9.12.09

Hið langa ferli og geðveikin

Fyrir rétt rúmu ári síðan fékk ég símtal þar sem mér var sagt upp störfum hjá fyrirtækinu sem ég vann hjá. Það hefur gengið merkilega vel síðan vegna þess að ég fékk barnabætur fyrir Júlíu. Þannig að það blessaðist alltsaman á endanum. Nú fyrir nokkrum dögum fékk ég svo bréf frá LÍN, þar sem mér var gert að greiða rúma hálfa miljón króna til baka af því sem þeir kölluðu ofgreitt námslán! Þetta var eiginlega það versta sem gat komið upp í þeirri stöðu sem nú er hérna í hjá mér í Berlín. Ég fór því á kaf í málið að reyna að finna útúr því hvernig stæði á þessu. Þetta var semsagt vegna þess að ég hafði ekki skilað inn staðfestingu kennara á því að ég hafi lokið seinni önn, sem ég vissulega gerði, en ég er svo nýr í þessu LÍN dótaríi að ég hugsaði ekkert meira út í það. Þeir sendu reyndar ekkert bréf sem lét mig vita að ég ætti eftir að skila þessum pappírum! En núna eftir smá samtöl við LÍN og kennarann minn hefur það komið upp út kafinu að þessi skuld hefur verið felld niður og ég fæ meira að segja smá meiri pening! En auðvitað þarf maður að lenda í einhverju svona fyrst :) Mér er að lærast það smátt og smátt að það þýðir ekki að panikka og æsa sig yfir því sem gerist, aðeins að taka því með jafnaðargeði og trúa því að það sé til góðs. Það var nákvæmlega það sem ég gerði í þetta skiptið, tók jákvæðnina á þetta, sem ég geri nú ekki oft. Ég hef því ákveðið að reyna að snúa mér af þeirri leið sem ég hef talið best í þessum efnum, og ætla að prufa hina leiðina :) S.s að vera jákvæður út í atburði og umhverfi. Það verður erfitt en ég get það eins og allt annað sem ég tek mér fyrir hendur.

Í næstu viku eru fyrirhugaðar tvær áheyrnarprufur, annarsvegar í Görlitz og hinsvegar í Braunschweig. Það þarf ekki mörgum blöðum um það að fletta að Braunschweig er náttúrulega betra húsið, svona upp á framtíðina að gera, en ég mun syngja mjög vel í báðum prufunum og sýna fyrir sjálfum mér að ég get vel gert þetta. Að þessu loknu er svo eiginlega komið jólafrí, en það er aldrei að vita hvort það komi einhverjar fleiri prufur upp á yfirborðið í mánuðinum, en ég efa það. Svo er það bara Ísland í tvær vikur eftir áramótin, en ég ætla að vera þar 8-22.jan.

Nú meira var það nú ekki héðan í bili, meira um lífið og tilveruna síðar.

6.12.09

þessu er lokið.......

Þá er þessi ágæta helgi að lokum komin, og sem betur fer tekur nú við hálfgert frí þangað til eftir viku, en þá þarf ég að hendast í tvær áheyrnarprufur. Þessa helgina söng ég tvær sýningar af Rigolettó og svo eina Jólatónleika í dag í Mercedes höllinni. Hefði líklega getað farið betur en ég tel að ég hafi ekki orðið mér til mikillar skammar. Það er ekki laust við að maður finni til smá þreytu núna og smá vonleysis. En það er farið að styttast allverulega í annan endan á þessu Berlínar ævintýri. Ef ekki fer eitthvað að breytast verðum við komin til Íslands aftur í byrjun sumars í síðasta lagi. Sem þarf ekki endilega að vera það versta í heimi, en það yrðu viss vonbrigði fyrir mig, eftir að hafa fjárfest svona mikið í þessu. En ég get allavega sagt að ég hafi reynt og það hafi vissulega gengið vel, en það er bara ekki alltaf nóg.

Stórflott afmæli var haldið hérna í gær og þvímiður gat maður ekki notið samvista við allt fólkið í gær eins og maður hefði viljað vegna "vinnunnar". En nú er maður loksins kominn með bjór í hönd og getur andað léttar yfir kvöldinu og kannski reynt að njóta þess aðeins.

Ungfrúin verður alltaf betri og betri í öllu sem hún gerir og það er að gera okkur foreldrana ótrúlega glaða og ánægða með lífið. Það er alltaf gott.

Rokkdrottningin prufaði forláta bol í dag og það fer henni bara nokkuð vel :)


5.12.09

Eins árs í dag!

Ungfrúin á afmæli í dag og í tilefni þess er lítið kaffiboð hér á Kurfürsten. Begga frænka komin sér ferð til að halda upp á þetta og von er á fleiri gestum á næstu mínútum.

Afmælismynd af ungfrúnni í svaka fína handprjónaða afmæliskjólnum frá ömmu Sísi.

1.12.09

Feill sem fyrr.

Snemma í morgun hélt ég til Radebeul, sem er nánast í Dresden, til að syngja fyrir. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um það. Gekk vel með píanista en ömurlega þegar á sviðið var komið. Sá brandari hætti að vera fyndin fyrir nokkrum mánuðum síðan. Hvað er það sem orsakar svona rugl? Það er ekki auðvelt að segja en það er auðvelt að segja hvað það er pirrandi. Maður fær allstaðar lof þar sem maður kemur fram, en svo hrynur allt þegar maður þarf að reyna að fá sér vinnu?!?!? Reyndar klingir þetta við það sem Wolfgang segir, en það hjálpar bara þvímiður ekki. Ég átti þó samt góða ferð og allt gekk vel að prufunni undanskildri.

Mig langar að fara nokkrum orðum um reykingar, en það er eina fyrirbærið í heiminum sem ég get með fullri sannfæringu og ekta hatri sagt að ég þoli minna en allt annað í heiminum. Þetta kemur upp vegna þess að tvívegis á stuttri ferð minni varð ég fyrir "aðkasti" reykingafólks. Fyrra skiptið var ég á leið úr áheyrnarprufunni og leitaði mér skjóls frá rigningunni í biðskýli við lestarstöðina, þar kom þá hópur ungs fólks sem leitaði sér líka skjóls eins og eðlilegt er, nema hvað þeim fannst fátt eðlilegra en að rífa upp sígaretturnar sínar og byrja að reykja sem varð auðvitað til þess að ég hrökklaðist út í rigninguna í rúmar 15 mínútur þangað til að lestin kom. Seinna skiptið var svo þegar ég þurfti að bregða mér á klósettið í lestinni og þar hafði augljóslega einhver fíkillinn ekki ráðið við sig og þurft að kveikja sér í á klósettinu, maður angaði eins og öskubakki eftir 2 mínútna heimsókn á klósettið!!!!. Að þetta fólk kunni ekki og vilji ekki skammast sín fyrir eigin heimsku er svo fjarri mínum skilningi að stundum held ég að ég sé ekki frá sömu plánetu og þetta lið. Ég tek undir með Sænsku fyrirtæki sem setti í ráðningarauglýsingu hjá sér að reykingamenn gætu sleppt því að sækja um. Fyrirtækið var að sjáfsögðu kært af einhverjum fíklinum, en vann málið á þeim forsendum að fólk sem vísvitandi kýs að hundsa hundruði rannsókna og viðvaranir lækna og heilbrigðis yfirvalda hafi einfaldlega ekki það gáfnafar sem þeir krefjast :) Mér finnst þetta snilld og mættu fleirri leika eftir.

Annars var það ekki fleira í bili...........

27.11.09

Rösti og Júlía

Í morgunmat ákvað ég að elda mér snilld sem ég smakkaði í Innsbruck, en það er fyrirbæri sem kallast Rösti. Þetta eru semsagt kartöflur sem eru afhýddar, soðnar í 5-10 mín, kælt, og svo rifnar niður með rifjárni. Saman við það er svo blandað salt og pipar (ásamt hverju því sem hugurinn girnist, hjá mér var það paprikuduft og laukduft, ég get ímyndað mér að það sé gott að setja góðan ost í þetta líka). Smjörlíki er brætt á pönnu og á 2/3 hita er svo Rösti draslinu hellt á og þjappað vel niður og passað að það haldi lögun (hefðbundna gerðin), það má að sjálfsögðu gera þetta hvernig sem er. Þetta er svo látið steikjast svona í 5-6 mín, og svo hent á hina hliðina (það er best að gera það með að setja disk ofan á og snúa svo pönnunni þannig að kakan lendi á disknum, annars dettur þetta allt í sundur). Einnig 5-6 mín. Það segir sig sjálft að þetta bragðast vel, þar sem smjör, kartöflur og salt smakkast alltaf vel saman. Þetta er líka skítódýr og saðsamur matur, tala nú ekki um ef maður steikir með þessu beikon og/eða egg. Minnir eilítið á pikknikk franskarnar, þegar þetta er vel krispí :) Mæli allavega með þessu.

Nú við erum búin að vera í jólagjafahugleiðingum og fórum í þeim tilgangi í Alexia verslunarmiðstöðina sem stendur alltaf fyrir sínu :) Við keyptum afar lítið, en náðum að láta Júlíu máta hitt og þetta, það er margt sem fer henni vel :) hérna að neðan má sjá eina kápu sem ungfrúin var látin máta, og það fannst henni sko ekkert leiðinlegt :)

Hér fyrir neðan má svo sjá ungfrúnna í hörkustuði að leika við pabba sinn.

23.11.09

Að uppskera ekki eins og til er sáð....

Þá hefur niðurstaða fengist í Innsbruck áheyrnarprufuna sem ég söng mjög vel í. Svarið er það að það voru skiptar skoðnir um mig en ég þótti hafa skilað mínu á sómasamlegan hátt, en ákveðið fara að fá einhvern með meiri reynslu. Mér líður svona eins og ég hafi verið kosin vinsælasta stelpan í ungfrú Ísland, titill sem ekki er merkilegur, en samt titill!! Sama hvað, ég er kominn langt á síðustu dropana í þolinmæði og svona fréttir eru aldrei til upplífgunar.

Ég er samt bókaður í 3 prufur í desember og það verður gaman að sjá hvað kemur útúr því. Ég hitti svo Wolfgang og frú á laugardaginn og tíundaði þar raunir mínar, og fékk þá að læra að það er ekki allt sem sýnist í bransanum. Konan hans Wolfgang hefur verið að vinna sem umboðsmaðurinn hans í 10 ár og hún sagði mér að það er ekki alltaf að marka það ef mér er hafnað í áheyrnarprufu, því stundum er manni hafnað einfaldlega vegna þess að viðkomandi þolir ekki umboðsmanninn, sem í mínu tilviki skilst mér að sé ekki ólíklegt, þar sem sá umboðsmaður sem sendi mig til Innsbruck er víst ekkert sá vinsælasti í bransanum, þó hann hafi mikil sambönd. Ég var því hvattur til að reyna aftur hjá Innsbruck með einhverjum öðrum umboðsmanni!! Úfff maður, á maður eftir að nenna því??? Ég veit það sveimér þá ekki.

Stórar og góðar fréttir hef ég að færa, þar sem ég hef nýlega skrifa undir samning við stærstu klassísku tónlistarhátíð í Berlín um að koma fram í sumar á þeirra vegum. Þetta þýðir gífurlega auglýsingar og mikið exposure. Hátíðin heitir "Classic Open Air", þessa hátið sækja yfir 60.þús manns á hverju sumri, og er alveg hrikalega merkilegt dæmi. Í fyrra voru þeir t.d með Carreras!! Það er því langt frá því að maður sé í skítnum, en það er langt í þetta og mikið vatn á eftir að renna til sjávar. En þetta er stórkostlegt, þar sem ég horfði á plakötin af þessari hátið með stjörnur í augunum í fyrra, og velti því fyrir hverslags rugl það er eiginlega að komast að á svona hátíð sem listamaður, og sjá hvar ég er núna :) Stórkostlegt er það.

Ég var að sýna í kvöld og á sýninguna komu Gunnar og Einar, það var voða gaman, sérstaklega þar sem Gunnar hefur verið fjarri góðu gamni síðustu vikur. En Gunnar hentumst svo á ítalskan stað á Bergmannstrasse og fegnum okkur bjór og ég fékk mér Trufflupasta, sem er með því klikkaðara í mat sem ég hef borðað, fæ mér þetta af og til, svona til hátíðarbrigða :) Mæli með því að fólk prufi þetta sem á kost á því.

JFE tók upp á því alveg sjálf að þrífa hérna klósettið. Segið svo að þetta sé ekki harðkóðað í okkur frá unga aldri hvað við eigum að gera í framtíðinni :) Þetta hefur allavega ekki verið haft fyrir henni :) Ég sé femínista í ættini verða rauða af bræði við þetta, en svona er þetta bara!

19.11.09

Lestarferð, fyrirsöngur, Töfraflautan, lestarferð

Eftir átta tíma lestarferð sem gekk mjög vel kom ég til Innsbruck síðla kvölds. Fann strax hótelið mitt, þar sem ég er með gps í símanum, ótrúlega þægilegt. Hótelið er um 5 mín frá lestarstöðinni. Þar fékk ég "upgrade" í herbergi með sturtu, þar sem allt annað var fullt. Það er svosem ágætt, fyrir utan góða lestarferð, var þetta fyrsti góði punktur ferðarinnar. Ég svaf svo svefni hinna réttlátu og fór svo í Óperuna til að hitta píanóleikara og gera klárt fyrir prufuna. Þar gekk mér ekki allt of vel og fór því strax að hafa áhyggjur, þar sem ég var einungis með tvö stykki á efnisskránni sem ég hef sungið áður fyrir fólk, og röddin var eitthvða að stríða mér. Og svo kom að prufunni, ef ekki hefði verið búið að fylla mann af einhverjum hugmyndum um konuna sem stýrir húsinu, þá hefði ég kannski ekki verið eins stressaður. En svo komu aðrar góðar fréttir en þær voru að við vorum aðeins þrjú sem vorum að syngja fyrir í dag. Ég var því bæði fljótlega á svið og fljótlega búinn. Prufan gekk glimmrandi vel og ég held að ég hafi sýnt allt það besta sem ég, fékk á tilfinninguna að þeim hafi líkað vel við. En maður veit það náttúrulega aldrei. Næst fór ég svo og keypti mér miða á Töfraflautuna sem er í kvöld og ætla að njóta þess aðeins að horfa í þessu fallega Óperuhúsi.

Svo þarf að vakna kl 4 og hendast í lestina sem fer kl 5, ég þarf að skipta 3 um lest, en frá Munchen er bara ein lest, og það er það sem skiptur máli, þar sem hún er með rafmagnsinnstungum og maður getur bara horft á myndir eða þætti allan 6 tímana sem það tekur nú. Svo er sýning í Neukölln um kvöldið. Nóg að gerast!!

Ég setti inn nokkrar myndir fá fögu Innsbruck hérna