3.1.10

Þá er því lokið og vart hægt að segja að maður sé óhamingjusamur

Í kvöld var síðasta sýning mín í Neuköllnar Óperunni hér í Berlín. Ýmsar tilfinningar gerðu vart við sig í kvöld, en á toppnum trónir þó gleðitilfinningin! Ég skilaði 90% sýninga á fullkominn hátt, þ.e eins fullkomið og það gat verið á hverjum tímapunkti. Á morgun er svo allra síðasta sýningin, og ég ætla mér að verða þar áhorfandi, eftir það verður svo lokapartý, sem ég á alveg eins von á að verði nokkuð gott :) Sama hvað, þá var þetta svakalega gaman og maður áttar sig aldrei á því fyrr en eftir á eins og með allt annað í lífinu, það eru fáir sem geta metið á hverjum degi allt það góða sem þeir eiga, hvort sem það er frami, fjölskylda eða bara eitthvað annað sem við njótum áhverjum degi allt okkar líf. Ég þakka fyrir mitt góða líf og alla þá sem ég hef fengið að njóta þess að kynnast.

Á döfinni er svo að fara í partý á morgun (í dag), fara á Avatar í 3D og svo að hendast til Íslands í stutta ferð til að hitta fólkið sitt. Það er skrýtið að standa núna frammi fyrir því að hafa ekkert að gera fyrr en 16.Júlí!!! Hvað skal gera þangað til þá? Ég á nú von á að maður fari nú einhvern fyrirsöng og vonandi nær maður sér í einhver smáverkefni fram að Ágúst, en það er formlegur heimfararmánuður ef ekkert annað er meitlað í stein fyrir þann tíma.

Ég lýk þessu í kvöld á að þakka lesendum bloggsins fyrir lestur, stuðning, og trú á mér í því sem ég er að gera. Það er gott að vita að maður á góða að, það hjálpar í öllu sem maður gerir.

Ég óska ykkur öllum hamingjuríks árs, friðar og gleði.

Í lokin kemur svo gleðileg áramótamynd af ungfrúnni :)

30.12.09

Styttist í nýtt ár

Það verður að segjast eins og er þegar ég lít yfir síðasta ár, að ég er bara búinn að áorka ansi miklu, og svona eftirá að hyggja er ég afar stoltur og ánægður með það sem ég hef gert. Síðustu mánuðir ársins hafa verið rússíbanareið tilfinningalega og ferðalega. Ég hef hentst útum allt þýskaland og til austurríkis til að reyna að sýna hvað í mér býr, en það bar lítinn ávöxt þvímiður. Þó gæti verið að góðra frétta sé að vænta í byrjun nýja ársins, og mun ég smella því hér inn við fyrsta tækifæri :)

Internetið er komið inn, eiginlega alveg sjálfkrafa, en ég var búinn að hringja og kvarta yfir því að það væri alveg dottið út allt samband á línunni hjá okkur, ég bjóst við að þurfa að standa í einhverjum símtölum fram og til baka. Sem betur fer var það ekki svo. En sökum þessara vandamála fór ég að nota gsm símann minn meira til að skoða netið, og verð ég að segja að ég er alveg hrikalega ánægður með græjuna og þessa tækni. Við horfðum hérna á fréttatíma í gegnum GSM samband!! Sem ég hélt bara að væri ekki hægt! En það var jafn einfallt og að horfa í gegnum ADSLið. Allt í einu fæ ég svo SMS frá T-mobile sem segir að ég hafi farið framyfir í gagnamagni, og fái því aðeins mjög takmarkaðan hraða til mánaðarmóta! Ég taldi mig að sjálfsögðu vera að borga fyrir "unbegrenzt" internet í síma. Og það kemur á daginn að það er rétt og á einungis við um tenginguna, ég borga ekkert fyrir að vera tengdur, en ég get bara notað 200Mb á mánuði, sem er svosem eðlilegt, en þetta kom mér verulega á óvart. Það hefur því tikkað ansi hratt þegar ég fór að streama fréttatímann :) En þetta er allvega allt komið inn og nú má nýja árið fara að ganga í garð.

Við familían skelltum okkur í fyrsta skipti saman niður í bæ þessi jólin, svona rétt aðeins til að skoða okkur um, ekki skemmdi fyrir að hér hefur kyngt niður snjó í dag og allt er hvítt og fallegt. Leiðin lá á Unter den Linden, en þar gat maður séð glitta í showið sem verður þarna á morgun, nokkuð flott. En við verðum nú líklega ekki þar. Lukum svo kvöldinu á að kíkja á Maredo og detta í eina Feinschmecker og ekki brást nú bogalistin þar á bænum frekar en fyrr (nema í Dresden).

Hér er svo ein mynd af hliðinu fræga ásamt smá ljóssúlum.


28.12.09

Jólin með glanz og internet í steik

Hér gengu jólin í garð ekki alveg eins og maður hefði vonað, en líklega einhverju betri en í fyrra :) Ungfrúin tók aðfararnótt aðfangadags í að verða nokkuð veik með hita og stíflað nef, og gat því ekki sofið mjög vel, þetta þýddi svo frekar erfiður aðfangadagur. En svona er þetta bara og lítið við því að gera. Matur og drykkur heppnaðist með eindæmum vel og má segja að þýski hversdagsmaturinn Kasseler hafi staðið að öllu leiti á sama stalli og íslenski Hamborgarhryggurinn. Hér eru að sjálfsögðu sínhvorar hefðirnar í gangi og blandast þær bara ansi vel saman :) Gjafalega stöndum við bara vel og auðvitað fullkomlega sátt við það sem okkur hefur hlotnast :)

Ég er búinn að syngja tvær sýningar í röð núna milli jóla og nýárs, sökum veikinda. Það er svosem allt í lagi þar sem ég er ekki að gera mikið annað á þessum tíma. Nú á ég aðeins tvær sýningar eftir og svo tekur við frí í talsverðan tíma. Og er Íslandsferð inni í því, það má segja að það sé komin örlítil tilhlökkun að hendast heim, þar sem ég hef ekki komið til Íslands í heillt ár núna í Janúar.

Það eru erfiðir dagar sem nú fara í hönd. Ástæða þess er sú að hér erum við nánast netsambandslaus, við getum að vísu reddað okkur með tölvupóst og blogg, en öll þyngri internetvinna verður að bíða :) Internetsambandið okkar, og þar með talinn heimasíminn eru bara allt í einu dottið út!! Grunur minn er sá að þetta sé bilun í router, þó vissulega sé ekki hægt að útiloka neitt í þessum efnum, ég á von á símtali frá tæknimanni í kvöld eða á morgun til að ákveða næstu skref. Á meðan getum farið á netið í gegnum símann minn, þar sem ég er á Flatrate taxta, þ.e get verið tengdur eins mikið og ég vil án endurgjalds, þó ég sé nú vissulega að borga fyrir það í hverjum mánuði, þá kemur það sér ágætlega núna :)

Áramótin koma brátt, og við erum búin að ákveða að hafa kjúkling, með einhverju, sem á enneftir að koma í ljós. Við bara vonum að hægt verði að horfa á áramótaskaup og annála hérna megin. Það er allsendis óljóst á þessari stundu þar sem ekkert er internetið og ekki líkilegt að það verði komið í lag fyrir áramótin.

24.12.09

23.12.09

Í ljósi nýjustu frétta frá Íslandi....

...er gaman að geta þess að jólabjór og allur annar bjór er langt frá því að vera uppseldur :) Það er eitthvað svo gaman að verða vitni að þessu héðan, frá allt öru landi, maður sér þetta í svolítið öðru samhengi :)

22.12.09

Tíminn líður hratt svona síðustu dagana fyrir jól

Hér í Berlín er búið að vera ansi kallt síðustu daga og hér hefur jafnvel snjóað sem við fengum ekki að njóta eins vel í fyrra. En það eru svo sannarlega að koma jól og við erum búin að eyða þónokkrum klukkutímum í að undirbúa það alltsaman, en það er auðvitað allt þess virði. Ég hef ekki verið mikill fjölskyldumaður síðustu vikur og mánuði sökum söngtengra mála, áheyrnarprufur og annað plögg í kringum þetta er ekki mjög fjölskylduvænt, sérstaklega ekki fyrir fólk eins og mig sem á að til að tapa sér lítillega í því sem þeir eru að gera. En núna hef ég notið þess mun meira að vera með litlu fjölskyldunni minni hérna í Berlín. Það kóróna svo fréttir sem líklegast flestir lesendur þessarar síðu vita núþegar eitthvað um, en eru síður en svo 100% staðfestar. Þegar ég kem svo til Íslands í byrjun Janúar, verður hægt að staðfesta, eða ekki, það góða sem gerst hefur nú í lok árs 2009.

Hér á bæ verður hamborgarhryggur, eða Kasseler, og var hann keyptur í dag. Án beins er kvikindið, en ég skal láta þetta verða safaríkasta kjöt sem ég hef smakkað, þó ég þurfi að sprauta vökva inní kjötið :) Held þetta verið ekki neitt flókið mál, en gaman verður það að vanda. Við höfum verið í smá veseni með að ákveða hvaða áramóta mat við ætlum að hafa, en enduðum á að kaupa bara kjúkling, sem hérna í þýskalandi, virðist vera erfitt að fá ánþess að það hann innihaldi innyfli og háls!! Sem er svona frekar viðbjóðslegt að hugsa til, en síðast þegar ég keypti kjúkling í heilu lagi hérna var þetta sem betur far allt saman pakkað í sérstakan poka sem var troðið inn í kjúklínginn. Reyndar fundum við í dag svona sérstakan hátíðarkjúkling, og hann kostaði bara ansi mikið (30 EUR). Reyndar nokkuð öruggt að um "góð" gæði var að ræða en þetta er svolítið dýrt finnst manni. Hamborgarhryggurinn er um 10.Eur/Kg sem verður að teljast ágætt.

Á morgun verðum við svo með eðalplokkara, þar sem ég nenni ekki að standa því að borða skötu, aleinn.

Við erum allvega sátt og förum inn í jólin með gleði og kærleik í hjarta, þrátt fyrir að vera fjarri vinum og vandamönnum.

Kveðjur héðan frá Kurfursten.
Nýjar myndir af ungfrúnni eru komnar inn hérna