Í kvöld var síðasta sýning mín í Neuköllnar Óperunni hér í Berlín. Ýmsar tilfinningar gerðu vart við sig í kvöld, en á toppnum trónir þó gleðitilfinningin! Ég skilaði 90% sýninga á fullkominn hátt, þ.e eins fullkomið og það gat verið á hverjum tímapunkti. Á morgun er svo allra síðasta sýningin, og ég ætla mér að verða þar áhorfandi, eftir það verður svo lokapartý, sem ég á alveg eins von á að verði nokkuð gott :) Sama hvað, þá var þetta svakalega gaman og maður áttar sig aldrei á því fyrr en eftir á eins og með allt annað í lífinu, það eru fáir sem geta metið á hverjum degi allt það góða sem þeir eiga, hvort sem það er frami, fjölskylda eða bara eitthvað annað sem við njótum áhverjum degi allt okkar líf. Ég þakka fyrir mitt góða líf og alla þá sem ég hef fengið að njóta þess að kynnast.
Á döfinni er svo að fara í partý á morgun (í dag), fara á Avatar í 3D og svo að hendast til Íslands í stutta ferð til að hitta fólkið sitt. Það er skrýtið að standa núna frammi fyrir því að hafa ekkert að gera fyrr en 16.Júlí!!! Hvað skal gera þangað til þá? Ég á nú von á að maður fari nú einhvern fyrirsöng og vonandi nær maður sér í einhver smáverkefni fram að Ágúst, en það er formlegur heimfararmánuður ef ekkert annað er meitlað í stein fyrir þann tíma.
Ég lýk þessu í kvöld á að þakka lesendum bloggsins fyrir lestur, stuðning, og trú á mér í því sem ég er að gera. Það er gott að vita að maður á góða að, það hjálpar í öllu sem maður gerir.
Ég óska ykkur öllum hamingjuríks árs, friðar og gleði.
Í lokin kemur svo gleðileg áramótamynd af ungfrúnni :)

Innilegar óskir um gleðilegt ár og velgengni í öllu því sem þið takið ykkur fyrir hendur.
SvaraEyðaKveðjur Sigrún
Hæ Egill minn og gleðilegt ár og takk fyrir það gamla.
SvaraEyðaGerðist svo kræf að prenta út þessa mynd og er nú búin að hengja hana upp við hliðina á tölvunni minni í vinnunni. Þannig að mér ætti ekki að leiðast ..... :)
BKBen