26.1.11

Internetið og Júlía

Internetið small hér inn fyrir um viku síðan.  Það gekk auðvitað ekki áfallalaust fyrir sig, þar sem við áttum að fá þetta upp á mánudegi, en ekki kom það.  Ég hringdi því í Telekom til að láta vita af þessu, þar fékk ég þau svör að þau sæju ekki að neitt væri en ætluðu að láta tæknimann í málið strax í fyrramálið.  Ég fékk svo SMS snemma á þriðjudagsmorgun um að tæknibeiðninni minni hefði verið lokað, en ekki datt þetta í gang.  Ég hringdi aftur og kvartaði, mér var sagt að tæknimaður myndi hafa samband við mig fljótlega.  Ég fékk svo símtal upp úr hádegi frá tæknimanni sem sagði að þeir myndi græja þetta milli 17 og 20, ég samþykkti það svosem þar sem ég hafði ekkert annað val.  En svo uppúr 15 þá datt þetta í lag.  Ég reyndi að hringja í Telekom til að afboða tæknimann, en það gat engin gert neitt eins og venjulega.  En svo kom engin tæknimaður, þannig að þetta leystist allt að sjálfusér, og engin gat séð að nokkuð hafi verið gert :)  En við erum allavega með netið núna, ekki endilega betra en það sem var áður, en heldur ekki verra, þannig að við vælum ekkert yfir því.  Er samt ekki frá því að Youtube  virki örlítið betur en áður, og straumur frá Íslandi er líka í fínu lagi þannig séð.

Hér hefur mikill pirringur verið að gera vart við sig hjá ungu dömunni, líklegast vegna aðgerðaleysis, en gæti haft eitthvað með það að gera að hún er hætt að sofa á daginn!!  Eðlilegt hjá barni á þessum aldri?  Það skal ég ekki segja, en hún er allavega að fá þessa 10-12 tíma í svefn sem hún á að fá, hvort það svo sé verra að hún taki það allt á nótunni veit ég ekki. Hún vaknar allavega með okkur uppúr hálf 9 á morgnanna og vakir svo allan daginn og er hress og kát.  Stundum hefur hún þó lognast útaf milli 17 og 18 og þá fær hún að hvíla sig aðeins, en við þurfum að vekja hana fljótlega til að hún sofi nú eitthvað um nóttina, en það hefur aldrei verið neitt vandamál. Hún gekk hér um gólf um daginn og tautaði "Slæmar fréttir, slæmar fréttir!!"  Ekki hef ég hugmynd um hvar hún hefur heyrt þetta, því þetta er ekki beint eitthvað sem við erum að segja dags daglega, ég held meira að segja að við höfum aldrei sagt þetta.  Það var því alveg ótrúlega fyndið að heyra þetta litla skott labba um og tauta þetta :) Hún situr stundum inni í herberginu sínu og er að lesa fyrir dúkkurnar sínar í bók. Við þurfum líka alltaf að passa vel upp á að allt sé rétt gert þegar hún fer að sofa, annars fáum við að heyra það.  Allir bangsarnir þurfa að vera til staðar, auk sængur og kodda þarf hún líka að vera með teppið sitt.  Svo er algerlega ómissandi að fá sér vatnssopa áður en gengið er til náða og það úr Hello Kitty vatnsflöskunni.  Hún reynir ítrekað að ljúga að mér að hún ætli bara að fá duddurnar til að geyma þær, alls ekki setja í munninn, bara "geyma við brjóstið" eins og hún orðaði það sjálf.

Atvinnulega gengur allt vel, þrátt fyrir ýmislegt bull í æfingaplani, en svona er það bara, ég er að fá borgað fyrir þetta og nenni ekki að vera væla allt of mikið yfir því.

Þema Janúarmánaðar er "gleraugu".  Góðar stundir þar til næst.

Komst í gleraugun hennar móður sinnar og fannst það mikið sport :)

3D gleraugun hans pabba eru líka vinsæl :)

og svo eru það auðvitað gellugleraugu hennar  hátignar :)

23.1.11

Nýtt, sjóðheitt vídeó

Nýtt vídeó hefur nú litið dagsins ljós, það má finna í albúminu hennar Júlíu.

21.1.11

Egill! Hættu nú!

Hér er byrjað að kólna og snjóa aftur, maður var nánast kominn í vorfíling því veðrið var bara orðið það gott. En nei aldeilis ekki, hér er aftur byrjað að snjóa og hitinn kominn í -3°C, sem er alveg ótrúlega leiðinlegt. En svona er það nú bara það er ekki hægt að ætlast til þess í janúar að það sé komið vor :)

Héðan er svosem lítið að frétta, nema að ég fór á fyrstu æfingu fyrir Candide í gær og það er sko ekki neitt til að hrópa húrra fyrir, því ég þarf að taka að mér afar lítl hlutverk, kórhlutverk, og ég, ásamt öðrum kollega í húsinu þurfum að standa allan tíman með kórnum í senunni og standa þar eins og fífl og syngja bara okkar örfáu tóna en að öðruleiti bar með lokaðan munn og það er ótrúlega erfitt að standa í þessu rugli. Í dag fór ég hinsvegar á æfingu fyrir einu aríuna mína í stykkinu, það gekk mjög vel og leikstjórinn hafði það sérstaklega á orði hversu fallega rödd ég hefði og hversu vel ég skilaði mínu! Verst að þessi sami leikstjóri, tók út hina aríuna mína sem er ein af þeim vinsælli úr verkinu! Algerlega óskiljanlegt og hálfvitalegt!! Gerir það að verkum að ég hef ótrúlega lítinn áhuga á þessu verki og þvímiður hef ég ekki áhuga á að leggja mikið á mig fyrir þetta, en ég mun auðvitað samt gera það, ég er ekki í því að eyðileggja fyrir öllum öðrum með neikvæðni og leiðindum, og mér líkar ekki þannig fólk, en ég hef rétt á mínum skoðunum og tilfinningum og mun halda þeim að mestu fyrir mig :)

Fyrirsögnin vísar í nýjan stjórnanda heimilisins, sem segir þetta við pabba sínn ef hún er ekki sátt við að hann sé að stoppa sig af eða gera eitthvað sem hún ekki fílar. Mér finnst þetta drepfyndið, og geri í því að stríða henni bara til að framkalla þessi viðbrögð :)

Bóndadagur gekk í garð án minnar vitundar en ég fékk dýrindis franska súkkulaðiköku með vanilluís í kaffinu í dag ásamt blómvendi og bjór, sem varð til þess áttaði mig á þessu :) Fínn dagur í dag. Þó hef ég mikið verið að snúa fyrir mér framtíðinni og reyna að átta mig á því hvað sé rétt/best að gera á næstu árum. Ég er ekki ánægður eins og staðan er í dag, þó ég sé að fá borgað ágætan pening fyrir að vera heima hjá mér og njóta samvista við fjölskylduna mest allan tímann, þá er ég bara þannig að ég kann ekki við að vera fá borgað fyrir að gera lítið sem ekkert!! Ég vil fá meira að gera og ég vil fá að reyna mig, ekki bara syngja smáhlutverk sem allir geta gert! En það sem er gott við þetta er að þetta er að móta og einfalda lífsviðmót mitt og ég á auðveldara með taka ákvarðanir. Ég stend ennþá við þá ákvörðun að vera á heimleið í lok árs 2012. Vonandi breytist samt eitthvað sem veldur því að ég endurskoða þá ákvörðun.

Meira var það ekki í bili, meira síðar.

14.1.11

Það sem koma skal......held ég!

Þá er æfingum fyrir óperuball lokið, allavega í bili.  Ég fagnaði því með því að verða aftur veikur, reyndar myndi flest venjulegt fólk ekki kalla þetta veikindi, en ég get ekki unnið þegar svona er ástatt og það er ótrúlega leiðinlegt og erfitt.  Eins og áður hefur komið fram, þá verð ég afar sjaldan veikur, en einhverrahlutavegna hef ég tvívegis orðið raddlaus af veikindum síðustu mánuði, og það er enganvegin skemmtilegt!!  Sami hóstinn er kominn upp og áður ásamt hæsi og rugli.. Ég get ekki tengt þetta beint við ranga raddbeitingu, heldur kannski frekar við næringarástand og þétt æfingaplan.  Núna tekur svo við aðeins meiri rólegheit, allavega næstu vikuna eða svo.  Svo á ég nú von á að þetta þéttist aftur.  Fyrsta sýning á nýju ári er ekki fyrr en 5.Febrúar nk.  Svo er óperuballið á afmælisdaginn minn 12.Febrúar og svo þann 14. verður farið til Íslands í vetrarfríinu. Svo var ég að frétta eftir mjög óformlegum leiðum að það gæti farið svo að ég fái eitt aðalhlutverk á næsta tímabili, en ég trúi því ekki fyrr en ég sé það skrifað. Ef ekkert gerist þá er ég bara á leiðinni heim, en ef þetta gengur eftir gæti ég fengist til að íhuga að vera lengur. En þetta eru auðvitað allt bara hugsanir dagsins í dag. Þetta gæti breyst með stuttum fyrirvara.

Rétt í þessu var ég svo að fá símtal frá framkvæmdarstjóra sinfóníuhljómsveitarinnar í Frankfurt(Oder), þar sem hann var að biðja um upplýsingar í samninginn vegna "Das Lied von der Erde".  Ég fæ semsagt ágætlega borgað, svosem ekkert til að fara yfirum yfir, en ég er ánægður með þetta. Veit reyndar ekkert hversu mikin skatt ég þarf að greiða af þessu eða hvernig það virkar, en það þarf víst að koma í ljós eins og allt annað. Ég get samt ekki neitað því að um mig fór sterkur stress hrollur, því ég kvíði þessu meira en flestu öðru sem ég hef gert á ferlinum.

Hér er orðið ansi hlýtt, og í dag er um 9 stiga hiti sem er bara nokkuð fínt, allur snjór farinn og nú tekur við rigningartímabil, sem á líklegast eftir að endast vel fram í Febrúar.  En ég fagna því að snjórinn er farinn! Vodafone er búið að klippa á tenginguna okkar, 3 dögum fyrir lok samnings!!  Helvítis Vodafone!  Ég birti þetta blogg því í gegnum símann minn fína sem getur allt :)  Við eigum svo von á að T-mobile netið detti inn á Mánudag.

Svo ein í lokin :)


8.1.11

Tolix

Mkið hefur gengið á á æfingum síðustu daga, margir eru veikir og því hef ég þurft að vera meira á æfingum en annars.  En það er bara gott mál, ég er allavega búinn að læra mitt algerlega núna og þetta er bara spurning um að halda þessu við.  Fyrsta arían sem ég syng er mjög erfið, ekki raddlega þó, heldur er hún mjög hröð og mikill texti.  Ég hef hvergi fundið upptöku af þessari aríu í þeirri mynd sem ég þarf að syngja hana, en það er líklega vegna þess að þetta er nánast ósyngjanlegt.  Það er mjög erfitt að ná andanum í þessu og til að bæta gráu á svart þarf ég að hreyfa mig svolítið með þessu :)  Svosem ekki slæmt út frá heilsufræðilegu sjónarhorni, ég hef verið með léttar harðsperrur síðustu daga.  Í gær fór ég svo á æfingu vegna Lied von der Erde, og það var síður en svo létt eða til að auka bjartsýni mína á það sem framundan er.  Þetta er svínerfitt stykki og líklega það erfiðasta sem ég hef nokkurníma þurft að syngja!!  Ég verð bara að ná þessu á þann stað að það sé allavega aðeins léttara, en kvíði gerir nú vart við sig því þó ég hafi nægan tíma þá er ekki víst að það verði nóg!

Júlía Freydís hefur verið að gleðja foreldra sína með skemmtilegri hegðun, og er hún meðal annars búin að teikna með penna á stóran hvítan púða sem við erum með í sófanum(eflaust hugsa einhverjir, "hvernig dettur ykkur í hug að vera með eitthvað hvítt nálægt óvita?").  Hún er líka búin að finna upp eitthvað sem heitir "Tolix", og eins og við komumst næst er það eitthvað sem hún virðist vera hrædd við, en samt hefur hún eitthvað verið að syngja það líka.  Hún á það líka til að koma hlaupandi með hræðslusvip á andlitinu, kallandi "ljónið bíta rassinn" :)  Það er greinilega margt að gerast í hausnum á litlum dömum þessa daganna.  Hún setur líka saman 5-6 orða setningar af og til sem er mjög fyndið líka.  En maður er auðvitað þakklátur fyrir að barnið þroskast á eðlilegan hátt :)

Þangað til næst.

3.1.11

Ekki flókið

Ekki er margt að blogga um þessa fyrstu daga ársins. Reyndar hefur verið tekin hér óformleg ákvörðun um að fara til Íslands þann 14.Febrúar næstkomandi. Hvort það fáist á eðlilegu verði er svo spurning sem á eftir að svara. Mér hálfleiðist að vera fara í því árferði sem Febrúar á til að bera með sér, en svona er það bara, enn einn jákvæður punkturinn við það að vinna sem söngvari.

Hér hefur ýmislegt gengið á síðustu daga, mismerkilegt þó :) En ég tók mig til og eldaði nýársönd á nýársdag, og verð ég nú að segja að það klikkaði ekki. En ég hafði litla hugmynd um það fyrir fram hversu gífurlegt magn af fitu er í einu andarræksni. Keyptum 2 kg önd, og þar af var líklega um 1300gr fita og bein, frekar sorglegt, en satt. Fyllingin sem við gerðum var eðall: skinka, laukur, sellerí, sveppir, brauð, salvía og heslihnetur, ROSALEGA var það gott, og passaði fullkomlega með. Í gær var svo folaldakjöt frá Íslandi, og þar sem við ákváðum að spara notuðum við sem meðlæti afgangs rauðkálshaus, afgangs púrrulauk og afgangs heslihnetur steiktum það saman á pönnu með smá balasmic og sítrónusafa!! Ruglað gott, mæli með því með öllu.

Í dag var svo löng æfing vegna óperuballs í febrúar og ég verð að segja að ég var nokkuð vel undirbúinn miðað við aðra þarna og er því nokkuð ánægður með sjálfan mig. En þetta er auðvitað bara byrjunin :) Ég er einnig byrjaður að undirbúa Das Lied von der Erde sem ég er að syngja í Apríl, og það er ekkert léttmeti skal ég segja ykkur! Ég kvíði því eiginlega því ég er held ég ekki orðinn nógu sjóaður til að syngja það verk. En ég tel að ég komist upp með það :)

Ein mynd í lokin af heimasætunni, þar hún samþykkti án vandamála að stilla sér upp með seríu um sig alla :) Kemur ágætlega út og henni fannst þetta bara gaman. Enn hvað hún er heppin að eiga svona geðveikan pabba :)

1.1.11

Jahresübersicht 2010

Það er komið að síðustu andartökum ársins 2010, þó þau verði nú ekki alltaf merkilegri er mikilvægt að reyna að skrá eitthvað af því sem hér gerist niður, þannig að hægt sé að rúlla sér um í minningum liðinna tíma. Þar sem framtíðin er eins óskrifað blað og hugsast getur, sé það nú hægt, þá lítur maður aðeins til baka. Þar er reyndar afar fátt til að sjá eftir, en líklegast er hægt að velta því endalaust fyrir sér hvað hefði gerst hefði önnur leið verið valin. Við erum bara það heppin að við fáum að lifa og njóta þess sem við veljum og ég reyni að gera það, þó það sé ekki alltaf auðvelt.

Árið sem nú er að líða var viðburðaríkt fyrir litlu fjölskylduna í þýskalandi. Til að draga saman þá var það þetta sem var markverðast:

Janúar
Íslandsferðin stendur uppúr og það var gaman að komast örstutt heim, þó stoppið hafi verið stutt, hjá mér allavega :) Júlía fékk rúsínur hjá langafa i Hveratúni, fórum á tónleika hjá Karlakór Dalvíkur, borðuðum góðan mat og elduðum humar. Svo hentist ég aftur til Berlínar á meðan unga fólkið fékk að njóta fólksins á Íslandi aðeins lengur. Þennan mánuð undirritaði ég svo minn fyrsta starfssamning á erlendri grundu, og það var tveggja ára samningur. Það var auðvitað þrungið smá spennu, því ekki var alveg vitað hver endanleg laun yrðu. En það hefur allt blessast.

Febrúar
Læsti mig úti úr íbúðinni, en hafði skilið eftir opin glugga og gat því fengið að fara í gegn hjá nágrannanum :) Hélt upp á afmælið mitt með góðu fólki án fjölskyldunnar, sem er nú ekki í fyrsta skipti. Júla byrjaði að kubba alveg sjálf og ég naut þess að hafa PS3 í minni vörslu í nokkra daga :) Ég fékk svo að vita að ég væri skráður að syngja í minni fyrstu sýningu í Görlitz í Maí!! Fékk algert áfall, en ég fékk ágætlega borgað og því var það ekkert mál.

Mars
Hafnaði mínu fyrsta stórhlutverki í byrjun mánaðar. Fór á Þorrablót Íslendingafélagsins og skemmti mér mjög vel. Fyrsta músíkæfing í Görlitz, sem gekk vel og svo var farið á blaðamannafund vegna Classic Open Air í Berlín. Nóg að gera þennan mánuðinn.

Apríl
Íbúðir voru skoðaðar i Görlitz, og sem fyrr var ekkert nógu gott og maður varð ansi þreyttur á að leita. Á endanum fannst þó ein og við vorum tilbúin að flytja. Sviðsæfingar gengu vel og ég fékk hrós fyrir þýskuna mína. Sumarið fór að ganga í garð, allt of seint samt, en maður var þakklátur, eftir kaldan vetur.

Maí
Fór í viðtal hjá Berliner Morgenpost vegna Classic Open Air tónleikanna. Búinn að vera mikið að heimann vegna síðustu daga æfinga í Görlitz. Byrjuðum að undirbúa flutninga til Görlitz. Einnig fór ég á fund vegna styrkartónleika í Gedächtniskirkjunni í Berlín. Hélt upp á Eurovision í Görlitz, aleinn á hótelherbergi. Júlía hafði vaxið talsvert og í tilefni af því birti ég þessa mynd.

Júní
Byrjun Júni var köld, og alveg magnað hversu seint sumarið gekk í garð. En þegar það kom þá kom það og þá varð sko heitt. Ég upplifði leiðinda viðbrögð gegn sviðsmálningunni, að því að ég hélt, en nú hef ég fundið út að það er líklega vegna blautklúta sem við notum til að þrífa framan úr okkur. Peningar voru svo gott sem búnir á þessum tímapunkti, og það var ekki auðvelt.
Fengum góða gest í mánuðinum. Týndi veskinu mínu í rútuferð til Póllands, sem var án efa sjokk ársins. En það reddaðist sem betur fer alltsaman. Haldið var upp á 2.ára brúðkaupsafmæli. Þjóðhátíðarveisla hjá sendiráði Íslands. Soffía og Júlía héldu svo til Íslands í lok mánaðar.

Júlí
Söng á styrktartónleikum í Gedächtniskirkjunni í Berlín. Viðtal við mig birtist í Sunnlenska fréttablaðinu. Haldið var áfram að pakka niður og mála vegna komandi flutninga. Spilaði slatta af PS3 leikjum og naut lífsins. Fjölskyldan skellti sér ásamt Erlu og Gunnari til Müggelsee í smá strandferð í steikjandi hita. Æfingar með stjórnranda og Luciu Aliberti gengu vel og stórtónleikar ársins nálguðust. Mamma og Pabbi mættu á svæðið ásamt Þorvaldi, Ástu og Gabríel og glöddust með mér á þessum tímapunkti. Sömu helgi var svo flutt til Görlitz, með tilheyrandi burði og akstri. Á fólksins okkar hefði þetta ekki gengið og við erum ofurþakklát. Ég fékk góða dóma fyrir tónleikana, og við nutum þess að eiga góðar stundir með fólkinu okkar.

Ágúst
Ríkisskattsjóri Íslands ákvað að svipta okkur barnabótum og fella niður persónuafslátt! Það kostaði mikla vinnu. Mestu flóð sem hafa verið hér Görlitz urðu í mánuðinum og í kjölfarið varð kranavatnið ódrykkjarhæft. Fórum í stutt en gott sumar"frí" til Prag, þar sem við nutum lífisins í tvo daga áður en haldið var heim. Fyrstu dagar á nýjum vinnustað voru í lok mánaðar. Mikil vinna og geðheilsan að bresta.

SeptemberSótt var um barnabætur til að eiga möguleika á einhverskonar leiðréttingu hjá skattinum á Íslandi. Frumsýndi 3 sýningar í mánuðinum. Og stelpurnar komu aftur heim eftir langa dvöl á Íslandi. Aflýsti minni fyrstu sýningu á ferlinum vegna veikinda.

Október
Haustið kom, ég varð veikur í talsverðan tíma, fínt svona fyrstu daga í vinnu!!! Júlía var einnig veik, og hóstaði mikið. Það var farið að valda áhyggjum. Þétt vinnuplan og mikil þreytta gerði vart við sig.. Júlía byrjar að mynda 2-3 orða setningar.

Nóvember
Byrjaði að djúpsteikja :) Umsókn um barnabætur loksins samþykkt og endurgreiðsla frá skattinum var samþykkt. Fyrsta myndband af Júlíu að syngja tekið upp. Júlía byrjar að rífa sig úr öllu áður en hún fer að sofa. Fékk að vita að stærstur hluti míns hlutverks í Candide var klipptur burt, mikil reiði fylgdi. Tengdó kom í heimsókn í lok mánaðar.

Desember
Eignaðist nýjan og flottan síma. Áttum góðar stundir með tengdó. Söng íslenskt jólalag á jólatónleikum hér í Görlitz. Heimasætan varð tveggja ára og haldin var lítil veisla í tilefni þess. Fórum á jólamarkað í Dresden, og unnum í jólaleik Sixt, Weg.de og fengum bílaleigubíl, hótelgistingu og 250 evrur í vinning. Ótrúlega frábært. Yfirgengilegur snjór og mikill kuldi einkenndi mánuðinn. Fékk svo þær ömurlegur fréttir í lok mánaðar að ég yrði áfram í buffo hlutverkum næsta tímabil þrátt fyrir loforð um að fá eitthvað stærra! Leiðinlegt að kveðja árið á þennan hátt, en svona er það nú bara. Kláraði svo árið á 9 tíma törn með tveimur sýningum og svo léttum skotfíling með stúlkunum áður en farið var að sofa.

Stórt og mikið ár er liðið, leiðinlegasta og skemmtilegasta, leiðinlegt og skemmtilegt. Er þetta ekki bara jafnvægið? Næsta ár þarf að vera nokkuð merkilegt til að toppa þetta. Ekki það að það þurfi alltaf að toppa allt :) Það er það sem kom Íslandi í þá stöðu sem það er í núna :)