1.1.11

Jahresübersicht 2010

Það er komið að síðustu andartökum ársins 2010, þó þau verði nú ekki alltaf merkilegri er mikilvægt að reyna að skrá eitthvað af því sem hér gerist niður, þannig að hægt sé að rúlla sér um í minningum liðinna tíma. Þar sem framtíðin er eins óskrifað blað og hugsast getur, sé það nú hægt, þá lítur maður aðeins til baka. Þar er reyndar afar fátt til að sjá eftir, en líklegast er hægt að velta því endalaust fyrir sér hvað hefði gerst hefði önnur leið verið valin. Við erum bara það heppin að við fáum að lifa og njóta þess sem við veljum og ég reyni að gera það, þó það sé ekki alltaf auðvelt.

Árið sem nú er að líða var viðburðaríkt fyrir litlu fjölskylduna í þýskalandi. Til að draga saman þá var það þetta sem var markverðast:

Janúar
Íslandsferðin stendur uppúr og það var gaman að komast örstutt heim, þó stoppið hafi verið stutt, hjá mér allavega :) Júlía fékk rúsínur hjá langafa i Hveratúni, fórum á tónleika hjá Karlakór Dalvíkur, borðuðum góðan mat og elduðum humar. Svo hentist ég aftur til Berlínar á meðan unga fólkið fékk að njóta fólksins á Íslandi aðeins lengur. Þennan mánuð undirritaði ég svo minn fyrsta starfssamning á erlendri grundu, og það var tveggja ára samningur. Það var auðvitað þrungið smá spennu, því ekki var alveg vitað hver endanleg laun yrðu. En það hefur allt blessast.

Febrúar
Læsti mig úti úr íbúðinni, en hafði skilið eftir opin glugga og gat því fengið að fara í gegn hjá nágrannanum :) Hélt upp á afmælið mitt með góðu fólki án fjölskyldunnar, sem er nú ekki í fyrsta skipti. Júla byrjaði að kubba alveg sjálf og ég naut þess að hafa PS3 í minni vörslu í nokkra daga :) Ég fékk svo að vita að ég væri skráður að syngja í minni fyrstu sýningu í Görlitz í Maí!! Fékk algert áfall, en ég fékk ágætlega borgað og því var það ekkert mál.

Mars
Hafnaði mínu fyrsta stórhlutverki í byrjun mánaðar. Fór á Þorrablót Íslendingafélagsins og skemmti mér mjög vel. Fyrsta músíkæfing í Görlitz, sem gekk vel og svo var farið á blaðamannafund vegna Classic Open Air í Berlín. Nóg að gera þennan mánuðinn.

Apríl
Íbúðir voru skoðaðar i Görlitz, og sem fyrr var ekkert nógu gott og maður varð ansi þreyttur á að leita. Á endanum fannst þó ein og við vorum tilbúin að flytja. Sviðsæfingar gengu vel og ég fékk hrós fyrir þýskuna mína. Sumarið fór að ganga í garð, allt of seint samt, en maður var þakklátur, eftir kaldan vetur.

Maí
Fór í viðtal hjá Berliner Morgenpost vegna Classic Open Air tónleikanna. Búinn að vera mikið að heimann vegna síðustu daga æfinga í Görlitz. Byrjuðum að undirbúa flutninga til Görlitz. Einnig fór ég á fund vegna styrkartónleika í Gedächtniskirkjunni í Berlín. Hélt upp á Eurovision í Görlitz, aleinn á hótelherbergi. Júlía hafði vaxið talsvert og í tilefni af því birti ég þessa mynd.

Júní
Byrjun Júni var köld, og alveg magnað hversu seint sumarið gekk í garð. En þegar það kom þá kom það og þá varð sko heitt. Ég upplifði leiðinda viðbrögð gegn sviðsmálningunni, að því að ég hélt, en nú hef ég fundið út að það er líklega vegna blautklúta sem við notum til að þrífa framan úr okkur. Peningar voru svo gott sem búnir á þessum tímapunkti, og það var ekki auðvelt.
Fengum góða gest í mánuðinum. Týndi veskinu mínu í rútuferð til Póllands, sem var án efa sjokk ársins. En það reddaðist sem betur fer alltsaman. Haldið var upp á 2.ára brúðkaupsafmæli. Þjóðhátíðarveisla hjá sendiráði Íslands. Soffía og Júlía héldu svo til Íslands í lok mánaðar.

Júlí
Söng á styrktartónleikum í Gedächtniskirkjunni í Berlín. Viðtal við mig birtist í Sunnlenska fréttablaðinu. Haldið var áfram að pakka niður og mála vegna komandi flutninga. Spilaði slatta af PS3 leikjum og naut lífsins. Fjölskyldan skellti sér ásamt Erlu og Gunnari til Müggelsee í smá strandferð í steikjandi hita. Æfingar með stjórnranda og Luciu Aliberti gengu vel og stórtónleikar ársins nálguðust. Mamma og Pabbi mættu á svæðið ásamt Þorvaldi, Ástu og Gabríel og glöddust með mér á þessum tímapunkti. Sömu helgi var svo flutt til Görlitz, með tilheyrandi burði og akstri. Á fólksins okkar hefði þetta ekki gengið og við erum ofurþakklát. Ég fékk góða dóma fyrir tónleikana, og við nutum þess að eiga góðar stundir með fólkinu okkar.

Ágúst
Ríkisskattsjóri Íslands ákvað að svipta okkur barnabótum og fella niður persónuafslátt! Það kostaði mikla vinnu. Mestu flóð sem hafa verið hér Görlitz urðu í mánuðinum og í kjölfarið varð kranavatnið ódrykkjarhæft. Fórum í stutt en gott sumar"frí" til Prag, þar sem við nutum lífisins í tvo daga áður en haldið var heim. Fyrstu dagar á nýjum vinnustað voru í lok mánaðar. Mikil vinna og geðheilsan að bresta.

SeptemberSótt var um barnabætur til að eiga möguleika á einhverskonar leiðréttingu hjá skattinum á Íslandi. Frumsýndi 3 sýningar í mánuðinum. Og stelpurnar komu aftur heim eftir langa dvöl á Íslandi. Aflýsti minni fyrstu sýningu á ferlinum vegna veikinda.

Október
Haustið kom, ég varð veikur í talsverðan tíma, fínt svona fyrstu daga í vinnu!!! Júlía var einnig veik, og hóstaði mikið. Það var farið að valda áhyggjum. Þétt vinnuplan og mikil þreytta gerði vart við sig.. Júlía byrjar að mynda 2-3 orða setningar.

Nóvember
Byrjaði að djúpsteikja :) Umsókn um barnabætur loksins samþykkt og endurgreiðsla frá skattinum var samþykkt. Fyrsta myndband af Júlíu að syngja tekið upp. Júlía byrjar að rífa sig úr öllu áður en hún fer að sofa. Fékk að vita að stærstur hluti míns hlutverks í Candide var klipptur burt, mikil reiði fylgdi. Tengdó kom í heimsókn í lok mánaðar.

Desember
Eignaðist nýjan og flottan síma. Áttum góðar stundir með tengdó. Söng íslenskt jólalag á jólatónleikum hér í Görlitz. Heimasætan varð tveggja ára og haldin var lítil veisla í tilefni þess. Fórum á jólamarkað í Dresden, og unnum í jólaleik Sixt, Weg.de og fengum bílaleigubíl, hótelgistingu og 250 evrur í vinning. Ótrúlega frábært. Yfirgengilegur snjór og mikill kuldi einkenndi mánuðinn. Fékk svo þær ömurlegur fréttir í lok mánaðar að ég yrði áfram í buffo hlutverkum næsta tímabil þrátt fyrir loforð um að fá eitthvað stærra! Leiðinlegt að kveðja árið á þennan hátt, en svona er það nú bara. Kláraði svo árið á 9 tíma törn með tveimur sýningum og svo léttum skotfíling með stúlkunum áður en farið var að sofa.

Stórt og mikið ár er liðið, leiðinlegasta og skemmtilegasta, leiðinlegt og skemmtilegt. Er þetta ekki bara jafnvægið? Næsta ár þarf að vera nokkuð merkilegt til að toppa þetta. Ekki það að það þurfi alltaf að toppa allt :) Það er það sem kom Íslandi í þá stöðu sem það er í núna :)

Gleðilegt nýtt ár :)

28.12.10

Síðasta blogg ársins 2010

Mér leiðist að geta ekki endað síðasta blogg ársins á eins jákvæðum nótum og hægt er, en mun samt reyna. Þetta er reynar næst síðasta blogg ársins, þar sem ég á eftir að henda inn stutta samantekt fyrir árið, það kemur fyrr en seinna :)

Ég var að frétta frá hinum tenórnum í húsinu hérna að hann muni fara með aðalhlutverkin í öllum 4 uppsetningunum á næstu leiktíð. Þetta þýðir semsagt það að ég mun ekki fá að spreyta mig á einu aðalhlutverki, eins og hafði verið ýjað að við undirritun samningsins. Talað var um Belmonte í Flóttanum úr kvannabúrinu eftir Mozart. En það er ekki á dagskrá!! Það hefði svosem þá bara átt að bjóða mér eitthvað annað í staðin. Ég lít á þetta sem hrein og klár svik, og hef ákveðið að endurnýja ekki samninginn minn hérna um fleiri ár, þ.e ef þeir vilja á annað borð hafa mig. Ég er mjög vonsvikinn, því þetta hægir á öllu í kringum mig, því nú hef ég ekkert á efnisskránni til að koma mér á framfæri. Ég hef því ákveðið að öllu óbreyttu er ég hættur í þessu rugli (söngnum í þýskalandi). Tilfinningalegur rússíbani sem ég má bara hreinlega ekki við lengur, ég er orðinn þreyttur og pirraður og það er ekki gaman að eyða flestum dögum ársins í því ástandi, sama hvað hver segir. Betra er þá bara að geta notið þess að vera með fjölskyldunni, og vinna einhverja góða vinnu sem maður þarf ekki stöðugt að vera með heima hjá sér. Eftir síðustu fréttir er þetta auðveld ákvörðun og satt best að segja er ég nánast búinn að vera leita að ástæðu til að hætta þssu bara. Hvað tekur við??? Eg veit það ekki, og það er fínt, en allavega að vera búinn að taka ákvörðun er útaf fyrir sig stór áfangi.

Næst tekur svo við Nótt í Feneyjum á afmælisdaginn minn í Febrúar, svo hefst Candide í Mars og svo er það La traviata.

Ég held áfram að vinna sem áður og mun ekkert gera það með hangandi hendi, það hjálpar til að vita að ég þarf ekki að vera fullkominn, því ég er hvort sem er að hætta og mér gæti ekki verið meira sama, vonandi léttir það eitthvað stressið.

Jólin voru mjög góð, allt of stutt, sú litla naut þess að miklu leiti, helst þó að hún er búin að fatta að biðja um "bara eitt í viðbót" sem þýðir súkkulaði :) Hún fékk fullt af flottum pökkum og var rosalega glöð. Hún hefur látið ljótréð alveg í friði sem er stórmerkilegt. Hún lét líka alla pakkana undir trénu í friði. Spurning hvort hér sé um aðhaldsríkt og gott uppeldi að ræða?? :)

Jóladagur og annar í jólum fóru í lærdóm hjá mér sem var ekki það skemmtilegasta sem ég gat hugsað mér að gera þessa daga, en ég kom miklu í verk og það léttir aðeins undir. Þó tók maður frá smá tíma með fjölskyldunni til að fara út á snjóþotunni, ég hendi inn vídeói af því við tækifæri.

Hér er tvær vetrarmyndir í lokin
Úti að róla í ískulda annan í jólum
Fullt af snjó eins og sjá má

25.12.10

Jólin á Bies - Frohe Weihnachten

Nokkrar myndir eru komnar inn frá Jólahaldi. Blogg kemur síðar.

Gleðilega hátið kæra fjölskylda og vinir

20.12.10

Berlín, vinningsferðin

Þá erum við komin til baka úr langþráðu "fríi", ég segi það svona vegna þess að þetta var ekki mikið frí. Einhverjir kunna að hlæja að þessu af tveimur ástæðum, annarsvegar vegna þess að fólk skilur ekki að það sé flókið að fara í frí þegar við erum bara 3, og hinsvegar vegna þess að Júlía er orðin rúmlega 2.ára og ég giska á að þeir sem hafa einhverntíma þurft að eiga við börn á þeim aldri viti hvað er verið að tala um. Við vorum skítþreytt eftir hvern dag. Ekki svo að skilja að við höfum ekki notið þess, en maður stendur sig að því að óska sér að við værum bara tvö að fara í smá helgarferð án Júlíu. En svona er þetta bara. Sú litla held ég að hafi nú notið þess, ég vona það allavega. Hún er búin að vera fá jaxla og hefur það valdið miklum og snöggum veikindum ásamt miklum niðurgangi og tilheyrandi pirringi. Soffía hefur líka verið að þjást af kvefi og því var ekki sérstaklega mikil tilhlökkun í loftinu eftir þessari annars langþráðu ferð.

Best Western Hótelið var í fáum orðum sagt lélegt, starfsfólk var vingjarnlegt og morgunverðurinn var bara mjög góður, en herbergið var ömurlegt, auk þess að vera við umferðargötu og götu þar sem sporvagn fór um á 20 mín fresti eldsnemma fram á kvöld. Við höfðum það nú samt af, og fórum, næsta dag, á næsta hótel, sem ég hafði ákveðið að yrði bara líka Best Western en nálægt Alexanderplatz(pöntun gerð ekki vitandi hvernig keðja þetta væri). Svosem ekkert ömurlegt, en samt ekki nógu gott. Þjónustan var sem áður fín. Við kíktum á jólamarkað í Gendarmenmark, og hann var mjög fínn sem áður. Þó var eitthvað minna af almennilegum varningi til kaups, og heldur meira af allskyns stöðum til að setjast inn á og borða. Við komum við í Ostabúðinni eins og fyrri ár og keyptum rosalega góða osta. Þeir sem hafa smakkað þetta kannast við gæðin :) Nú auðvitað var líka kíkt í sushi á uppáhalds staðinn okkar við Kochstrasse/Checkpoint Charlie, það klikkaði ekki frekar en áður.

Í dag var fór ég svo í tíma hjá Wolfgang, og svo fórum við að versla inn hamborgarhrygg fyrir jólin. Við fórum í Karstadt þar sem við fengum þennan líka flotta hrygg í fyrra. Og viti menn sama merki var til og það var að sjálfsögðu fjárfest í nánast 3kg stykki. Þetta er bara matur sem er alltaf góður og ekki dýr, það er því ekkert að því að eiga smá af þessu :) Tuborg Jólabugg og smá jólabjóra sampler var einni keyptur á sama stað, og svo var haldið heim á leið til Görlitz. Ferðin gekk vel, en það verður einhver bið á að við nennum þessu aftur með ungfrúnna. Hún er afskaplega erfið og það er bara að versna. Kannski er það okkur að kenna, og kannski er þetta bara svona þrátt fyrir okkar bestu viðleitni. Maður veit það ekki, en við reynum að gera okkar besta sem í raun það eina sem hægt er að gera.

Við erum búin að kaupa inn stórt og fínt jólatré og verður það líklega skreytt með viðhöfn á næstu dögum. Ég sakna þess eilítið að fara ekki í gott skötuborð með fjölskyldunni, en svona er það nú víst. Maður fær bara engu ráðið.

Framundnan er svo gífurlega stífur lærdómur, vegna Óperuballs sem verður 12.Febrúar nk, ég þarf að syngja glettilega erfiðar aríur og tvö samsöngsatriði úr Nótt í Feneyjum. Fyrir þá sem muna, þá söng ég í sömu óperettu í Íslensku óperunni fyrir nokkrum árum. En það eru 2 tenórhlutverk, og auðvitað þarf ég að syngja það sem ég hef aldrei áður sungið!! Vissulega gott en líka afar slæmt, þar sem við höfum lítin tíma til að undirbúa okkur og þetta er mikill texti!! En vonandi gengur þetta allt upp að lokum.

Úti snjóar lárétt og spáð er vonsku veðri hérna í nótt og á morgun. Ég er að fara á hardcore æfingu í fyrramálið, þannig að það er kannski rétt að setja punktinn hérna.

12.12.10

Jólin koma, jólin koma, kuldi heimsókn og snjór.

Jólatréð á Jólamarkaðnum í Dresden
Eftir að hafa sungið á 6 jólatónleikum það sem af er Desember (4 eftir), verð ég að segja að ég er ekki kominn í jólagírinn. Jólatónleikarnir hér á bæ eru ekki beint það sem hægt er að kalla jólalegt, allavega ekki miðað við Jólatónleika Skálholtskórs. Þetta er reyndar ekki mikið jólalegt ef frá er talin "Nóttin var sú ágæt ein" sem fær alltaf mikið klapp. Tónleikunum er reyndar lokið með samsöng á lögum eins og "O du fröhliche, Alle Jahre Wieder, O Tannenbaum og Stille Nacht", þar af þekki ég tvö, eflaust kannast þeir sem mér eldri eru við hin tvö. Tónleikarnir hafa gengið vel og ekki hægt að kvarta yfir aðsókn, þar sem uppselt er og hefur verið á alla tónleika í Desember.

Sísi, tengdó, kom hér í heimsókn í byrjun Desember, og kom með hangikjöt, appelsín, púðursykur og sitthvað það sem mikilvægt er til jólahalds og ekki fæst hérna í þýskalandi. Það var ótrúlegur léttir. Við áttum ótrúlega fínar stundir, og skelltum okkur meðal annars til Dresden á jólamarkað, sem er einn sá flottasti sem ég hef séð. Markaðirnir í Berlín eru bara drasl miðað við Dresden! Við drukkum Glühwein, og enduðum svo á að kaupa okkur eina flösku af Glühwein frá Nürnberg, sem er talinn einn elsti jólamarkaður þýskalands, það var svakalega gott! Mér hefur aldrei þótt þetta glöggsull gott, en þetta er eins og Sushi, ef maður fær ekki almennilegt og gott glögg þá er hætt við að maður vilji ekki smakka aftur. Einnig var prufað að kaupa síld hér úti í kjörbúð og bragðast hún bara eins og það besta sem maður hefur smakkað, maður þarf nú reyndar að borga fyrir það, en ef maður er á þeim buxunum þá er þetta fínt. En það sem vantar til að hafa með síldinni er rúgbrauðið. Það var svosem ekki að spyrja að því en tengdó henti þá í rúgbrauð og var það svo borðað með bestu lyst ásamt síldinni.

Hér hefur snjóað og snjóað og manni líður bara eins og væri maður staddur á Íslandi. Hér hefur líka frosið allsvakalega, þó hitastigið síðustu daga hafi verið ásættanlegt (í kring 0 gráður).

Júlía litla er komin með hor í nös og ljótan hósta aftur, ég vona að þetta verði þó að mestu farið fyrir jól, þvi þetta er alveg hræðilega leiðinlegt, bæði fyrir hana og okkur. En annars gengur allt vel. Við fórum með hana í tveggja ára skoðun um daginn, og fékk hún góða einkun, sem var svosem vitað fyrir fram þar sem við erum ekki heimskingjar, og það er augljóst að hún getur allt sem hún þarf og á að geta á þessu aldursstigi. Samt sem áður, þá var hreinlega hætt við sjónprófið þar sem hún talar ekki þýsku, og því gat hún ekki sagt Á ÞÝSKU nöfnin á þeim formum sem var bent á í sjónprófinu, því fengum við ávísun á augnlækni, þar sem við eigum að fara og láta kanna sjónina!!! Heimskulegt en svona er þetta bara og maður er orðin vanur því hérna :)

Jæja þá er það ekki meira, myndir segja ansi margt og það er komin inn slatti af þeim á myndasvæðið. Bæði Nóvember og Desember.

Næsta blogg verður svo eftir verðlauna ferð okkar til Berlína næstu helgi :)

Ljúkum þessu á mynd af forkunnar fögru jólatré og skreytingu frá þeim félgögum okkar hérna Póllands megin :) Smekk fólk eins við vitum.

5.12.10

Tveggja ára


Jæja góðir tilheyrendur, þá er loknum merkilegum degi í lífi heimasætunnar. Hún er nefnilega orðin tveggja ára. Eða "hosos" (=eins árs) eins og sumir halda ennþá, þetta er líklegast landlægt að meðal kvenna, að ljúga til um aldur, allavega í sönggeiranum :)

Ekki ætla ég að hafa mörg orð um það en birta í stað þess myndir sem eiga að segja meira en mörg orð.

Við þökkum góðar kveðjur, hvort sem á Facbook eða símleiðis :)