
Hér hefur nú ekki blásið köldum vindum síðustu daga, heldur þvert á móti hefur verið óheyrilega rakt og heitt. Sem er ekki endilega svo slæmt, miðað við kuldann.
En allavega, í fyrradag fórum við í tveggja og hálfs tíma bátsferð um vatnið hérna í Rheinsberg og það þarf varla að taka það fram hversu flott það er að vera umkringdur skógum og vatnasvæði.
Það hefur nú vissulega þá ókosti að því fylgir mikið af flugum og þá sérstaklega moskító! En þetta var mjög fín og róleg ferð, og gott að breyta aðeins til. Herbergisfélagi minn hérna er ísraelskur tenór sem er í stærri kantinum, en hann er ótrúlega fínn gaur og okkur kemur vel saman, sem er kostur þegar maður þarf að deila herbergi með viðkomandi í rúma viku.
Galatónleikaröð hefst á morgun, í dag er semsagt alger hvíld. Í gær var keyrt í tæpa 3 tíma til að fara á æfingu með sinfóníuhljómsveitinni í Frankfurt (an der Oder) við sungum svo í um 10 mín á mann og svo var keyrt til baka, þetta var semsagt mikil ferð í talsverðum hita í illa loftkældum bíl. En þetta var mjög gaman þrátt fyrir allt sem á undan hefur gengið. Á morgun er semsagt Genaral um miðjan dag og svo tónleikarnir sjálfir um kvöldið. Við fengum þær fréttir að það væri nánast uppselt á alla tónleikana og það þýðir að við syngjum fyrir um 750 manns á hverju kvöldi, sem er ótrúlega gaman, það sem gerir þetta allt erfitt er að við erum utandyra og það er virkilega erfitt
að halda aftur af röddinni, sem getur þýtt að maður ofreyni sig og verði raddlaus daginn eftir, EN maður á nú að geta kraflað sig fram úr þessu.
Ýmislegt annað er svo í gangi sem ég kann ekki við að jinxa fyrr en öruggt er orðið, en það verður sko alveg nóg að gera næstu daga og mánuði gangi allt eftir.
Ég svaraði svo spurningum Sunnlenska og það ætti að detta inn í næsta blaði sem "Sunnlendingur vikunnar" sjáum hvort það skili sér :)
Júlía litla er farin að hlaupa á ofsahraða í göngugrindinni sem hún er með í láni, auk þess að fara á hestbak og tæta í skápunum hennar ömmu í Skagafirði. Það er því margt sem maður hefur að hlakka til þegar maður hittir hana aftur. Fékk nokkrar myndir sendar úr Skagafirðinum af þeirri litlu og set hérna tvær góðar.





