25.3.10

"hér er búið að kúka og pissa útum allt!!"

Þessi fræga setning heyrðist í dag í lestinni á heimleið úr sérdeilis góðri bæjarferð í 22°C hita. Fjölsk á Kurfürstenstrasse ákvað að gera sér dagamun í tilefni veðurs og skella sér niður í bæ, sem hefur líklega ekki gerst síðan síðasta sumar. Setning kom þegar ungfrúin var að leika sér í lestinni, og datt í gólfið, fS sagði þá þessar góðu og líklega ekki svo sönnu setningu :)

Við vorum búin að fá veður af "leynileið" inn í Reichstag bygginguna og nýttum okkur það, og viti menn, í stað þess að standa í biðröð í 2 tíma komumst við inn á 5 mínútum eða svo......!!!! það munar sko um minna. Maður á tvo kosti, annarsvegar að þykjast vera fatlaður.....eða að vera með barnavagn, og við prufðum auðvitað fyrri kostinn :) En án gríns, þá virðist vera nóg að maður sé yfir fimmtugt til að komast þarna inn án athugasemda, það er frekar sorglegt að sjá fullfrískt fólk valsa þarna inn án sjáanlegrar ástæðu. En það minnir mig á annað sem ég sá í dag í fréttum, en það er ákvörðun sem forstöðukona fjölskylduhjálparinnar tók, og ég styð hana 100% í einu og öllu, þar sem ég tel að hagsmunir barnafólks og eldra fólks eigi mun hærri rétt en réttur fólks sem flytur milli landa og ætlast til að fá sömu réttindi og þeir sem eru búnir að búa og starfa í landinu frá fæðingu. Þetta er það sem er að verða til vandræða í flestum vestrænum ríkjum, sérstaklega Evrópu, að fólk úr allt öðrum menningarheimi kemur og veit að okkar "kristnu gildi" munu gera þeim kleyft að krefjast hvers sem er í krafti þeirra, og þvímiður er það svo að nú eru þessir menningarheimar að taka yfir í mörgum löndum með óeðlilegar kröfur um menntun og efni á þeirra tungumáli. Það er erfitt a segja nokkuð um þetta án þess að útlendingaelskandi einstaklingar fari offari í að segja hvað ég sé óumburðarlyndur og mikill kynþáttahatari, en það er bara umræða til annars tíma. Þeim sem finnst ég vera óumburðarlyndur geta bara étið skít og reynt að skilja hvað er að gerast í heiminum, ekki bara í sínu einangraða litla umhverfi!!

Allavega þá var dagurinn frábær og búið er að henda inn fullt af myndum í tilefni hans. Ég er að hendast til Görlitz til æfinga á mánudag og kem vissulega aftur hingað til Berlínar um páskana og hver veit nema lítill frændi kíki í heimsók ásamt öllu stærri skyldmennum :) Það verður auðvitað bara gaman!

Komnar eru FULLT af nýjum myndum í albúm!!!!

Nýjar myndir frá því í dag

Aðrar nýjar myndir frá því í MARS


22.3.10

Júlía og baðið og klósettið

Vorum að henda inn stuttu vídeói af þeirri stuttu að uppgötva lífsins gagn og nauðsynjar,


20.3.10

Vorið eeeeeeer alveg að koma

Hér hefur hlýnað nokkuð frá því að síðast var ritað, hér er hefur núna verið í kringum 15 stiga hiti síðustu 2-3 daga. Maður finnur fyrir því á margvíslegan hátt, einn er sá að maður er farinn að sofa verr sökum hækkaðs hita innandyra, og maður er líka farinn að svitna meira á daginn. Þetta er allt ásættanlegt svo lengi sem leiðinda snjórinn og gráminn hverfa burt. Hér er hægt að klæða ungfrúnna í léttari föt þannig að hún getur nú hreyft sig meira en áður og það þykir henni sko alls ekki leiðinlegt, þó er alltaf leiðinlegt þegar maður þarf að hætta leik og það gerist alltaf of snemma að mati Júlíu, en svona er það nú bara.

Hérna eru myndir




16.3.10

Ekki dauðir dagar

Síðust tveir dagar hafa verið álagsþrungnir en skemmtilega framleiðnir. Á mánudaginn þeyttist ég til Görlitz til að fara á mína allrafyrstu músíkæfingu þar, og einnig þá fyrstu fyrir nútímastykkið sem ég er að fara sýna þar í maí og júní. Ég viðurkenni að ég var með kvíðahnút í maganum, þar sem þetta var í fyrsta skipti þar sem ég fer og þarf að skila mínu því mér er borgað fyrir það, ekki afþví að ég vann einhver verðlaun eða afþvíbara. Heldur var þetta mín fyrsta æfing sem Professional söngvari, ég er búinn að leggja mikið á mig við að læra og tel að ég hafi verið að gera allt sem í mannlegu valdi stendur til að skila því sómasamlega. Æfingin var kl 15:00 og ég var mættur hálftíma fyrir svona til að vera "kominn" áður allt byrjar. Fólkið sem ég hitti var hið vænsta og allir voða brosandi og jákvæðir sem var ótrúlega gaman að sjá og heyra því það er pínúlítið þunglyndislegt að labba frá brautarstöðinni að óperunni, leiðin er mjög ljót og niðurdrepandi. Æfingin hófst og það var byrjað á mér þar sem ég þurfti að fara heim samdægurs. Allt gekk þetta eins og í sögu og stjórnandinn var mjög ánægður með mig og þakkaði mér svo bara fyrir að hafa komið, þá var liðin hálftími af æfingunni, þannig að ég skuttlaðist bara aftur til Berlínar. Þetta var því afar jákvæð upplifun sem mun auðvelda flutningana til muna.

Í morgun hentist ég svo í Ópel bygginguna við Friedrichstrasse, þar sem ég var boðaður á blaðamannafund vegna Classic Open Air hátíðarinnar sem ég er að fara syngja á í sumar. Þarna voru mættir um 100 fréttamenn og aðalnúmer hátíðarinnar, sópransöngkonan Lucia Aliberti, en við erum einmitt að fara syngja saman dúetta og eitthvað skemmtilegt eitth kvöldið fyrir um 7000 manns, ekki leiðinlegt það. En allavega það voru teknar fullt af myndum, aðallega af henni þó þar sem hún er stjarnan, en ég villtist inn á eina eða tvær :) Viðtökurnar voru góðar og þetta leggst núna mun betur í mig en áður. Sem betur fer. Egóið er nú á uppleið eftir talsvert djúpa lægð að undanförnu.

Júlía litla gleður mann sífellt með uppátækjum sínum og í kvöld náði hún sér í súkkulaðistykki sem henni þótti afar gott, og við foreldrarnir höfðum ekki hjarta í okkur til að rífa það af henni. (Gerðum það nú reyndar á endanum án teljandi vandræða :))

Þangað til næst.
Hér gefur að líta mynd af súkkóslysinu:



14.3.10

Skítaveður í Berlín...

Ætlaði vart að trúa mínum eigin augum þegar þetta hófst, en svona er það nú bara....! Vonandi fer þetta nú að skána eitthvað.

13.3.10

Ruglið sem er enn til staðar

Það er nú langt síðan ég hef eitthvað verið að dirfast að blogga um "þjóðfélagsmál" en ég hef nýverið verið að rekast á nokkrar fyrirsagnir í blöðunum á Íslandi sem allar snúa að því hvað kerfið er ósveigjanlegt gagnvart fólki sem hefur misst ástvini og er nú í einhverskonar fjárhagserfiðleikum beint eða óbeint. Þó ég fari ekki að gera lítið úr missi fólks þykir mér ein ákveðin frétt afar fáránleg hvað þetta varðar, en það er kona með einhverfan dreng að fara halda fermingarveislu. Henni þykir ósanngjarnt að fá ekki áfram greiðslur vegna þess að pabbinn er dáinn!! Ok í fyrsta lagi þá eru þau augljóslega skilin og hún ætlaði sér bara að fá peningana sína í gegnum sýslumann, sem myndir þá neyða pabbann til að borga! En fyrst að hann er dáinn þá gengur þetta ekki upp hjá henni og hún þarf að standa straum af kostnaði risaveislu sem á greinilega að halda svo að einhverfi strákurinn upplifi sig ekki félagslega einangraðan............. eða er það kannski bara mamman sem upplifir sig einangraða?? Maður spyr sig. Sama hvað, miðað við stöðuna í þjóðfélaginu núna þá finnst mér alveg með ólíkindum að fólk skuli haga sér svona eins og algerir fávitar, góðærið er búið og við getum alveg lifað aðeins lægra. En mér sýnist á öllu að fólk sé einmitt ekki að gera það, heldur fer það bara í blöðin með allt þegar þau fá ekki peningana sína alveg saman hvað er í gangi. Ég vil taka það fram að ég þekki ekki aðstæður þessa fólks, ég er aðeins að bregðast við grein sem ég las, hvort sem hún er rétt eða ekki.

Svo eru allskyns fólk sem hefur ekki efni á að frema börnin sín!! Það er alveg hægt að komast af án þess að kaupa mat af veisluþjónustum eða vera með það dýrasta dýra í mat og drykk. Vissulega er erfitt að trappa niður gjafakaup en það eru alltaf til ráð, ekki alltaf bara að hringja á vælubílinn þegar eitthvað gengur ekki nákæmleg eins og fólk vill.

Púst dagsins,.....