1.7.09

Gala tónleikar, gott veður og sunnlendingur vikunnar.

Hér hefur nú ekki blásið köldum vindum síðustu daga, heldur þvert á móti hefur verið óheyrilega rakt og heitt. Sem er ekki endilega svo slæmt, miðað við kuldann.

En allavega, í fyrradag fórum við í tveggja og hálfs tíma bátsferð um vatnið hérna í Rheinsberg og það þarf varla að taka það fram hversu flott það er að vera umkringdur skógum og vatnasvæði.
Það hefur nú vissulega þá ókosti að því fylgir mikið af flugum og þá sérstaklega moskító! En þetta var mjög fín og róleg ferð, og gott að breyta aðeins til. Herbergisfélagi minn hérna er ísraelskur tenór sem er í stærri kantinum, en hann er ótrúlega fínn gaur og okkur kemur vel saman, sem er kostur þegar maður þarf að deila herbergi með viðkomandi í rúma viku.

Galatónleikaröð hefst á morgun, í dag er semsagt alger hvíld. Í gær var keyrt í tæpa 3 tíma til að fara á æfingu með sinfóníuhljómsveitinni í Frankfurt (an der Oder) við sungum svo í um 10 mín á mann og svo var keyrt til baka, þetta var semsagt mikil ferð í talsverðum hita í illa loftkældum bíl. En þetta var mjög gaman þrátt fyrir allt sem á undan hefur gengið. Á morgun er semsagt Genaral um miðjan dag og svo tónleikarnir sjálfir um kvöldið. Við fengum þær fréttir að það væri nánast uppselt á alla tónleikana og það þýðir að við syngjum fyrir um 750 manns á hverju kvöldi, sem er ótrúlega gaman, það sem gerir þetta allt erfitt er að við erum utandyra og það er virkilega erfitt
að halda aftur af röddinni, sem getur þýtt að maður ofreyni sig og verði raddlaus daginn eftir, EN maður á nú að geta kraflað sig fram úr þessu.

Ýmislegt annað er svo í gangi sem ég kann ekki við að jinxa fyrr en öruggt er orðið, en það verður sko alveg nóg að gera næstu daga og mánuði gangi allt eftir.

Ég svaraði svo spurningum Sunnlenska og það ætti að detta inn í næsta blaði sem "Sunnlendingur vikunnar" sjáum hvort það skili sér :)

Júlía litla er farin að hlaupa á ofsahraða í göngugrindinni sem hún er með í láni, auk þess að fara á hestbak og tæta í skápunum hennar ömmu í Skagafirði. Það er því margt sem maður hefur að hlakka til þegar maður hittir hana aftur. Fékk nokkrar myndir sendar úr Skagafirðinum af þeirri litlu og set hérna tvær góðar.

28.6.09

Ástarbanni aflétt!

Morguninn eftir situr maður hér í litla tölvuherberginu, eina staðnum í húsinu sem hægt er að nálgast "internetið", og hugleiðir í raun ekkert! Óperan gekk nokkuð vel, nokkur áföll sem ekki margir tóku eftir. Að loknum 1.þætti fékk ég létt tiltal frá Wolfgang um hvað mætti betur fara og ég gerði mitt besta til að leiðrétta það. Raddlega gekk þá allt mun betur. Svo var farið á veitingastað í nágreninu og teknir nokkrir léttir drykkir. Komin í rúmmið fyrir 2 og vakað núna í morgunsárið kl 10 :) Í dag tekur svo við hvíld og á morgun hefjast svo æfingar fyrir Galatónleikana, sem mér skilst að séu það allra mikilvægasta, því þangað koma agentar og ýmsir aðalsmenn sem gott er að heill. Það er því talsvert mikil vinna framundan og þessu verður svo öllu lokið á sunnudaginn eftir viku.

Litla familían mín kemur svo 7.Júlí og einnig kemur mín ástkæra systir í heimsókn sama dag. Að því loknu kemur minn hálfnorski bróðir og hans frú. Í ágúst var ég svo eitthvað búinn að minnast á hlutverk í Fidelio, en ég er ekki alveg viss um að það sé endilega eitthvað sem ég muni gera, þar sem þetta er ekki óperan sem slík, heldur er þetta eitthvað workshop sem ég þarf að borga 180 Evrur fyrir, mér þykir það heldur mikið núna á þessum síðustu og verstu, þannig að ég hugsa að ég blási það af.

Jæja ætla að reyna að fara finna mér eitthvað að borða hérna á þessum furðulega stað. Þangað til næst, djísus kræst.

25.6.09

Ekki meira Braunschweig!

Í fyrramálið er General hérna hjá okkur í Braunschweig, sem er asnalegt þar sem tónleikarnir eru 250 km í burtu, við fáum semsagt enga prufu þar sem þetta verður alltsaman flutt!! ótrúlega hálfvitalegt. Það lítur allt út fyrir það að þetta verðu utandyra eins og lagt var upp með, þar sem það er ótrúlega góð veðurspá hérna fyrir næstu daga, sem er nánast ennþá verra því þá syngjum við með hljóðmögnun auk þess sem að syngja úti er margfallt erfiðara, þar sem maður hefur lítið sem ekkert feedback.

Ég stóð mig afskaplega illa á æfingunni í morgun, og það setur alltaf pínulítið stress í mann. En þetta á svosem eftir að ganga stóráfallalaust, það er bara óþolandi að þurfa að vinna undir stjórnanda sem virðist ekkert vita hvað hann er að gera, óþolandi hraðabreytingar sem eru ekki einusinni skrifaðar í skorið!! Jæja hvað með það. Þetta er allavega allt of stressandi.

Við þurfum að tæma herbergin fyrir generalin á morgun og svo tekur við 3 tíma rútuferð til Rheinsberg þar sem okkar bíður ótrúlega flott gistiaðstaða í rúma viku, en það er þannig að við þurfum að deila herbergi með öðrum sem er algerlega fáránlegt í svona langan tíma! Ég er langt frá því að vera sáttur, og er ekki sá eini! Það lekur allavega ekki af mér gleðin þessa dagana, og þrátt fyrir að það sé einn apaköttur í söngvaraliðinu kann ég ágætlega við þessa krakka og við náum vel saman, sem er sem betur fer þannig. Þá er bara að sjá hvort það sé internet samband í Rheinsberg og með hverjum ég lendi í herbergi, vonandi ekki Rúmenska asperger gaurnum sem ég deili núna íbúð með........reykingasjúklingur sem baðar sig aldrei...... það er s.s. afskaplega góð lykt í íbúðinni, sem betur fer er ég í sér herbergi og hef því bara alltaf lokað að mér.

Þangað til síðar, over and out!

23.6.09

Öppdeit frá Braunschweig

Hér gengur allt..... varla eins og í lygasögu, því þvímiður er þetta ekki mjög professional, þó hérna sé A hljómsveit og við séum að æfa í svokölluðu A-húsi. Æfingar hafa svosem gengið upp og ofan,en það er stanslaust verið að breyta tempóum hér og þar og svona smáatriðum sem virkilega geta sett allt úr skorðum fyrir þá sem hafa lagt það á sig að reyna að læra eitthvað :) Flestir eru þó nokkuð vel undirbúnir og þrátt fyrir að fyrsta æfing hafi gengið eins og hryllingsmynd.... fyrir mig allavega :) Þá hefur það nú leiðrétt sig og þetta gengur bara nokkuð vel.

Í dag var fyrsta "sitzprobe" en það er fyrsta æfing þar sem verið er að samhæfa hljómsveit og söngvara. Að sumu leiti var það auðveldara, en öðru erfiðara. Gaurinn sem er að stjórna er frekar erfiður þar sem hann tekur ekki nægjanlegt mark á söngvaranum og við erum öll svolítið týnd í þessu öllusaman, en þetta á eftir að smella ágætlega saman held ég.......eða vona allavega :)

Ég sakna þess eilítið að hafa ekki með mér hérna hana litlu dóttur mína (og konu auðvitað) sem mér skilst að sé að dafna sem aldrei fyrr í sveitum Skagafjarðar, en svona er bara lífið, söngvaralíf er sjómannalíf, bara verr borgað!

Ég fékk svo SMS á dögunum frá Janet Williams, kennaranum mínum, og vinur hennar er að setja upp Fidelio eftir Beethoven, mer býðst þar hlutverk Jaquino sem er einskonar dyravörður í fangelsinu... ef svo má að orði komast....fangavörður líklegast. Lítið hlutverk, en fyrir um 10 árum söng Jonas nokkur Kaufmann þetta hlutverk og ekki er hann á slæmum stað í lífinu í dag :) Maður veit aldrei.....

Allavega það er annars ekki mikið að frétta héðan annað en þetta.

Hér er svo ein mynd af prinsessunni í lokin til að gleðja fólkið.

Viel spass.

19.6.09

Youleigha


Fyrirsögnin vísar að þessu sinni til listamannsnafns dóttur minnar þegar hún verður fræg söngkona, sem mér sýnist ætla að verða af þessari mynd að dæma :)

Annars er ég bara að skófla í mig einni beikon pylsu áður en ég hendist af stað til Braunschweig, þar sem æfingar hefjast í dag. Ég og sópraninn sem syngur aðalhlutverkið erum á æfingum alla daga og flest kvöld fram að sýningu!! Þetta verður ansi mikið verð ég að segja en svona er það nú bara, ég hlakka allavega til að takast á við þetta.
17.júní hentist ég í partý hjá sendiherrahjónunum og það var ágætasta skemmtun, hitti þar fyrir nokkra sem ég kannaðist aðeins við frá veru minni á Íslandi.

Jæja má ekki hangsa svona í tölvunni. Ef ég finn "internetið" í Braunschweig þá er aldrei að vita nema maður hendi inn einni færslu eða svo.

Hér er svo mynd af sendiherrabústaðinum í Berlín séð úr garðinum

17.6.09

1.árs í gær..... 17.Júní í dag!

Að sjálfsögðu er ekki komið ár síðan Júlía fæddist heldur er hér um að ræða 1.ár frá því að gengið var inn á skrifstofu sýslumanns á Selfossi og gengið í það lagalega ......hið heilaga er eftir :)

Á þessu ári eru líka liðin 10 ár frá því að við Soffía kynntumst, og til stóð að hafa almennilegt kirkjubrúðkaup í tilefni þess en ekki er útlit fyrir að það verði að svo stöddu, allavega ekki í ár.

Lífið hefur verið ósköp áreynslulítið hér í Berlín síðan þær mæðgur snéru til Íslands, jafnvel hálf einmanalegt, þar sem hér vantar, auk þeirra, alla Íslendinga sem ég þekki og umgengst reglulega. Þó hefur mér tekist að syngja á einum tónleikum, auk þess að hanna efnisskrá og plakat fyrir tónleikana, fara á tónleika, læra, þvo þvotta og fara í ræktina. Framundan er svo að fara í undirleikstíma í dag og heimsækja sendráðsbústaðinn í tilefni dagsins, söngtíma á morgun og söngtíma á föstudaginn svo verður lagt af stað til Braunschweig þar sem æfingar munu hefjast á fullu fyrir Das Liebesverbot.

Nóg að gerast þó ekkert sé að gerast, alveg merkilegur andskoti það!

Þess er mikið saknað að sjá ekki þá litlu þroskast á ógnarhraða. Mér er sagt að hún sé farin að borða Cheerios og hlæja! Jæja ég hef þá bara margt að hlakka til þann 7.júlí.

Nóg um það hér er "Zueignung" eftir Richard Strauss sem ég söng núna um helgina.

Gleðilega þjóðhátíð öllsömul!


10.6.09

Langur tími og söknuður....

Þetta er líklega það lengsta sem hefur liðið á milli blogga hjá mér, og  það á sér skýringar í ýmsu sem ég ætla mér ekki að fara tíunda hérna.   En allavega þá er ótrúlega góðri helgi lokið og við tekinn tími sem verður erfiður en skemmtilegur engu að síður.

En svo ég reki nú í stuttu máli það sem hér hefur gerst síðan síðast....
Ég fór að sjá nýjustu Terminator myndina, hún var nokkuð góð, ég held samt að ég þurfi að sjá hana aftur þar sem ég dottaði örlítið undir lokin, ekki vegna leiðinda heldur ofþreytu.  Ekki nóg með að ungfrúin vakni nokkrum sinnum á nóttu heldur þurftum við að vakna snemma þennan dag til að fara með hana í ungbarnaskoðun.  Sú skoðun gekk mjög vel og læknirinn var ánægður með það hvað hún var sterk miðað við aldur.  Hún stækkar hægt og rólega og verður líklegast engin risi frekar en foreldrar  hennar :)  

"Kórinn sem kallaði sig áður Skálholtskórinn" kom til Berlínar á fimmtudagin var og Þorvaldur kom svo á föstudeginum, það var  því kátt í kotinu um helgina, að vanda fannst manni fólk stoppa allt of stutt, en svona er það!  Maður getur ekki alltaf verið í fríi.   Við drifum okkur á tónleika með "kórnum sem kallaði sig áður Skálholtskórinn" sem söng tvær messur ásamt kór Gethsemanekirkjunnar, það var svaka gaman að sitja og hlusta á þetta, báðar messurnar mjög flottar að mínu mati.  Það er líka svakalega góður hljómburður í kirkjunni, þó ekki sé mjög auðvelt að syngja þar.  Svo á mánudagskvöldið voru aðrir tónleikar og þar fékk ég að koma fram með kórnum og einvala liði hljóðfæraleikara, það heppnaðist bara mjög vel að mínu mati og ekki hægt annað en að vera bara ánægður.

Mæðgurnar og foreldrarnir flugu svo heim á þriðjudaginn og ég er einn eftir í kotinu með það stóra hlutverk að læra fyrir tónleika sem eru á Sunnudaginn kemur að loknu námskeiði hjá Janet og svo að sjálfsögðu þarf ég að læra af mikilli alvöru fyrir sumaróperuna sem hefst á föstudaginn næsta.  Þá hefjast æfingar og mér sýnist að viðvera á æfingum sé 10-18 alla daga fram að frumsýningu sem er 27.júní.

Ég sakna orðið strax móður og dóttur, og það er skrítið að vera hérna einn og þurfa ekki að hafa áhyggjur af neinum öðrum en sjálfum mér, en það er afskaplega þægilegt líka.

Nýjasta nýtt hjá ungfrúnni áður en hún hélt til Íslands er afar sérstakur svipur, og hann má sjá hér :)