aðgerðaleysis, en gæti haft eitthvað með það að gera að hún er hætt að sofa á daginn!! Eðlilegt hjá barni á þessum aldri? Það skal ég ekki segja, en hún er allavega að fá þessa 10-12 tíma í svefn sem hún á að fá, hvort það svo sé verra að hún taki það allt á nótunni veit ég ekki. Hún vaknar allavega með okkur uppúr hálf 9 á morgnanna og vakir svo allan daginn og er hress og kát. Stundum hefur hún þó lognast útaf milli 17 og 18 og þá fær hún að hvíla sig aðeins, en við þurfum að vekja hana fljótlega til að hún sofi nú eitthvað um nóttina, en það hefur aldrei verið neitt vandamál. Hún gekk hér um gólf um daginn og tautaði "Slæmar fréttir, slæmar fréttir!!" Ekki hef ég hugmynd um hvar hún hefur heyrt þetta, því þetta er ekki beint eitthvað sem við erum að segja dags daglega, ég held meira að segja að við höfum aldrei sagt þetta. Það var því alveg ótrúlega fyndið að heyra þetta litla skott labba um og tauta þetta :) Hún situr stundum inni í herberginu sínu og er að lesa fyrir dúkkurnar sínar í bók. Við þurfum líka alltaf að passa vel upp á að allt sé rétt gert þegar hún fer að sofa, annars fáum við að heyra það. Allir bangsarnir þurfa að vera til staðar, auk sængur og kodda þarf hún líka að vera með teppið sitt. Svo er algerlega ómissandi að fá sér vatnssopa áður en gengið er til náða og það úr Hello Kitty vatnsflöskunni. Hún reynir ítrekað að ljúga að mér að hún ætli bara að fá duddurnar til að geyma þær, alls ekki setja í munninn, bara "geyma við brjóstið" eins og hún orðaði það sjálf.
Atvinnulega gengur allt vel, þrátt fyrir ýmislegt bull í æfingaplani, en svona er það bara, ég er að fá borgað fyrir þetta og nenni ekki að vera væla allt of mikið yfir því.
Þema Janúarmánaðar er "gleraugu". Góðar stundir þar til næst.

| Komst í gleraugun hennar móður sinnar og fannst það mikið sport :) |
| 3D gleraugun hans pabba eru líka vinsæl :) |
| og svo eru það auðvitað gellugleraugu hennar hátignar :) |
23.1.11
21.1.11
Egill! Hættu nú!
Hér er byrjað að kólna og snjóa aftur, maður var nánast kominn í vorfíling því veðrið var bara orðið það gott. En nei aldeilis ekki, hér er aftur byrjað að snjóa og hitinn kominn í -3°C, sem er alveg ótrúlega leiðinlegt. En svona er það nú bara það er ekki hægt að ætlast til þess í janúar að það sé komið vor :)
Héðan er svosem lítið að frétta, nema að ég fór á fyrstu æfingu fyrir Candide í gær og það er sko ekki neitt til að hrópa húrra fyrir, því ég þarf að taka að mér afar lítl hlutverk, kórhlutverk, og ég, ásamt öðrum kollega í húsinu þurfum að standa allan tíman með kórnum í senunni og standa þar eins og fífl og syngja bara okkar örfáu tóna en að öðruleiti bar með lokaðan munn og það er ótrúlega erfitt að standa í þessu rugli. Í dag fór ég hinsvegar á æfingu fyrir einu aríuna mína í stykkinu, það gekk mjög vel og leikstjórinn hafði það sérstaklega á orði hversu fallega rödd ég hefði og hversu vel ég skilaði mínu! Verst að þessi sami leikstjóri, tók út hina aríuna mína sem er ein af þeim vinsælli úr verkinu! Algerlega óskiljanlegt og hálfvitalegt!! Gerir það að verkum að ég hef ótrúlega lítinn áhuga á þessu verki og þvímiður hef ég ekki áhuga á að leggja mikið á mig fyrir þetta, en ég mun auðvitað samt gera það, ég er ekki í því að eyðileggja fyrir öllum öðrum með neikvæðni og leiðindum, og mér líkar ekki þannig fólk, en ég hef rétt á mínum skoðunum og tilfinningum og mun halda þeim að mestu fyrir mig :)
Fyrirsögnin vísar í nýjan stjórnanda heimilisins, sem segir þetta við pabba sínn ef hún er ekki sátt við að hann sé að stoppa sig af eða gera eitthvað sem hún ekki fílar. Mér finnst þetta drepfyndið, og geri í því að stríða henni bara til að framkalla þessi viðbrögð :)
Bóndadagur gekk í garð án minnar vitundar en ég fékk dýrindis franska súkkulaðiköku með vanilluís í kaffinu í dag ásamt blómvendi og bjór, sem varð til þess áttaði mig á þessu :) Fínn dagur í dag. Þó hef ég mikið verið að snúa fyrir mér framtíðinni og reyna að átta mig á því hvað sé rétt/best að gera á næstu árum. Ég er ekki ánægður eins og staðan er í dag, þó ég sé að fá borgað ágætan pening fyrir að vera heima hjá mér og njóta samvista við fjölskylduna mest allan tímann, þá er ég bara þannig að ég kann ekki við að vera fá borgað fyrir að gera lítið sem ekkert!! Ég vil fá meira að gera og ég vil fá að reyna mig, ekki bara syngja smáhlutverk sem allir geta gert! En það sem er gott við þetta er að þetta er að móta og einfalda lífsviðmót mitt og ég á auðveldara með taka ákvarðanir. Ég stend ennþá við þá ákvörðun að vera á heimleið í lok árs 2012. Vonandi breytist samt eitthvað sem veldur því að ég endurskoða þá ákvörðun.
Meira var það ekki í bili, meira síðar.
14.1.11
Það sem koma skal......held ég!
Þá er æfingum fyrir óperuball lokið, allavega í bili. Ég fagnaði því með því að verða aftur veikur, reyndar myndi flest venjulegt fólk ekki kalla þetta veikindi, en ég get ekki unnið þegar svona er ástatt og það er ótrúlega leiðinlegt og erfitt. Eins og áður hefur komið fram, þá verð ég afar sjaldan veikur, en einhverrahlutavegna hef ég tvívegis orðið raddlaus af veikindum síðustu mánuði, og það er enganvegin skemmtilegt!! Sami hóstinn er kominn upp og áður ásamt hæsi og rugli.. Ég get ekki tengt þetta beint við ranga raddbeitingu, heldur kannski frekar við næringarástand og þétt æfingaplan. Núna tekur svo við aðeins meiri rólegheit, allavega næstu vikuna eða svo. Svo á ég nú von á að þetta þéttist aftur. Fyrsta sýning á nýju ári er ekki fyrr en 5.Febrúar nk. Svo er óperuballið á afmælisdaginn minn 12.Febrúar og svo þann 14. verður farið til Íslands í vetrarfríinu. Svo var ég að frétta eftir mjög óformlegum leiðum að það gæti farið svo að ég fái eitt aðalhlutverk á næsta tímabili, en ég trúi því ekki fyrr en ég sé það skrifað. Ef ekkert gerist þá er ég bara á leiðinni heim, en ef þetta gengur eftir gæti ég fengist til að íhuga að vera lengur. En þetta eru auðvitað allt bara hugsanir dagsins í dag. Þetta gæti breyst með stuttum fyrirvara.
Rétt í þessu var ég svo að fá símtal frá framkvæmdarstjóra sinfóníuhljómsveitarinnar í Frankfurt(Oder), þar sem hann var að biðja um upplýsingar í samninginn vegna "Das Lied von der Erde". Ég fæ semsagt ágætlega borgað, svosem ekkert til að fara yfirum yfir, en ég er ánægður með þetta. Veit reyndar ekkert hversu mikin skatt ég þarf að greiða af þessu eða hvernig það virkar, en það þarf víst að koma í ljós eins og allt annað. Ég get samt ekki neitað því að um mig fór sterkur stress hrollur, því ég kvíði þessu meira en flestu öðru sem ég hef gert á ferlinum.
Hér er orðið ansi hlýtt, og í dag er um 9 stiga hiti sem er bara nokkuð fínt, allur snjór farinn og nú tekur við rigningartímabil, sem á líklegast eftir að endast vel fram í Febrúar. En ég fagna því að snjórinn er farinn! Vodafone er búið að klippa á tenginguna okkar, 3 dögum fyrir lok samnings!! Helvítis Vodafone! Ég birti þetta blogg því í gegnum símann minn fína sem getur allt :) Við eigum svo von á að T-mobile netið detti inn á Mánudag.
Svo ein í lokin :)

8.1.11
Tolix
Mkið hefur gengið á á æfingum síðustu daga, margir eru veikir og því hef ég þurft að vera meira á æfingum en annars. En það er bara gott mál, ég er allavega búinn að læra mitt algerlega núna og þetta er bara spurning um að halda þessu við. Fyrsta arían sem ég syng er mjög erfið, ekki raddlega þó, heldur er hún mjög hröð og mikill texti. Ég hef hvergi fundið upptöku af þessari aríu í þeirri mynd sem ég þarf að syngja hana, en það er líklega vegna þess að þetta er nánast ósyngjanlegt. Það er mjög erfitt að ná andanum í þessu og til að bæta gráu á svart þarf ég að hreyfa mig svolítið með þessu :) Svosem ekki slæmt út frá heilsufræðilegu sjónarhorni, ég hef verið með léttar harðsperrur síðustu daga. Í gær fór ég svo á æfingu vegna Lied von der Erde, og það var síður en svo létt eða til að auka bjartsýni mína á það sem framundan er. Þetta er svínerfitt stykki og líklega það erfiðasta sem ég hef nokkurníma þurft að syngja!! Ég verð bara að ná þessu á þann stað að það sé allavega aðeins léttara, en kvíði gerir nú vart við sig því þó ég hafi nægan tíma þá er ekki víst að það verði nóg!
Júlía Freydís hefur verið að gleðja foreldra sína með skemmtilegri hegðun, og er hún meðal annars búin að teikna með penna á stóran hvítan púða sem við erum með í sófanum(eflaust hugsa einhverjir, "hvernig dettur ykkur í hug að vera með eitthvað hvítt nálægt óvita?"). Hún er líka búin að finna upp eitthvað sem heitir "Tolix", og eins og við komumst næst er það eitthvað sem hún virðist vera hrædd við, en samt hefur hún eitthvað verið að syngja það líka. Hún á það líka til að koma hlaupandi með hræðslusvip á andlitinu, kallandi "ljónið bíta rassinn" :) Það er greinilega margt að gerast í hausnum á litlum dömum þessa daganna. Hún setur líka saman 5-6 orða setningar af og til sem er mjög fyndið líka. En maður er auðvitað þakklátur fyrir að barnið þroskast á eðlilegan hátt :)
Þangað til næst.

3.1.11
Ekki flókið
Ekki er margt að blogga um þessa fyrstu daga ársins. Reyndar hefur verið tekin hér óformleg ákvörðun um að fara til Íslands þann 14.Febrúar næstkomandi. Hvort það fáist á eðlilegu verði er svo spurning sem á eftir að svara. Mér hálfleiðist að vera fara í því árferði sem Febrúar á til að bera með sér, en svona er það bara, enn einn jákvæður punkturinn við það að vinna sem söngvari.
Hér hefur ýmislegt gengið á síðustu daga, mismerkilegt þó :) En ég tók mig til og eldaði nýársönd á nýársdag, og verð ég nú að segja að það klikkaði ekki. En ég hafði litla hugmynd um það fyrir fram hversu gífurlegt magn af fitu er í einu andarræksni. Keyptum 2 kg önd, og þar af var líklega um 1300gr fita og bein, frekar sorglegt, en satt. Fyllingin sem við gerðum var eðall: skinka, laukur, sellerí, sveppir, brauð, salvía og heslihnetur, ROSALEGA var það gott, og passaði fullkomlega með. Í gær var svo folaldakjöt frá Íslandi, og þar sem við ákváðum að spara notuðum við sem meðlæti afgangs rauðkálshaus, afgangs púrrulauk og afgangs heslihnetur steiktum það saman á pönnu með smá balasmic og sítrónusafa!! Ruglað gott, mæli með því með öllu.
Í dag var svo löng æfing vegna óperuballs í febrúar og ég verð að segja að ég var nokkuð vel undirbúinn miðað við aðra þarna og er því nokkuð ánægður með sjálfan mig. En þetta er auðvitað bara byrjunin :) Ég er einnig byrjaður að undirbúa Das Lied von der Erde sem ég er að syngja í Apríl, og það er ekkert léttmeti skal ég segja ykkur! Ég kvíði því eiginlega því ég er held ég ekki orðinn nógu sjóaður til að syngja það verk. En ég tel að ég komist upp með það :)
Ein mynd í lokin af heimasætunni, þar hún samþykkti án vandamála að stilla sér upp með seríu um sig alla :) Kemur ágætlega út og henni fannst þetta bara gaman. Enn hvað hún er heppin að eiga svona geðveikan pabba :)

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)